Víkurfréttir


Víkurfréttir - 08.01.2004, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 08.01.2004, Blaðsíða 8
KALLINN ÓSKAR Suðurnesjamönnum gleðilegs árs og þakkar fyrir allt liðið. Skemmtilegur tími framundan. Völvan komin með sína spá og þar er margt merkilegt að sjá, en hún spáir því að Varnar- liðið fari innan tveggja ára. Kallinn mun fylgjast með því og um leið skorar hann aftur á þá sem hafa upplýs- ingar að senda á kall- inn@vf.is. SUÐURNESJAMAÐUR- INN KALLI fær hrós árs- ins frá Kallinum. Hann hef- ur staðið sig frábærlega í Idol keppninni og Kallinn trúir því að hann sigri, enda strákurinn gríðarlega líflegur og góður söngv- ari. Kallinn óskar Grindvíkingum til hamingju með frábæran náunga! REYKJANESBÆR hefur hækkað gjaldskrá sína og auðvitað er það helst barnafólkið sem hækkunin bitnar mest á. Leikskólagjöldin hækka um 20% og gjöldin fyrir tónlistarnámið hækka einnig. Kallinn spyr: Í hvað fara skattarnir okkar? Af hverju þarf að hækka þau gjöld sem koma fólkinu sem er að koma yfir sig þaki og hefja sín fyrstu skref út í lífið verst? Alveg furðulegt og þarfnast skýringa við. EN JÁ - SPENNANDI tími framundan á Suður- nesjum. Kallinn hefur mikla trú á árinu sem er ný- hafið og ef Kallinn væri spámaður myndi hann spá góðu ári! Nú þarf bara að nýta þá krafta sem hér eru til góðra verka. SANDGERÐINGAR ERU að standa sig vel með Sigurð Val bæjarstjóra í fararbroddi. Þeir eru komn- ir að samningaborðinu í Landsbankanum um kaup á Miðneskvótanum. Sveitarfélög ætla að standa saman að kaupum á kvótanum og Kallinn vonar svo innilega að það takist að ná þessum tonnum á svæð- ið. Nú er bara að halda áfram og ekki láta Akurnes- ingana hirða allan kvótann í annað sinn. Kallinn leggur alla sína trú á Sigurð Val og félaga. KALLINN biður lesendur Víkurfrétta um að senda sér ljóð á netfangið kallinn@vf.is. Kallinn hefur nefnilega mikinn áhuga á ljóðagerð og langar til að birta ljóð með þessum pistlum sínum. Hvar eru nú hinir snaggaralegu hagyrðingar á Suðurnesjum? OG AÐEINS EITT að lokum: Hvað er að frétta af Sædýrasafninu? GÓÐAR stundir! Kveðja, kallinn@vf.is 8 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Grundarvegi 23, 260 Njarðvík, Sími 421 0000 Fax 421 0020 Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0007, pket@vf.is Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is Blaðamaður: Jóhannes Kr. Kristjánsson, sími 421 0004, johannes@vf.is Sölu- og markaðsstjóri: Jónas Franz Sigurjónsson, sími 421 0001, jonas@vf.is Auglýsingadeild: Jófríður Leifsdóttir, sími 421 0008, jofridur@vf.is Útlit, umbrot og prentvistun: Víkurfréttir ehf. Prentvinnsla: Prentsmiðjan Oddi hf. Dagleg stafræn útgáfa: www.vf.is og vikurfrettir.is Kallinn á kassanum Nýtum krafta til góðra verka á Suðurnesjum MUNDI Já, baulaðu nú Búkolla mín! Auglýsingasíminn 421 0000 ÞARFTU AÐ AUGLÝSA? Engin slys urðu á mönnum þegarsvokölluð búkolla valt út í sjó viðnýjan varnargarð sem unnið er við á Fitjum í Njarðvík á þriðjudaginn. Stjórn- hús búkollunnar stóð upprétt en pallurinn valt á hliðina og á kaf í sjó. Búkollan er í eigu Íslenskra aðalverktaka en fyrirtækið vinnur við sjóvörn í Reykjanesbæ. Unnið var að losun á jarðefnum þegar slysið átti sér stað. Stórvirkar vinnuvélar voru notaðar til að koma búkollunni á þurrt. Bæði var notast við stóra beltagröfu og einnig aðra búkollu og öfluga keðju. Búkollan sem fór út í sjó fór upp á sjóvarnargarðinn fyrir eigin vélarafli en með aðstoð hinnar búkollunnar og beltagröf- unnar. Litlar skemmdir virðast hafa orðið á búkollunni en án efa hefur mönnum verið brugðið þegar þetta stóra tæki valt út í sjó. VF-mynd: Hilmar Bragi Bárðarson ➤ Æ V I N T Ý R I Ð U M B Ú K O L L U E N D A R E K K I A L L TA F V E L . . . Búkolla valt út í sjó á Fitjum Frá björgun búkollunnar í hádeginu á þriðjudaginn. stuttar f r é t t i r Ölvaður festi stolinn bíl í skafli T ilkynnt var um að bif-reið væri föst í skafli ámótum Norðurvalla og Eyjavalla og ökumaður bif- reiðarinnar hafi hlaupið á brott frá bifreiðinni sem var í gangi. Þetta átti sér stað á laugardagsmorgun. Lögreglumenn fóru á staðinn og ræddu þar við sjónarvotta sem gáfu góða lýsingu á manni þessum. Ökumaðurinn sem er grunaður um að hafa tekið bifreiðina ófrjálsi hendi þar sem hún stóð við hús á Vesturgötu og að vera undir áhrifum áfengis. Hann var síð- an handtekinn á heimili sínu skömmu síðar. Síðdegis á laugardag var til- kynnt að farið hafi verið inn í bifreið við Vesturgötu þá um nóttina og teknir þar geisla- diskar og smáhlutir. Sami maður er grunaður um að hafa farið inn í bifreiðina og tekið bifreið við Vesturgötu. 2. tbl. 2004 32p 7.1.2004 15:09 Page 8

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.