Víkurfréttir - 13.01.2005, Page 1
HEKLA_Vikurfrettir021104.FH11 Tue Nov 02 12:47:23 2004 Page 1
Composite
C M Y CM MY CY CMY K
������������������������
���������������
��������������
������������������
������������������
���������������������
2. tölublað • 2
6. árgangur
Fimmtudaguri
nn 13. janúar
2005
Stærsta frétta- og auglýsingablaðið á Suðurnesjum
AÐSETUR: GRUNDARVEGUR 23 • 2. HÆÐ • 260 REYKJANESBÆR • SÍMI 421 0000 • WWW.VF.IS • FRÉTTAVAKT: 898 2222
8 Farþegafjöldi um Keflavíkurflugvöll tvöfaldast á næstu 10 árum:
Farþegafjöldi um Keflavík-urflugvöll mun tvöfaldast á næstu 10 árum. Farþegar
sem fara um völlinn verða 3,1
milljón árið 2015 en þeir voru 1,6
milljón á síðasta ári. Þetta kemur
fram í endurmetinni spá sem
breska fyrirtækið BAA plc. hefur
gert fyrir Keflavíkurflugvöll.
Þetta eru 10% fleiri farþegar en
í hliðstæðri spá sama fyrirtækis
frá árinu 2001.
Höskuldur Ásgeirsson, fram-
kvæmdastjóri Flugstöðvar Leifs Ei-
ríkssonar hf., segir ljóst að menn
verði að halda vel á spöðum og
hraða eftir mætti framkvæmdum
við að stækka og breyta skipulagi
í flugstöðinni til að halda í við far-
þegafjölgunina. Gert sé ráð fyrir
að fjárfesta á alls fjórða milljarð
króna í stækkun, breytingum og
betri aðbúnaði fyrir farþega og
flugrekstraraðila á árunum 2004
og 2005 - án þess að álögur á far-
þega og flugrekendur hafi verið
auknar. „Starfsfólki við flugstöð-
ina og tengdra aðila mun fjölga
um 50% á næstu árum. Í dag er
fjöldi starfsfólks við stöðina og
aðila tengdri henni á svæðinu um
1800 manns. Á þessu sést að á
næstu árum munu verða miklar
breytingar á stöðinni,” sagði Hösk-
uldur í samtali við Víkurfréttir.
Reykjanesbær mun áfram niðurgreiða vistun hjá dagmæðr-
um með sama hætti og áður
og fyrirhuguð skerðing á
niðurgreiðslum tekur ekki
gildi.
„Ég við ur kenni að þessi
ákvörðun okkar var ekki í
anda þeirrar miklu uppbygg-
ingar í þágu fjölskyldunnar
sem við viljum standa fyrir
og við viljum því leiðrétta
hana. Við höfum ákveðið að
verða við óskum foreldra og
verðandi foreldra og halda
áfram niðurgreiðslum með
sama hætti og var fyrir ára-
mót. Fyrirhuguð breyting
gengur því ekki í gildi“, segir
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar í grein sem
hann ritar í Víkurfréttir í
dag.
Láta undan
þrýstingi
foreldra
- dagmæðrapláss niðurgreidd
Hundruð nýrra starfa
á Keflavíkurflugvelli
Reykjanesbær og SBK, sem annast almenningssam-göngur til og frá höf uð-
borgarsvæðinu, hafa gert með sér
samkomulag um að SBK bjóði
námsmönnum sem nema utan
svæðis 50% afslátt af fargjöldum.
Miðað við fullt gjald og daglega
notkun vagnanna getur afsláttur-
inn numið um 35 þúsund krónum
á mánuði.
Með þessu tilboði hyggst SBK auka
nýtingu vagnanna og Reykjanesbær
hyggst koma til móts við nemendur
sem eru í skóla utan svæðis. Þeir
eiga með þessu kost á að ferðast
á milli með hagkvæmum hætti.
Þannig er komið til móts við at-
hugasemdir um alla niðurfellingu
styrkja til einstaklinga sem nema
utan svæðis. - Sjá einnig á vf.is
Nemendur fá 50%
afslátt hjá SBK
Gert sé ráð fyrir að fjárfesta á alls fjórða milljarð króna í stækkun,
breytingum og betri aðbúnaði fyrir farþega og flugrekstraraðila á
árunum 2004 og 2005 - án þess að álögur á farþega og
flugrekendur hafi verið auknar.