Víkurfréttir - 13.01.2005, Qupperneq 20
20 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
öKASSINNPÓST
Aðsendar greinar berist til: postur@vf.is
Fjölskyldumál
8 Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar, skrifar:
Öflug uppbygging í erfiðu
atvinnuárferði
Fram á haust mán uði 2004
höfðu Reyknesingar þurft að
horfast í augu
við umtalsvert
atvinnuleysi sl.
3 ár. Snörpum
a t l ö g u m a ð
s t ö r f u m h j á
Varn ar lið inu
og sam drætti
í verktakaþjón-
ustu og sjávarútvegi varð að
svara með öflugri uppbyggingu
á öðrum sviðum sem skapaði
tímabundin störf. Um leið var
búið í haginn fyrir Reykjanesbæ.
Miklar framkvæmdir hafa verið
í uppbyggingu innviða samfé-
lags okkar á undanförnum
árum. Uppbygging Iðngarð-
anna í Helguvík, sjóvarnir með
allri strandlengjunni, nýbygging
grunnskóla, algjör endurnýjun
Hafnargötunnar, endurbætur og
stækkanir leikskóla, endurbætur
íþróttamiðstöðvar í Njarðvík,
gróðursetning og bættur frá-
gangur í hverfum hafa m.a. ein-
kennt framkvæmdir bæjarins.
Allt eru þetta fjölskyldumál,
ekki aðeins vegna þess að þau
skapa tekjur fyrir fjölskyldufólk
heldur vegna þess að þau búa
í haginn fyrir betri tíð í Reykja-
nesbæ. Þó vil ég sérstaklega
nefna endurbætur og stækkanir
leikskóla, öflugt átak í umferð-
aröryggismálum, byggingu
nýs grunnskóla, fríar almenn-
ingssamgöngur, frístundaskóla
fyrir 6-10 ára börn og styrkingu
við íþróttastarf yngstu aldurs-
hópanna. Nú er verið að leggja
grunn að innanhússlaug fyrir
skólasund tveggja grunnskóla,
keppnislaug fyrir íþróttafólkið
okkar og vatnagarði fyrir yngstu
börnin, allt í einni snilldarlega
samþættri byggingu við Sunnu-
braut.
Það hef ur ver ið mik il vægt
að standa að uppbyggingu á
meðan verulega dró úr atvinnu-
verk efn um ann ars stað ar.
Þannig hafa framkvæmdir bæj-
arins undanfarin ár stuðlað að
jafnara atvinnustigi og nú eru
einkaaðilar að taka við sér. Það
er að gerast svo um munar í
Tjarnahverfi og víðar við lífæð-
ina okkar eftir Njarðarbraut og
Hafnargötu. Stækkun Flugstöðv-
arinnar, Íþróttaakademían og
Reykjanesvirkjun eru dæmi um
slíkt framtak.
Tækifæri til hagræðingar
Með öflugu átaki í verkefnum
bæjarins, höfum við náð að
ljúka ýmsum viðhaldsverk-
efnum sem löngu voru tíma-
bær, s.s. við endurnýjun gatna,
gangstíga og bætts umhverfis í
nýjum sem eldri hverfum. Þess
vegna er tækifæri nú í fjárhagsá-
ætlun ársins 2005 að draga stór-
lega úr slíkum framkvæmdum
og þar er lang stærsti kostnaðar-
liðurinn sem dregið er úr.
Þegar atvinnutækifærin eru fleiri
eru einnig tækifæri til að ganga
fastar fram í hagræðingu innra
starfs Reykjanesbæjar. Það er
skylda okkar að leita alltaf leiða
til að gera hlutina hagkvæmar.
Þegar launakostnaður er 70% af
heildarkostnaði er ekki hjá því
komist að hagræðing þýðir að
störfum fækkar. Þannig höfum
við hafið hagræðingaraðgerðir
í stjórnkerfinu hvort sem er í fé-
lagsþjónustunni, á fræðslusviði,
hjá menningar- íþrótta- og tóm-
stundasviði og hjá fjármála og
stjórnsýslusviði. Markmiðið
er að vinna verkin hagkvæmar
án þess að kjarni þjónustunnar
skerðist.
Ákvörðun um niðurfell-
ingu styrkja til foreldra
yngstu barna
Hluti þess sem við erum að
breyta og hagræða tengist fyr-
irkomulagi niðurgreiðslu til
dagmæðra fyrir börn undir
leikskólaaldri og afnámi nið-
urgreiðslna til hóps foreldra
sem nutu þeirra áður. Þessi
ákvörðun hefur vakið reiði og
óánægju margra foreldra og
verðandi foreldra. Þeim finnst
þessi ákvörðun ekki vera í okkar
anda sem höfum hag fjölskyldu-
fólks að leiðarljósi. Bent er á að
með öflugum stuðningi við fjöl-
skyldufólk í leikskólum, grunn-
skóla, frístundaskóla, íþróttum
og almenningsvagnaþjónustu,
standi ákveðinn aldurshópur
barna nánast útundan í stuðn-
ingi. Þetta er tímabil frá lokum
fæðingarorlofs til uppphafs
leikskólagöngu. Þessi ábending
er rétt að mínu mati. Ég er
þeirrar skoðunar að þar sem
þessi aldurshópur þarf, aldurs-
ins vegna, á nánari þjónustu að
halda en eftir 2 ára aldur, eigi
hann að fá meiri stuðning rík-
isins í gegnum auknar barna-
bætur. En á meðan svo er ekki,
þykir okkur sjálfstæðismönnum
í Reykjanesbæ eðlilegt að endur-
skoða ákvörðun okkar um breyt-
ingar á niðurgreiðslu til þessa
aldurshóps. Ég viðurkenni að
þessi ákvörðun okkar var ekki
í anda þeirrar miklu uppbygg-
ingar í þágu fjölskyldunnar sem
við viljum standa fyrir og við
viljum því leiðrétta hana. Við
höfum ákveðið að verða við
óskum foreldra og verðandi
foreldra og halda áfram niður-
greiðslum með sama hætti og
var fyrir áramót. Fyrirhuguð
breyting gengur því ekki í gildi.
Foreldrar með mjög skertar
tekjur geta þó áfram leitað eftir
stuðningi fjölskyldu- og félags-
þjónustunnar.
Til að mæta þessari ákvörðun
verður gengið fastar fram í hag-
ræðingu á yfirstjórn bæjarins.
Við munum hins vegar ganga
eftir því að stuðningur við ald-
urshópinn undir 2 ára aldri fái
sérstaka skoðun hjá þingi og rík-
isstjórn.
Með kveðju,
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Miðvikudaginn 19. janúar kl. 20 verður Alfa-námskeið haldið í safnaðarheimil-inu Sæborgu í Garði og hefst það með
sérstöku kynningarkvöldi. Námskeiðinu verður
síðan framhaldið á miðvikudagskvöldum og
stendur í 10 vikur. Þetta er fjórða árið sem Alfa-
námskeið eru haldin hér í prestakallinu og hefur
þátttaka verið sérstaklega góð. Þátttaka á kynn-
ingarkvöldinu felur ekki í sér skuldbindingu um
að sækja námskeiðið sjálft.
Alfa eru skemmtileg og lifandi námskeið um
kristna trú. Námskeiðin byggjast upp á sameigin-
legri máltíð, fyrirlestri, umræðum og stuttri sam-
veru. Þau henta vel fyrir þá sem vilja kynna sér
kristindóminn og heilaga ritningu á skemmtilegan
og áhrifaríkan hátt. Alfa er fyrsti stafurinn í gríska
stafrófinu og er námskeiðið um undirstöðuatriði
kristinnar trúar. Reynt er að hafa námskeiðið í
notalegu og afslöppuðu umhverfi.
Alfa námskeið eru nú haldin í flestum kristnum
kirkjudeildum í yfir 130 löndum um allan heim.
Alfa hefur vakið verðuga athygli og hafa nokkrar
milljónir manna sótt námskeiðin frá upphafi.
Alfa námskeið í Garðinum