Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.04.2005, Qupperneq 6

Víkurfréttir - 28.04.2005, Qupperneq 6
6 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 1b 230 Reykjanesbær Sími 421 6554 Fjölmenni var á opnun listasýningar Elísabetar Ásberg í Kaffitári á laug- ardag. Sýningin, sem ber yfirskriftina „Flæði”, hefur að geyma nýjustu verk listakonunnar og var ekki annað að sjá en að gestir virtust afar hrifnir af verkunum. Boðið var upp á léttar veitingar og lék Marion Herrera ljúfa tóna á hörpuna fyrir gesti. Myndasafn frá sýningunni má sjá á vefsíðu Víkurfrétta www. vf.is 8 Listir og menning: Elísabet Ásberg sýnir í Kaffitári Sýningu listakonunnar Fríðu Rögnvalds-dóttur í sýningarsal Saltfisksetursins lauk um helgina og er óhætt að segja að sýn- ingin hafi hlotið góðar viðtökur. Erlendir gestir, sem fjölmenna í Salfisksetrið hafa farið fögrum orðum um verkin, en Fríða vinnur sínar myndir í steypu með margvíslegri útfærslu. Á nokkrum myndanna notaði hún m.a. laxaroð og kemur það skemmtilega út. Fríða var sjálf ánægð og voru margir rauðir punktar við myndirnar sem þýðir góða sölu. Margir rauðir punktar hjá Fríðu

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.