Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.11.2005, Qupperneq 11

Víkurfréttir - 17.11.2005, Qupperneq 11
VÍKURFRÉTTIR I 46. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 17. NÓVEMBER 2005 I 11 VÍKURFRÉTTIR VOGAR Steyp an, nýtt hús næði fyrir ungar og upprenn-andi hljómsveitir í Reykja- nesbæ, var formlega tekinn í gagnið í vikunni. Hljómsveita- húsnæði hefur lengi verið af skornum skammti í Reykja- nesbæ, en Sparisjóðurinn í Keflavík brást vel við óskum 88 Hússins um að fá að nota hús- næðið við gömlu steypustöð- ina að Fitjum. Þar eru nú tvö herbergi fyrir hljómsveitir. Síðustu vikur hafa meðlimir hljómsveitanna Ritz og Gun Shy unnið að því að koma húsnæð- inu í stand og var ekki annað að sjá en að þeim hafi tekist vel til. Við athöfnina í gær afhenti Árni Sigfússon, bæjarstjóri, hljóm- sveitarmeðlimum forláta grip sem nemendur á starfsbraut í FS gerðu af þessu tilefni. Að lokinni athöfn tóku hljóm- sveitirnar lagið saman fyrir gesti og loks var boðið upp á kaffi og kleinur. Í samtali við Víkurfréttir sögðu meðlimir hljómsveitanna, sem eru á aldrinum 16-17 ára, að mikill munur væri á að vera með aðstöðu í Steypunni og að vera í heimahúsi eins og þeir hafa verið hingað til. „Það var alltaf verið að kvarta yfir hávaða og svoleiðis, en hér erum við útaf fyrir okkur. Aðstaðan hérna er flott og við erum með ísskáp og samlokugrill. Það er toppur- inn.” sögðu þessir hressu hljóm- sveitarstrákar og hlógu. Hafþór Barði Birgisson, for- stöðumaður 88 Hússins, sagði að alltaf væri þörf á æfingahús- næði og vill hann benda þeim sem hafa slíkt húsnæði á lausu á að hafa samband. Gamla steypustöðin á Fitjum fær nýtt hlutverk: Ný og glæsileg aðstaða fyrir hljómsveitir Geirmundur Kristinsson, Sparisjóðsstjóri ásamt fulltrúum drengjanna sem leika í húsinu. Bjarni, söngvari Ritz, í nettri sveiflu.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.