Víkurfréttir - 09.01.2014, Qupperneq 5
við Rannsókn og greiningu að úttekt á stöðu barna
og unglinga í samfélaginu.
• Á árinu 2014 viljum við styrkja barna- og fræðslu-
starf enn frekar og m.a. koma upp fjölskyldusetri í
gamla barnaskólahúsinu við Skólaveg.
• Barnahátíðin, með Listahátíð barna í forsæti,
verður enn stærri og öflugri á þessu ári með
sterkari tilkomu grunnskólanna. Sífellt stækkandi
hátíð sem er einstök á landsvísu.
• Áfram verður stuðningur við verkefni tengd
endurhæfingu og þjálfun fyrir ungt fólk í vanda.
• Þetta ár mun m.a. einkennast af því að við höldum
áfram að bæta skólastarfið og styrkja innviði
menntunar.
• Lögð verður áhersla á að bæta kennslubúnað í
skólum. Í fyrra var starfshlutfall tölvuumsjónar-
manna í grunnskólum aukið. Ipad-væðingin hefur
hafið innreið sína í grunnskóla Reykjanesbæjar
og nú fær heill árgangur slíkan búnað, auk kennara.
Þessu verður fylgt vel eftir með kennslufræði-
legum stuðningi.
• Í fyrra var kennslustofum bætt við Akurskóla og
leikskólann Holt og á þessu ári munum við stækka
aðstöðuna á Holti og Heiðarseli og laga bíla-
stæðin þar. Einnig verður farið í breytingar innan-
húss á leikskólanum Tjarnarseli.
• Framlög til Íþróttasjóðs voru nær tvöfölduð í fyrra
en þar skipti mestu um 50% hækkun á þjálfara-
styrk sem ætlað er að tryggja vel menntaða
þjálfara í þágu barna- og unglingastarfs íþrótta-
félaganna. Nú bætum við enn um betur með
15 milljón kr. stuðningi við innra starf
íþróttafélaganna.
• Tómstundasjóður hefur verið efldur til að geta
gert samninga á ný við tómstundafélög.
• Til viðbótar við aðra beina styrki til íþrótta- og
tómstundafélaga, voru hvatagreiðslur teknar
upp að nýju í fyrra og bjóðast nú í haust. Þar gefst
foreldrum barna og unglinga færi á að nýta
ákveðna upphæð til niðurgreiðslu fyrir börnin á
íþrótta,- list- eða tómstundagrein að eigin vali.
• Hljómahöllin opnar snemma á þessu ári.
Fjölmennasti tónlistarskóli landsins fær umgjörð
við hæfi í tónlistarbænum. Poppminjasafn Íslands
mun taka á móti erlendum og innlendum gestum
með einstakri sýningu sem segir sögu tónlistar í
poppbænum og sögu íslenskrar tónlistar, um
leið og hún er tengd við erlenda tónlistarsögu.
Hljómahöllin verður tónlistar- og menningarhús
með fjölda tækifæra í menningartengdri atvinnu-
sköpun s.s. ráðstefnum, tónleikahaldi o.fl. Okkar
góða félagsheimili Stapinn styður vel
við möguleikana.
• Fimm skemmtilegar og áhugaverðar
sýningar eru áætlaðar hjá Listasafninu í
ár og eru þær m.a. settar upp fyrir utan-
aðkomandi styrki.
• Áframhaldandi stuðningur verður við 20
menningarhópa og -félög í bæjarfélag-
inu. Æfingahúsnæði og vinnustofur eru
boðin gegn vægri leigu og viðburðum á
Ljósanótt.
• List án landamæra, listverkefni þar sem
fatlaðir og ófatlaðir koma saman, verður
enn stærra og skemmtilegra nú á nýju ári.
• Nýjar og áhugaverðar sýningar og við-
burðir verða í Duushúsum, tengdir sögu, myndlist
og tónlist sem eiga að stuðla að fjölgun gesta.
• Allir textar við sýningarnar í Víkingaheimum verða
komnir á a.m.k. fjögur tungumál á árinu. Erlendum
gestum fjölgar þar stöðugt. Þetta ætti að hvetja til
komu fleiri erlendra gesta.
• Með allri þessari menningarstarfsemi er Reykja-
nesbær markaðssettur enn frekar sem jákvætt
bæjarfélag sem býður fólki með fjölbreytta
menntun að setjast hér að.
• Saga svæðisins er okkur hugleikin og í tilefni
20 ára afmælis Reykjanesbæjar opnum við
sýningu um sögu bæjarins á miðlofti Bryggjuhúss