Víkurfréttir - 09.01.2014, Blaðsíða 10
fimmtudagurinn 9. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR10
-fréttir
Grindavík:
Hækka niður-
greiðslur vegna
dagforeldra-
þjónustu
uBæjarstjórn Grindavíkur
hefur samþykkt að hækka niður-
greiðslur vegna dagforeldra-
þjónustu frá og með 1. janúar
nk. Almenn niðurgreiðsla
hækkar úr 30.000 kr. í 40.000
kr. á mánuði og niðurgreiðsla
fyrir einstæða foreldra úr 33.000
kr. í 44.000 kr. á mánuði.
Í bókun bæjarstjórnar kemur
fram að gjaldskrá dagforeldra er
frjáls og kemur niðurgreiðslan
til lækkunar á þeirra gjaldskrá.
Bæjarstjórn hvetur dagforeldra
til að gæta hófs í hækkun á gjald-
skrám sínum samfara hækkun
sveitarfélagsins á niðurgreiðslu
vegna þjónustu dagforeldra.
Grindavík:
Þorbjörn
fækkar frysti-
togurum
uÞorbjörn hf. í Grindavík
vinnur nú að endurskipulagningu
útgerðar frystitogara sinna. Einn
þeirra verður lengdur og honum
breytt og útgerð annars verður
hætt. Vegna breytinganna hefur
áhöfnum skipanna verið kynnt
nýtt skipulag útgerðar þeirra.
Endurskipulagningin leiðir til
uppsagna áhafna og endur-
ráðningar, vegna breyttrar út-
gerðar. Langflestir verða endur-
ráðnir og verða tvær áhafnir á
hvoru skipi eftir að breytingarnar
hafa gengið yfir. Þá hefur fyrir-
tækið verið að auka vinnslu í
landi verulega en hún hefur nær
tvöfaldast á fjórum árum. Það
er kvotinn.is, vefur um sjávarút-
vegsmál, sem greinir frá þessu.
„Verið er að hanna lengingu og
breytingar á frystitogaranum
Hrafni Sveinbjarnasyni og verður
verkið væntanlega boðið út á
næstunni,“ segir Eiríkur Tómas-
son, framkvæmdastjóri Þor-
bjarnar í samtali við kvotinn.is
Sandgerðingar
komast í gufu og
sund alla daga
u Gufubaðið í Íþróttamiðstöð
Sandgerðis hefur opnað á nýjan
leik eftir gagngerar endurbætur en
endurbætur hafa staðið yfir síðustu
vikur.
Sandgerðisbær ætlar á árinu að efla
lýðheilsu í bæjarfélaginu og einn
liður í því er að hafa sundlaugina
opna alla daga ársins. Hún hefur
verið lokuð á sunnudögum en er nú
opin frá kl. 10-16 um helgar. Opn-
unartími virka daga er eins og áður.
Skýjafar við Útskálakirkju var viðfangsefni Guðmundar
Sigurðssonar, lögreglumanns úr
Garðinum, þegar hann tók sigur-
myndina í ljósmyndasamkeppni
Sveitarfélagsins Garðs. Efnt var
til keppninnar á haustmánuðum
en tilkynnt var um úrslitin á dög-
unum.
Sérstök dómnefnd skipuð af
sveitarfélaginu fór yfir myndirnar
sem bárust í keppnina. Dómnefnd-
ina skipuðu þau Hildur Ágústs-
dóttir, Bragi Einarsson og Hilmar
Bragi Bárðarson, sem jafnframt var
formaður dómnefndar.
Sveitarfélagið Garður efndi til
ljósmyndasamkeppni þar sem
viðfangsefnið er Garðurinn, um-
hverfið og mannlífið. Fjölmargar
myndir bárust og kom það dóm-
nefnd skemmtilega á óvart að
myndefnið var fjölbreytt.
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í
Garði, afhenti Guðmundi sigur-
launin þann 30. desember sl. en
fyrir sigurmyndina fékk Guð-
mundur myndarlega úttekt í
ljósmyndavöruverslun þar sem
hann getur örugglega endurnýjað
myndavélina sína eða keypt sér
nýjar linsur í ljósmyndatöskuna.
Guðmundur er mikill áhugamaður
um ljósmyndun og er duglegur að
fanga augnablikin í mannlífinu í
Garðinum.
Ljósmyndarar og áhugafólk um
ljósmyndun er einnig hvatt til að
halda áfram að fanga mannlífið og
n Ljósmyndasamkeppni Sveitarfélagsins Garðs:
Skýin við Útskála á sigurmynd
Magnús Stefánsson, bæjar-
stjóri í Garði, afhenti Guðmundi
sigurlaunin.
náttúruna í Garði á myndir því ef-
laust verður aftur boðað til keppni
um bestu myndina úr Garði á nýju
ári.
Íbúar Reykjanesbæjar hafa nú aukna möguleika á að hafa
áhrif á málefni og rekstur bæjar-
félagsins bæði með nýjum íbúa-
vef, þar sem leggja má inn hug-
myndir og ábendingavef þar sem
benda má á umbætur í hverfum.
Árni Sigfússon bæjarstjóri segir
íbúa hafa verið duglega að leggja
fram hugmyndir á árlegum íbúa-
fundum og oft og tíðum hafi þær
hugmyndir ratað inn í stjórn-
sýsluna, t.d. framtíðarsýn. „Með
íbúavefnum skapast vettvangur
til að leggja inn hugmyndir og
móta í félagi við aðra íbúa. Vin-
sælar og vel unnar hugmyndir
eiga möguleika á að komast í
framkvæmd,“ sagði Árni.
Innlögn hugmynda
Á vefnum „Íbúavefur – íbúar til
áhrifa“ gefst íbúum kostur á að
leggja fram hugmyndir um öll
mál tengd samfélaginu, fá um þau
umræðu á meðal íbúa og koma
til framkvæmdar fái hugmyndin
sterkan hljómgrunn á meðal íbúa.
Lögð er áhersla á að vefurinn er
ekki beintengdur stjórnsýslu
bæjarins, heldur er ætlast til að
hver einstaklingur leggi fram hug-
mynd og fái um hana umræðu á
meðal íbúa sem geta gefið henni
nokkurs konar einkunn. Um-
sjónarmaður vefjar sér þá um að
koma ábendingum til bæjarins,
bæjarstjóra, nefnda og ráða, ef
hugmyndin hefur fengið sterkan
hljómgrunn og samstöðu á meðal
bæjarbúa sjálfra. „Þetta er einfalt.
Þú skáir þig inn á íbúavefinn, getur
á einfaldan hátt samþykkt eða
hafnað hugmynd sem hefur verið
lögð fram, eða þú getur komið með
nýja hugmynd og leitað álits íbúa á
henni,“ sagði Árni. Slóðin er rnb.
ibuavefur.is.
Að sögn Árna tekur íbúavefurinn
mið af þeim tilraunum sem hafa
verið gerðar á þessu sviði í íslensku
samfélagi um aukið íbúalýðræði,
t.d. hjá stærsta sveitarfélaginu,
Reykjavík og hjá einu af þeim
minni, Rangárþingi Eystra. „Við
höfum dregið fram kosti þessara
vefja og reynt að afnema ókostina
sem komið hafa fram. Fyrirtækið
Hugveitan hefur unnið gerð vefjar-
ins, undir yfirstjórn Guðmundar
Sæmundssonar, en hann hefur
unnið lengi að þróun sambæri-
legs verkefnis fyrir Rangárþing
Eystra og stundað rannsóknir og
nám á þessu sviði. Umsjónarmaður
vefjarins er Svanhildur Eiríksdóttir
stjórnsýslufræðingur, en hún vann
meistararitgerð sína í opinberri
stjórnsýslu um úttekt á íbúavef
Reykjavíkurborgar, Betri Reykja-
vík,“ sagði Árni.
Kippa í lag!
Samhliða útgáfu nýja íbúavefjar-
ins hefur nýr vefur verið settur í
loftið, sem er ábendingavefur um
umbætur í umhverfismálum, hluti
sem íbúi óskar eftir að sé „kippt í
lag“ í sínu nánasta umhverfi. „Sá
sem ritar ábendingu um umhverf-
isbætur, getur merkt inn staðsetn-
ingu verkefnisins á kort en skila-
boðin berast beint til umhverfis-
og skipulagssviðs, sem tekur við
henni og vinnur úr,“ sagði Árni.
Slóð ábendingavefjarins er map.is/
dvergur/clients/ath_rnb.
Margar leiðir til
Reykjanesbæjar
Að sögn Árna geta íbúar nú nálgast
bæinn í gegnum fjórar vefsíður
sem eru samtengdar bænum á mis-
munandi hátt, auk annarra leiða,
s.s. í viðtalstímum, tölvupósti og
á íbúafundum „Auk nýja íbúa-
vefjarins og ábendingavefjarins
getur íbúi farið á „Mitt Reykjanes“
þar sem haldið er utan um læstar
upplýsingar íbúans um fasteigna-
gjöld, umönnunargreiðslur o.fl. og
íbúi getur sent formleg erindi til
stjórnsýslunnar. Fjórði vefurinn er
upplýsingavefurinn, þ.e. heima-
síða Reykjanesbæjar. Vefirnir fjórir
eru tengdir saman með sams-
konar vegvísi, sem einfaldar íbúum
notkun vefjanna. Sjón er sögu rík-
ari,“ sagði Árni Sigfússon bæjar-
stjóri að lokum.
Vefirnir fjórir hafa allir samskonar vegvísa efst í hægra horni. Þessi vegvísir
birtist á ábendingavefnum, en þrír mismunandi vefir birtast allt eftir því á
hvaða vef íbúi er staddur þegar hann opnar vegvísinn.
- Reykjanesbær hefur opnað tvo nýja íbúavefi
Íbúar til áhrifa!