Víkurfréttir - 09.01.2014, Blaðsíða 12
fimmtudagurinn 9. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR12
Eitt stærsta sjónvarpsverkefni síðustu ára hér á landi, The Biggest Loser Ísland, var tekið upp á Ásbrú og
víðar á Suðurnesjum nú í haust og vetur. Sýning þáttanna
hefst á SkjáEinum þann 23. janúar nk. en þættirnir verða
sýndir á fimmtudagskvöldum í vetur. Á meðal keppenda
í þáttunum er Eyþór Árni Úlfarsson, 34 ára, frá Reykja-
nesbæ.
Eyþór Árni hefur glímt við allmörg aukakíló í mörg ár.
Þegar hann hóf þátttöku í The Biggest Loser Ísland sýndi
vigtin 249 kíló. „Ég var búinn að vera alltof feitur í mörg,
mörg ár og stærð vandamálsins var öllum öðrum ljós en
sjálfum mér,“ segir Eyþór í samtali við Víkurfréttir.
„Þrátt fyrir mikla afneitun í mörg ár á eigin
ástandi þá var ég farinn að vera hræddur
um sjálfan mig og hvort ég myndi ná
þeim áfanga að verða fertugur, en ég
er að verða 35 ára í mars. Eins og
ég lifði lífinu, þá er ég ekkert viss
um að ég hefði náð svo langt
með sama áframhaldi“.
- Hvernig hafði þetta líf
verið?
„Það var voðalega mikið
að hanga í sófanum og
éta snakk. Ég át það sem
mér sýndist og gerði ná-
kvæmlega ekki neitt til að
hreyfa mig eða brenna. Ég
er öryrki í dag og hef ekki
getað unnið neina vinnu í
mörg ár út af eigin líkams-
ástandi“.
- Hvenær á lífsleiðinni
gerðist þetta, að þú fitn-
aðir svona?
„Ég minnist þess ekki að
hafa verið eðlilegur. Ég var
mjög ungur þegar ég byrjaði
að borða mér til huggunar. Mér var
strítt mikið sem krakka og ég var lítill í
mér. Ég kunni ekki að standa upp fyrir
sjálfum mér eða mínum rétti. Ég komst
hratt upp á það sem barn að borða mér
til huggunar og láta mér líða vel með að
borða. Ég kem líka af heimili þar sem
er eldaður góður matur og mér fannst
gaman að borða. Ofan á þetta bættist
að ég var mjög gefinn fyrir sætindi. Ég
var ekki nema 15 ára gamall þegar ég
var orðinn 100 kíló. Ég hef oft verið
spurður; Hvað ertu þungur? Ertu 160
kíló? Ég hélt hins vegar að fólk væri að
grínast í mér, því ég var 160 kíló fyrir
tvítugt.
Vandinn hélt áfram að aukast og þetta
hlóð utan á sig. Ég hafði gaman af
því að djamma mikið og það er mjög
fitandi. Ég datt svo bara í afneitunar-
pakka og hætti að hugsa um sjálfan
mig,“ segir Eyþór.
Vigt fyrir þyngri en
200 kg vandfundin
- Hvenær náðir þú botninum?
„Í mörg ár hætti ég að fylgjast með
vigt sem er kannski skiljanlegt því það er mjög erfitt að finna
vigt fyrir yfir 200 kg mann. Það er til vigt sem fer upp í 200
kg en vigt sem á að taka meiri þyngd er
vandfundin“.
- Hafðir þú gert eitthvað áður til að taka
á þínum málum?
„Í seinni tíð gerði ég tilraunir til að
komast inn á Reykjalund og svoleiðis
staði en það var aðallega vegna þess að
annað fólk vildi að ég leitaði þangað.
Ég hafði ekki mikinn áhuga á því
sjálfur. Mig hefur alltaf skort áhuga á
að gera eitthvað fyrir eigin heilsu og
stíga skref í þá átt. Ég er með þá
áráttu að ýta hlutunum á
undan mér, frestunarár-
áttu eins og margir
aðrir. Ég var alltaf
á leiðinni að gera
þetta bara seinna.
Svo gerðist það að
auglýst var eftir
þátttakendum
í The Biggest
Loser Ísland.
V a l d i m a r
frændi minn
bent i mér á
a u g l ý s i n g u
eftir þátttak-
e ndu m e n í
fyrstu fannst
mér þetta bara
vera kjánalegt.
É g hu g s a ð i ;
þetta er eitt-
hvað asnalegt.
K a n n s k i v a r
ástæðan sú, að
með því að taka þátt í
svona verkefni, þá þýddi það
rosalega mikla breytingu sem ég
var ekki alveg tilbúinn í.
Valdimar byrjaði á að senda inn
umsókn fyrir mig og hótaði jafn-
framt að hætta að tala við mig ef
ég tæki ekki þátt í þessu og myndi
ekki sækja sjálfur um í þáttunum.
Mamma sendi einnig inn umsókn og
allir í kringum mig urðu uppveðraðir
og hvöttu mig til þátttöku.
Ég hugsaði málið í tvo eða þrjá daga
og áttaði mig þá á að þetta fólk í
kringum mig er að gera þetta út af
ást og það hefur áhyggjur af mér, að
ég hrökkvi bara upp af einn daginn.
Ég hugsaði með mér; ok, látum slag
standa og sjáum hvað gerist“.
Valinn úr hópi 1300 umsækjenda
Eyþór segist fljótlega hafa fengið svör
frá stjórnendum þáttarins þar sem
hann var beðinn um ítarlegri upp-
lýsingar um sig og sín vandamál.
„Ég var síðan tekin í nokkur við-
töl og þá fór ég að verða spenntari fyrir þessu og allri þessari
hugmynd,“ segir hann.
„Ég hef oft lagt af stað í einhverja hreyfingu, en það endist
ekki venjulega lengi. Það er af því að það tekur ákveðinn tíma
að venja sig á nýja lífshætti. Ég hugsaði með mér að ég væri
að fara í tökur í tíu vikur og í strangt aðhald í 4-5 mánuði, því
það er keppni ennþá í gangi. Ef það er tími til að breyta um
lífsstíl, þá er það þarna“.
„Þegar ég fékk að vita það að ég hefði verið samþykktur inn
í þáttinn og það hefðu verið 1300 manns sem sóttu um að
komast í þáttinn, þá fór ég að skilja alvarleikann og hvað
þetta er mikil ábyrgð. Ég áttaði mig líka á því að ég var búinn
að mála sjálfan mig út í horn og gat heldur ekkert stigið út ef
þetta fór að vera eitthvað erfitt“.
Hefur snúið við eigin lífsstíl
Eyþór segir það ákveðinn létti að vita það að hann gæti ekki
bakkað út úr þessu sjónvarpsverkefni. „Ég er að fara að koma
fram í sjónvarpi og verð landsþekktur. Ég er búinn að setja
pressu á sjálfan mig og nú þýðir ekkert að labba bara inn í
næstu ísbúð. Ég kann ekkert við að enda á forsíðu Séð og
heyrt, gripinn glóðvolgur,“ segir Eyþór og brosir.
Það sem gerist í þáttunum má Eyþór ekki ræða í þessu viðtali.
Þátttaka í The Biggset Loser Ísland hefur hins vegar snúið við
lífsstíl Eyþórs og hann er farinn að takast á við hluti sem voru
honum óhugsandi fyrir nokkrum mánuðum.
„Ég er með haus sem vill ekki alltaf gera það sama og ég vil.
Á mánudaginn setti ég nýtt persónulegt met þegar ég synti
kílómetra í sundmiðstöðinni í Keflavík. Mér finnst ég einnig
vera kominn á bragðið með líkamsrækina og er farinn að þrá
þetta adrenalín-boost sem fylgir því að vera að æfa alveg eins
og vitleysingur. Þetta er örugglega besta fíkn sem til er“.
Ætla að verða 110 kg
„Ég er meðvitaður um að ég hef náð góðum árangri í að bæta
eigin heilsu og það finn ég á eigin líkama alla daga. Ég hef líka
sett mér markmið sem ég er að vinna að. Ég er með mörg lítil
markmið en ekki eitt stórt.
Mitt stærsta markmið er að komast niður í 110 kg. Ég held að
það fari mér vel, því ég er eðlislega mjög þungur. Til þess að
komast þangað þarf ég að losa mig við 140 kg af líkamsþyngd
og ég hef fulla trú á sjálfum mér í það verkefni“.
- Hvenær ætlar þú að ná þessum áfanga?
„Ég held að það verði ekki á árinu. Og þó, það gæti alveg
gerst. Ég er með einkaþjáfara sem leggur upp fyrir mig æf-
ingar. Ég stunda æfingar núna þrisvar á dag. Ég byrja daginn
á göngu í Reykjaneshöllinni. Um miðjan dag fer ég í sund og
síðdegis æfi ég með ketilbjöllur. Þetta er mjög gaman því það
er svo gott að sjá árangur“.
- Hvað langar þig að gera þegar þú hefur snúið lífinu við?
„Ég hef áhuga á félagsfræði og langar að klára að mennta mig
í þeim fræðum og jafnvel gerast svo kennari í framhaldinu.
Ég ætla hins vegar að gefa mér þetta ár til að bæta líkams-
ástandið og þá get ég farið út á vinnumarkaðinn að nýju.
Ég hef ávallt haft þá hugsun að gefast ekki upp og stoppa ekki.
Það skiptir miklu máli að halda áfram“
Forsýning á fyrsta þætti
Boðið verður upp á sérstaka forsýningu á fyrsta þætti The
Biggest Loser Ísland fyrir íbúa í Reykjanesbæ, Ásbrú og ná-
grenni í Andrews Theater, mánudaginn 13. janúar kl. 20:30.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm
leyfir.
Viðtal:
Hilmar Bragi Bárðarson / hilmar@vf.is
-viðtalið
Var 249 kg
og óttaðist dauðann
EYÞÓR ÁRNI ÚLFARSSON ER Í THE BIGGEST LOSER ÍSLAND