Víkurfréttir - 09.01.2014, Qupperneq 14
fimmtudagurinn 9. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR14
ANNO 2013
PLANKI ÁRSINS
Árið 2013 var ekki árið þar sem fólk hélt áfram að „planka“ og setja myndir af því á netið. Rússneskir
flugmenn sem voru við æfingar á Keflavíkurflugvelli í sumar ákváðu hins vegar að taka eins og einn
„planka“ á glænýrri þotu sem var til prófunar hér á landi. Mistök í flugstjórnarklefa urðu til þess að hjól
vélarinnar voru ekki niðri. Þetta er alvarlegasta flugatvik í sögu Keflavíkurflugvallar í mörg ár. Gert var
við vélina í flugskýli á flugvellinum og vélin yfirgaf svo landið í árslok.
BJÖRGUN ÁRSINS
Eitt mesta björgunarafrek ársins var unnið við Garðskaga á árinu. Þar fórst
þýsk skúta í vondu veðri. Tólf manns voru í áhöfn skútunnar, þar á meðal
nokkur börn. Björgunarsveitir af Suðurnesjum komu að björgunaraðgerðum
og björguðu þarna mörgum mannslífum við erfiðar aðstæður. Myndin var
tekin þegar skútan var í Keflavíkurhöfn í sumar.
VANDRÆÐI ÁRSINS
Tónlistarhátíðin Keflavik Music
Festival varð að einu risastóru
vandamáli þegar hver hljómsveitin
á fætur annarri neituðu að taka
þátt í hátíðinni fyrr en þær fengju
greitt fyrir þátttöku sína. Dagskráin
varð fyrir vikið mjög götótt og gestir
fengu ekki það sem þeir höfðu
greitt fyrir. Í árslok kom svo fram að
skipuleggjendur hátíðarinnar höfðu
tapað milljónum á ævintýrinu.
VAFASEMI ÁRSINS
Ferðalangar á bjargbrún Valahnjúks
vöktu athygli ljósmyndara Víkurf-
rétta á árinu. Fífldirfska sögðu sér-
fræðingar sem skoðuðu myndina og
bentu á að bjargið er laust í sér og
þarna er mikil slysahætta.
TÓNLISTARFÓLK ÁRSINS
Þau Nanna Bryndís og Brynjar, okkar fólk í hljómsveitinni Of Monsters And
Men, hélt áfram að gera það gott á árinu sem leið. Þau voru menn ársins á
Suðurnesjum árið 2012 og eru hér með viðurkenningarskjöl sem þau fengu
frá Víkurfréttum í ársbyrjun 2013.
AFMÆLISBARN ÁRSINS
Klemenz Sæmundsson er án efa afmælisbarn ársins 2013. Hann fagnaði
50 ára afmæli sínu með því að hjóla hringinn í kringum Íslands á örfáum
dögum og hlaupa svo 22,7 km. hlaup um Reykjanesbæ, Sandgerði og
Garð, sem kallast „Klemminn“. Með uppátækinu safnaði hann um milljón
krónum í gott málefni.
VEÐUR ÁRSINS
Síðasti vetur var alls ekki
harður en þó varð allt ófært
í einn dag eða tvo. Svo kom
sumarið... eða ekki. Það varð
eiginlega ekki sjáanlegur
munur á sumri og vetri á
Suðurnesjum. Gróðurinn varð
grænn en sólin lét ekki sjá sig
nema í mesta lagi þrjá daga,
eða fjóra. Þá klæddu menn sig í
stuttbuxur og fengu sér ís.
Aldursflokkameistaramót 2013 – Meistarar // Unglingameistaramót 2013 - Flestu verðlaun allra liða
Íslandsmeistaramót 25 2013 - Flestu verðlaun allra liða // Bikarkeppni 2013 - Sigurvegarar í kvennaflokki í 1. og 2. deild
Bikarkeppni 2013 - Annað sæti í karlaflokki í 1. deild // Unglingalandslið 2013 - Flestir sundmenn frá ÍRB
Hreysti, keppni, skemmtun, félagsskapur, öryggi, ferðalög, verðlaun, alþjóðlegt, styrkir til náms erlendis, Ólympíuleikar
Aðeins nokkrar ástæður til að skrá sig í ÍRB
Prufutímar/mat alla laugardaga í Vatnaveröld kl. 12:15-12:45
Vertu með
www.keflavik.is/sund - www.umfn.is/sund
Vertu vinur okkar á Facebook: Sundráð ÍRB
VERTU MEÐ Í BESTA ALDURS-
FLOKKAFÉLAGI LANDSINS!
ÖRSTUTTUR ANNÁLL Í MYNDUM OG MÁLI