Víkurfréttir - 09.01.2014, Síða 18
fimmtudagurinn 9. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR18
Félagsmönnum Kaupfélags Suðurnesja (KSK) hefur
fjölgað um 750 manns á árinu
2013.
Kaupfélag Suðurnesja gerði í
haust samstarfssamning við Ung-
mennafélag Njarðvíkur og Kefla-
vík, íþrótta- og ungmennafélag.
Knattspyrnufélagið Víðir í Garði
bættist síðar í hópinn. Samstarfs-
samningurinn miðaði að því að
íþróttafélögin afli félagsmanna í
KSK. KSK greiddi síðan félögunum
styrk fyrir hvern nýjan félaga.
Með félagsaðild sinni að KSK eru
félagsmenn í samvinnufélagi jafn-
framt eigendur og njóta afsláttar-
kjara og sértilboða í verslunum
Kaupfélags Suðurnesja. KSK er
stærsti eignaraðili Samkaupa hf
sem rekur Nettó, Kaskó, Samkaup
Úrval og Samkaup Strax. Samkaup
hf rekur 48 verslanir víðsvegar um
landið og er með höfuðstöðvar í
Reykjanesbæ.
Myndin er tekin í tilefni af uppgjöri
á samstarfsverkefni félaganna um
félagaöflun í KSK. Alls hafa um 750
manns gengið í Kaupfélag Suður-
nesja á árinu 2013.
Barnabörnin tóku
við Lionsbílnum
Aðalvinningurinn í happdrætti Lionsklúbbs Njarðvíkur var af-hentur nýverið. Vinningurinn, Fiat 500 POP að andvirði 2.590.000
kr., kom á miða númer 56. Eigandi miðans er Þorsteinn Erlingsson í
Keflavík. Barnabörn hans mættu til að taka við bílnum fyrir hönd afa
síns.
Þá voru einnig dregnar út nokkrar IdeaPad spjaldtölvur frá Lenovo. Þær
komu á eftirtalin númer: 477, 995, 176, 207, 157, 1382, 341, 693, 141, 969,
254, 616, 453. Vinningsnúmer eru birt með fyrirvara um villur.
Frá hægri: Skúli Skúlason formaður Kaupfélags Suðurnesja, Sólveig Einarsdóttir starfsmaður KSK, Jón R Ástþórs-
son frá knattspyrnudeild Víðis Garði, Þórunn Friðriksdóttir formaður UMFN, Einar Haraldsson formaður Keflavíkur
og Ómar Valdimarsson kaupfélagsstjóri.
750 nýir félagsmenn í KSK
AÐALFUNDUR
MÁNA
Frammhalds aðalfundur Hestamannafélagsins Mána
verður haldin miðvikudaginn 22. janúar
í félagsheimili Mána kl.20:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Stjórn Mána
KJARASAMNINGAR
2014
Félagsfundur verður haldinn í sal Verslunarmannafélags
Suðurnesja, mánudaginn 13. janúar nk. kl. 19:00.
Fundarefni:
Kynning á nýgerðum kjarasamningi.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
ATH: Gildistaka nýs kjarasamnings er háð samþykkt félags-
manna og gildir hann um aðalakjarasamning og alla
sérkjarasaminga tengda honum.
Stjórn VS
LAGNAÞJÓNUSTA
SUÐURNESJA EHF
Óskar eftir að ráða pípulagningarmeistara,
svein eða mann vanan pípulögnum sem fyrst.
Vinsamlega sendið umsóknir á netfangið:
lagnaths@simnet.is
-fréttir