Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.03.2014, Blaðsíða 20

Víkurfréttir - 20.03.2014, Blaðsíða 20
fimmtudagurinn 20. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR20 „Fólk hringir hingað af ýmsum ástæðum, ekki bara vegna neyslu. Það er jafnvel ofbeldi á heimili eða óregla á foreldrum. Ákvarð- anatakan um að hringja er erfið hjá fólki, hvort sem um er að ræða aðstandanda eða einhvern í neyslu,“ segir Erlingur Jónsson, forstöðumaður forvarnafélags- ins Lundar. Sá sem er í neyslu finnist hann geta stjórnað og aðstandanda finnist hann geta stjórnað líka. „Meðvirkillinn er bara stjórnlaus og oft miklu veik- ari. Maður er alveg búinn að sjá ferilinn héðan og upp á geðdeild, oftar en einu sinni, þegar hefði verið hægt að leita hjálpar eins og boðið er upp á hér.“ Búinn með allt sitt Spurður um tilurð Lundar segir Erlingur að hann hafi byrjað árið 2006 að skrifa vikulegar greinar í Víkurfréttir. Ári seinna hafi starf- semin sjálf byrjað. „Ég ætlaði aldr- ei að standa í þessu sjálfur heldur setja þetta í hendurnar á bæjar- félögunum en þeim leist svo vel á þetta að þeir ýttu mér út í það“. Hugsjónastarf hans sé nánast unnið í sjálfboðavinnu en stærsti styrktaraðilinn, Pokasjóður, hafi breytt styrkveitingum og Erlingur segir reksturinn hafa verið afar erf- iðan síðan. „Ég er búinn með allt mitt í þetta. Bæjarfélögin hafa stutt mig eitthvað og kannski Reykjanes- bær mest með þessu húsnæði hér og kostnaðar vegna þjónustunnar við SÁÁ. Annað hefur komið svona héðan og þaðan. Stundum fer loftið úr manni.“ Óttinn að þekkjast Erlingur segir marga skjólstæðinga sína í gegnum tíðina hafa sett fyrir sig að skrá sig í viðtöl á skrifstofu Reykjanesbæjar af ótta við að þurfa að gefa upp nafn og kennitölu. Þó þurfi einungis að gefa upp for- nafn og síma. „Fólk hringir yfir- leitt beint í mig þegar það er komið með nóg og á erfitt með að takast á við málin. Samt reynir það áfram að nota sínar aðferðir innan veggja heimilisins og fer sjaldan eftir ráðum sem ég gef. Maður þekkir þetta reyndar alveg sjálfur. Ég var miklu veikari sem aðstandandi en alkóhólisti.“ Þeir sem leita til Er- lings eru bæði sjálfir í vandræðum og líka aðstandendur. Vilja ekki hitta á dílerinn Fundir og ráðgjafaviðtöl hjá Lundi eru á mánudögum, fyrir alla ald- urshópa. Einnig eru stuðnings- hópar, sem eru t.d. leiðir fyrir þá sem eru ekki tilbúnir að fara á AA fundi, af ýmsum ástæðum. „Þeir þora kannski ekki að tala eða láta sjá sig. Þeir gætu hitt á dílerinn sinn. Samfélagið er svo lítið,“ segir Erlingur. Einnig segir hann neysl- una hafa aukist og breyst. Kanna- bisreykingar þyki algjört himnaríki og heilsusamlegar meðal sumra unglinga. Þeir séu mjög sannfær- andi við aðra um að það sé þann- ig. „Rosalega margir lesa ýmislegt misgáfulegt um kannabis á netinu og sannfæra foreldra með slíkum rökum. Betra væri fyrir foreldra að kynna sér þetta annars staðar. Þótt kannabis drepi ekki strax þá eru svo margir sem byrja á því og þess vegna er það svo hættulegt.“ Annað foreldrið í afneitun Foreldrafræðsla í Lundi er undir handleiðslu ráðgjafa SÁÁ fyrsta mánudag í mánuði og einnig eru 5-6 mismunandi fyrirlestrar. Þeir eru t.d. um meðvirkni einstakl- ingsins, meðvirkni í fjölskyldunni, sjálfsvirðingu, fíkniefni, meðferð og meðferðarheimilin. Að meðal- tali koma um 20 manns og þiggja einhvers konar aðstoð á hverjum mánudegi. „Fólk virðist eiga erf- itt með að festa sig í sessi hér. Til dæmis kemur alltaf annað for- eldrið. Hitt er heima að skammast sín en vill bara fá að fylgjast með úr fjarlægð,“ segir Erlingur og bætir við að foreldrar taki á svona málum á misjafnan hátt. Yfirleitt komi kon- ur en þó einn og einn karl. „Kon- ur eru opnari fyrir því að tala um þessa hluti. Þetta er erfitt og hefur alltaf áhrif á sambúð og sambönd á heimilum þegar annar aðilinn er að byggja sig upp en hinn ekki.“ Var fastur í meðvirkni Besta leiðin til að hjálpa börnum sínum segir Erlingur vera þegar foreldrar fræðast um efnin, ástand- ið og meðferðina. „Annars eru þau alltaf að dæma. Þau verða að takast á við sig sjálf og byggja sig upp til þess að taka öðruvísi á hlutunum gagnvart þeim sem eru í neyslu, hvort sem það eru börn, maki eða einhver annar.“ Meðvirkur að- standandi aðstoði alltaf hinn við neysluna áfram á einhvern hátt en telji sig gera það besta fyrir barnið sitt hverju sinni. „Sjálfur var ég í 10 ár í afneitun sem foreldri. Ég vissi ekki almennilega hvað var í gangi og komst að því að ég var fastur og gat ekkert gert ef ég héldi áfram að vera svona meðvirkur með syni mínum.“ Erlingur leitaði sér að- stoðar og svo kom að erfiðasta skrefinu. Setja mörk og standa við þau „Ég hringdi í strákinn minn og bað hann um að tala við mig. Óskaði eftir því hjá honum að hann léti mig í fríði. Hann bæði mig ekki um peninga, sígarettur eða að skutla sér. Ef hann ætlaði að vera í þessum heimi yrði hann að vera þar án mín. Ég yrði að hugsa um sjálfan mig því hann hefti minn bata,“ segir Erlingur og bætir við að sam- talið hafi verið á rólegum nótum og nóg til þess að sonur hans hætti í neyslu í tvö ár. Í samskiptum við svona veika einstaklinga segir Er- lingur að setja þurfi mörk og standa við þau. Mörkin þurfi ekki að vera stór og skelfileg. „Við breytum ekki öðrum en getum haft áhrif á aðra með breyttu viðhorfi. Ef við setjum okkur í fyrsta sæti til þess að líða vel þá líður fólkinu vel í kringum okkur. Þannig höfum við jákvæð áhrif á líðan annarra. Það þarf að losna við skömmina og viðurkenna að það sé einhver veikur í fjölskyld- unni eða maður sjálfur.“ Eigið barn slæmur félagsskapur Erlingur segir margt ungt fólk undir pressu frá foreldrum að standa sig. Þessir krakkar séu í jafn mikilli hættu að fara í neyslu og önnur, jafnvel í meiri hættu. „Það þarf svo lítið, bara fikta einu sinni. Foreldri verður að vera vinur barna, styðja þau og skilja. Ekki bara minna á neikvæðu hlutina. Það er algjört eitur.“ Einnig verði foreldrar að fylgjast með mögu- legum einkennum eins og sífellt nýjum félagsskap. Einnig þegar barnið er sjálft orðið slæmur fé- lagsskapur í augum annarra for- eldra og farið að hafa slæm áhrif á aðra. „Oft er erfitt að tækla þessa hluti. Nýir vinir, ný tónlist, svefn- venjur, mataræði og fatasmekkur breytast. „Þegar og ef þú missir barnið þitt í neyslu, þá fara nokkur ár úr lífi þínu. Það er bara þann- ig. Fólk kemur hingað og heyrir þetta á fyrirlestrum eða á fundum en lokar á það samt; brotnar niður, fær taugaáfall og hleypur jafnvel út. Ég hef hlaupið út á eftir fólki til að fá það inn aftur þegar það gerir sér grein fyrir stöðunni, segir Erlingur. „Gott að fá þetta símtal“ Hann hefur þó einnig séð marga sigra í starfi sínu og það haldi sér gangandi. „Ég hef alltaf haft áhuga á að hjálpa öðrum. Það hefur byggt mig upp í leiðinni. Þetta er besta verkfæri sem til er til sjálfshjálpar. Að taka leiðsögn sjálfur og fara eftir henni.“ Erlingur hefur einnig flutt fyrirlestra í skólum á Suður- nesjum. „Eftir síðasta fyrirlestur í FS hafði samband við mig vina- hópur sem vildi hjálpa vini sínum. Ég gaf þeim ráð. Svo hringdu þeir fyrir skömmu og sögðust hafa farið eftir ráðum mínum og hann hefði valið þá fram yfir nýja lífs- mynstrið. Það var gott að fá þetta símtal,“ segir Erlingur, sem alltaf er með símann á sér. „Um leið og þú hefur einhvern grun, hringdu eitt- hvert og fáðu aðstoð. Foreldrar fara með börnin frekar til sálfræðinga en að fara með þau hingað. Svo eru börnin kannski í neyslu allan tímann og tímarnir hjá sálfræðing- unum fóru til einskis. Það þarf að byrja á að losna við skömmina og taka upp símann. Það er svo margt í boði,“ segir Erlingur að lokum. n Margir leita til forvarnafélagsins Lundar og ástæður eru ýmsar: „Aðstandendur oft veikastir“ -viðtal pósturu olgabjort@vf.is Maður þekkir þetta reyndar alveg sjálfur. Ég var miklu veik- ari sem aðstand- andi en alkóhólisti Sjónvarp Víkurfrétta Þátturinn er á dagskrá í kvöld kl. 21:30 á ÍNN og vf.is ■ Hjúkrunarheimilið Nesvöllum ■ Forvarnadagur ungra ökumanna ■ Pottaspjall í Grindavík ■ Nýr Keflavíkurbúningur Meðal efnis í kvöld Þín auglýsing í þættinum? Viltu auglýsa í Sjónvarpi Víkurfrétta? Þátturinn er sýndur á ÍNN á fimmtudagskvöldum kl. 21:30 og endursýndur á tveggja tíma fresti í sólarhring. Þátturinn er einnig í HD á vef Víkurfrétta. Auglýsingasíminn er 421 0001 eða póstur á fusi@vf.is. Aðalfundur Nes, íþróttafélags fatlaðra á Suðurnesjum, verður haldinn miðvikudaginn 26. mars 2014 kl. 20:00  í Myllubakkaskóla, Reykjanesbæ.   Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf Lagabreytingar Önnur mál Aðalfundur

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.