Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.03.2014, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 27.03.2014, Blaðsíða 1
vf.is Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUDAGURINN 27. MARS 2014 • 12. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR Hringbraut 99 - 577 1150 Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Hjá okkur njóta allir sérkjara af lyfjum utan  greiðsluþáttöku Rokksýning! Nú er unnið að upp- setningu á sýningu á Rokksafni Íslands í Hljómahöllinni og hér má sjá Björn Björns- son sýningarstjóra skoða sýningarmuni síðdegis í gær. Form- leg opnunarhátíð Hljómahallar og Rokk- safns Íslands verður þann 5. apríl nk. VF-mynd: Olga Björt Þeir sem safna sér talsverðum lífeyris-sjóði á lífsleiðinni taka talsverðan þátt í dvalarkostnaði sínum þegar sú stund kemur að viðkomandi þarf að flytja á hjúkrunarheimili. Fólk getur þurft að borga með sér 350-360 þúsund krónur á mánuði ef fjárhagur þess er þannig. Það finnist mörgum ekki sanngjarnt. Þetta segir Finnbogi Björnsson, framkvæmda- stjóri Dvalarheimila aldraðra á Suður- nesjum [DS] í viðtali við Víkurfréttir í dag. Finnbogi segir að fólk hafi alla tíða átt erfitt með að sætta sig við þessa staðreynd. „Það leiðinlega sem okkur varðar sem rekstraraðila er að við fáum pappíra sem segja, þú átt að innheimta þetta mikið hjá þessum aðila. Síðan eigum við að skila þessu til Tryggingastofnunar. Ef að við náum ekki þessum fjármunum frá heimilisfólkinu, þá draga þeir það frá daggjöldunum næsta mánuð á eftir. Við höfum ekkert með þessa peninga að gera annað en að innheimta þá. Eins og vel er hægt að ímynda sér, þá er ekki alltaf skemmtilegt að rukka fólk um fleiri hundruð þúsund, vegna þess hversu góðan lífeyri það hefur unnið sér inn,“ segir Finn- bogi m.a. í viðtalinu við Víkurfréttir í dag. Finnbogi hefur starfað sem framkvæmda- stjóri DS í 37 ár en stendur nú á tímamótum eins og fram kemur í viðtalinu þar sem hann fer yfir sína vakt hjá DS í þessa tæpu fjóra áratugi. - Sjá síðu 12 Greiða allt að 360.000 kr. úr eigin vasa á mánuði - Finnbogi Björnsson framkvæmdastjóri DS til 37 ára gerir upp árin hjá Garðvangi og Hlévangi Íbúar á hjúkrunarheimilum sem hafa safnað talsverðum lífeyri: Söfnuðu 600 undirskriftum: 74% skrifa undir ósk um persónukjör Bæjarfulltrúinn Pálmi Steinar Guð-mundsson gekk í nær öll hús í Garð- inum og safnaði 600 undirskriftum fyrir persónukjöri í Sveitarfélaginu Garði. Undirskriftirnar afhenti hann Magnúsi Stefánssyni bæjarstjóra á mánudag og verða þær, ásamt erindi sem þeim fylgir, teknar fyrir í bæjarráði Garðs í dag, fimmtudag. „Ég hef átt samræður við flesta íbúa sem hér eru á kjörskrá og safnað undirskriftum fyrir persónukjöri í komandi sveitarstjórnarkosn- ingum í Garðinum. Af þeim sem ég hef rætt við hafa 600 íbúar á kjörskrá ritað undir áskorun um að í kosningum 2014 verði við- haft persónukjör í Sveitarfélaginu Garði. Í kosningunum 2010 greiddu 812 atkvæði sem þýðir að 74% þeirra sem tóku þátt í kosningunum vilja persónukjör í komandi sveitarstjórnarkosningum,“ segir Pálmi m.a. í erindi sínu til bæjarráðs. Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, segir að erindið fari fyrir bæjarráð í dag og sam- kvæmt ósk Pálma á það svo að fara í fram- haldi fyrir bæjarstjórn. Þar hefur óskum um persónukjör hingað til verið hafnað af sitjandi meirihluta. Finnbogi er einnig í viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta á ÍNN og vf.is í kvöld kl. 21:30 Sjónvarp! ERUM FLUTT Í SPORTHÚSIÐ Einkaþjálfun - Hópþjálfun - Fjarþjálfun www.einka.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.