Víkurfréttir - 27.03.2014, Page 1
vf.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUDAGURINN 27. MARS 2014 • 12. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Hjá okkur njóta allir sérkjara
af lyfjum utan greiðsluþáttöku
Rokksýning!
Nú er unnið að upp-
setningu á sýningu
á Rokksafni Íslands í
Hljómahöllinni og hér
má sjá Björn Björns-
son sýningarstjóra
skoða sýningarmuni
síðdegis í gær. Form-
leg opnunarhátíð
Hljómahallar og Rokk-
safns Íslands verður
þann 5. apríl nk.
VF-mynd: Olga Björt
Þeir sem safna sér talsverðum lífeyris-sjóði á lífsleiðinni taka talsverðan
þátt í dvalarkostnaði sínum þegar sú
stund kemur að viðkomandi þarf að flytja
á hjúkrunarheimili. Fólk getur þurft að
borga með sér 350-360 þúsund krónur á
mánuði ef fjárhagur þess er þannig. Það
finnist mörgum ekki sanngjarnt. Þetta
segir Finnbogi Björnsson, framkvæmda-
stjóri Dvalarheimila aldraðra á Suður-
nesjum [DS] í viðtali við Víkurfréttir í
dag.
Finnbogi segir að fólk hafi alla tíða átt erfitt
með að sætta sig við þessa staðreynd.
„Það leiðinlega sem okkur varðar sem
rekstraraðila er að við fáum pappíra sem
segja, þú átt að innheimta þetta mikið hjá
þessum aðila. Síðan eigum við að skila þessu
til Tryggingastofnunar. Ef að við náum ekki
þessum fjármunum frá heimilisfólkinu, þá
draga þeir það frá daggjöldunum næsta
mánuð á eftir. Við höfum ekkert með þessa
peninga að gera annað en að innheimta þá.
Eins og vel er hægt að ímynda sér, þá er ekki
alltaf skemmtilegt að rukka fólk um fleiri
hundruð þúsund, vegna þess hversu góðan
lífeyri það hefur unnið sér inn,“ segir Finn-
bogi m.a. í viðtalinu við Víkurfréttir í dag.
Finnbogi hefur starfað sem framkvæmda-
stjóri DS í 37 ár en stendur nú á tímamótum
eins og fram kemur í viðtalinu þar sem
hann fer yfir sína vakt hjá DS í þessa tæpu
fjóra áratugi. - Sjá síðu 12
Greiða allt að 360.000 kr.
úr eigin vasa á mánuði
- Finnbogi Björnsson framkvæmdastjóri DS til 37 ára gerir upp árin hjá Garðvangi og Hlévangi
Íbúar á hjúkrunarheimilum sem hafa safnað talsverðum lífeyri:
Söfnuðu 600 undirskriftum:
74% skrifa undir ósk
um persónukjör
Bæjarfulltrúinn Pálmi Steinar Guð-mundsson gekk í nær öll hús í Garð-
inum og safnaði 600 undirskriftum fyrir
persónukjöri í Sveitarfélaginu Garði.
Undirskriftirnar afhenti hann Magnúsi
Stefánssyni bæjarstjóra á mánudag og
verða þær, ásamt erindi sem þeim fylgir,
teknar fyrir í bæjarráði Garðs í dag,
fimmtudag.
„Ég hef átt samræður við flesta íbúa sem hér
eru á kjörskrá og safnað undirskriftum fyrir
persónukjöri í komandi sveitarstjórnarkosn-
ingum í Garðinum. Af þeim sem ég hef rætt
við hafa 600 íbúar á kjörskrá ritað undir
áskorun um að í kosningum 2014 verði við-
haft persónukjör í Sveitarfélaginu Garði. Í
kosningunum 2010 greiddu 812 atkvæði
sem þýðir að 74% þeirra sem tóku þátt í
kosningunum vilja persónukjör í komandi
sveitarstjórnarkosningum,“ segir Pálmi m.a.
í erindi sínu til bæjarráðs.
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í Garði, segir
að erindið fari fyrir bæjarráð í dag og sam-
kvæmt ósk Pálma á það svo að fara í fram-
haldi fyrir bæjarstjórn. Þar hefur óskum
um persónukjör hingað til verið hafnað af
sitjandi meirihluta.
Finnbogi er
einnig í viðtali
við Sjónvarp
Víkurfrétta á
ÍNN og vf.is
í kvöld kl. 21:30
Sjónvarp!
ERUM FLUTT Í
SPORTHÚSIÐ
Einkaþjálfun - Hópþjálfun - Fjarþjálfun
www.einka.is