Víkurfréttir


Víkurfréttir - 03.04.2014, Síða 1

Víkurfréttir - 03.04.2014, Síða 1
vf.is Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 FIMMTUDAGURINN 3. APRÍL 2014 • 13. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR Hringbraut 99 - 577 1150 Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Hjá okkur njóta allir sérkjara af lyfjum utan  greiðsluþáttöku Kynjakettir til sýnis! n Alþjóðleg kattasýning á Suðurnesjum í fyrsta sinn: „Við höfum verið í vanda undanfarin ár með að fá leigt húsnæði fyrir sýninguna á höfuðborgarsvæðinu, en þar hefur hún verið frá upphafi. Eftir mikla leit og mörg símtöl brá ég á það ráð að athuga með húsnæði hér í Grindavík þar sem ég bý. Okkur bauðst þá þetta stórglæsilega hús- næði, Reiðhöllin,“ segir Guðbjörg Her- mannsdóttir, kattaræktandi, og einn af umsjónarmönnum sýningarinnar. „Þau hjá Kattaræktarfélagi Íslands slógu til og hópur af frábæru fólki sem stendur að sýningunni er búinn að vera á fullu við að leggja lokahönd á hana.“ Alþjóðlega sýningin er stærsti viðburður félagsins, sem stendur fyrir tveimur sýn- ingum á ári. Um 120 kettir verða til sýnis og dómarar koma erlendis frá til að dæma þá. Kattaræktarfélagið er félagi í FIFE sem er stórt samfélag erlendis og dómararnir eru á þeirra vegum. „Dómurinn og allt í kringum það er ekki það sem skiptir mestu heldur er félagsskapurinn stór hluti af þessu. Við erum einnig með sér hóp fyrir okkar fallega íslenska húskött og geta allir skráð sig í fé- lagið og sýnt húsköttinn sinn. Skilyrðin sem þarf að uppfylla er að kötturinn verður að vera skráður í félagið, örmerktur, bólusettur og geldur,“ segir Guðbjörg og hvetur alla til að koma á sýninguna, sem verður opin frá kl. 10 - 17 á laugardag og sunnudag. 120 kettir til Grindavíkur Fálki gæðir sér á svartþresti Ólafur Eggertsson tókþessa mynd í hádeginu á sunnudag en á henni má sjá fálka gæða sér á (mjög lík- lega) svartþresti. Myndin var tekin út um eldhúsgluggann á húsi við Kirkjubraut í Innri- Njarðvík. Þegar Ólafur ætlaði sér nær til þess að ná af fuglinum betri mynd flaug hann á brott með bráðina í klónum. Við hvetjum lesendur til að senda okkur myndir úr mann- lífinu eða merkja myndir #vikurfrettir á Instagram. Bróðir rokkkóngs málar risagítar Hljómahöllin og Rokksafn Íslands opna form- lega um helgina eins og auglýst er í blaðinu í dag. Síðustu vikur hefur verið unnið að upp- setninu á yfirgripsmikilli sýningu. Þar verður þessi risagítar sem Ólafur Júlíusson, bróðir rokkkóngsins Rúnars Júlíussonar, var að mála þegar myndin var tekin. Flugstöðin í Sjón- varpi Víkurfrétta Flugstöð Leifs Eiríkssonar er stærstivinnustaður á Suðurnesjum. Ört vax- andi ferðamannaiðnaður á Íslandi endur- speglast í flugstöðinni og þar er mikið ann- ríki alla daga frá því snemma á morgnanna og langt fram á kvöld. Sjónvarp Víkurfrétta tók púlsinn á lífinu í flugstöðinni nú í vikunni en þar standa fyrir dyrum miklar framkvæmdir á næstu mán- uðum og misserum. Þátturinn er á dagskrá ÍNN í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21:30. Þá verður þátturinn einnig aðgengilegur á vf.is í háskerpu. Tekið var á móti fyrsta flugi easyJet milli Basel í Sviss og Keflavíkurflugvallar í gær með myndarlegum vatnsboga.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.