Víkurfréttir - 03.04.2014, Blaðsíða 2
fimmtudagurinn 3. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR2
Alþjóðasamtök flugvalla – Airports Council Internatio-
nal (ACI) – hafa valið Keflavíkur-
flugvöll á heiðurslista yfir bestu
flugvelli í heimi – ACI Director
General’s Roll of Excellence.
Útnefningin nær til flugvalla sem
óslitið hafa sýnt frábæran árangur
í þjónustukönnunum samtak-
anna meðal flugfarþega frá árinu
2008. Alls hafa 21 flugvöllur hlotið
þennan heiður frá árinu 2011 og
í ár bætast eftirtaldir sex alþjóða-
flugvellir í hópinn:
Keflavíkurflugvöllur
Dubaiflugvöllur í Sameinuðu arab-
ísku furstadæmunum
Kairóflugvöllur í Egyptalandi
Hyderabad Rajiv Gandhiflugvöllur
á Indlandi
Taoyuanflugvöllur á Taiwan
Sangsterflugvöllur á Jamaíku
Framkvæmdastjóri ACI segir
áherslu á að uppfylla síauknar
væntingar farþega skipta sköpum í
samkeppnishæfni alþjóðaflugvalla.
Þessir sex flugvellir hafi ítrekað
sýnt að þar ríkir mikill skilningur
á áherslu farþega á góða þjónustu
og einnig á nauðsyn þess að ganga
skrefi framar í að uppfylla vænt-
ingar.
„Þessi frábæri árangur er fyrst og
fremst að þakka starfsfólki og sam-
starfsaðilum okkar á Keflavíkur-
flugvelli og áherslu á sífellt aukna
þjónustu,“ segir Björn Óli Hauks-
son forstjóri Isavia.
-fréttir pósturu vf@vf.is
AKURSKÓLI
ATVINNA
Viltu vinna á faglegum, kramiklum
og skemmtilegum vinnustað?
Þá er Akurskóli staðurinn fyrir þig.
Kennarar óskast til starfa næsta skólaár.
Umsóknarfrestur er til 29. apríl en ráðið er í
stöðurnar frá 1. ágúst. Hluti af stöðunum eru
afleysingarstöður vegna barneignaleyfa.
Starfssvið:
- Umsjónarkennsla á yngsta- og miðstigi
- Ensku- og stærðfræðikennsla á elsta stigi
- Heimilisfræðikennsla
- Íþróakennsla
- Sérkennsla
Menntunar- og hæfniskröfur:
-Kennaramenntun og réindi til kennslu í grunnskóla
- Góð íslenskukunnáa
- Þekking á þeirri hugmyndafræði sem höfð er að
leiðarljósi í skólastarfinu
- Góð mannleg samskipti
- Metnaður til að bæta námsárangur og vinna að
framkvæmd framtíðarsýnar Reykjanesbæjar í
skólamálum
Umsókn fylgi afrit af leyfisbréfi og ferilskrá ásamt
upplýsingum um meðmælendur.
Laun og starfskjör fara eir kjarasamningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna FG en
Akurskóli hefur verið með samkomulag vegna greinar
2.1.6.3 (bókun 5) s.l. skólaár.
Starfsmenn skóla óskast til
starfa næsta skólaár.
Umsóknarfrestur er til 29. apríl en ráðið er
í stöðurnar frá 15. ágúst.
Starfssvið:
Starfsmaður skóla starfar með nemendum í leik og
starfi utan og innan kennslustofu. Annast gangavörslu,
frímínútnagæslu, vinnur í frístundaskóla, aðstoðar í
matar- og nestistímum og sinnir öðrum störfum sem
skólastjóri felur honum.
Vinnutími:
Annars vegar 8:00 – 14:00 og hins vegar 13:00 – 16:00.
Menntunar- og hæfniskröfur:
-Áhugi að vinna með börnum
- Reynsla eða menntun sem nýtist í starfi æskileg
- Góð íslenskukunnáa
- Hæfni í mannlegum samskiptum
Laun og starfskjör fara eir kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og Starfsmannafélags
Suðurnesja.
Sjá nánar um Akurskóla: www.akurskoli.is
Sækja skal um störfin á vef Reykjanesbæjar
hp://www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Róbertsdóir,
skólastjóri, í síma 420-4550 eða 849-3822.
Einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið
sigurbjorg.robertsdoir@akurskoli.is
Innsiglingarbauja frá Sandgerði slitnaði upp eftir að siglt var á hana í síðustu viku. Baujuna tók þá
að reka, þar til hún strandaði á Garðskagaflös.
Björgunarsveitin Ægir í Garði var kölluð til og fór
hún á rússneskum ofurtrukki sveitarinnar í Garð-
skagaflösina. Ljósabúnaður var skrúfaður af baujunni
og hún síðan dregin upp í fjöruna við gamla vitann
á Garðskaga. Þangað kom svo bíll með krana og sótti
baujuna og kom henni til Sandgerðis.
Meðfylgjandi myndir tóku félagar í Björgunarsveitinni
Ægi af björgunaraðgerðum.
Baujan frá Sandgerði
strandaði á Garðskagaflös
– sótt á rússneskum ofurtrukki Ægismanna
VF-myndir:
Baldvin Þór Bergþórsson
Keflavík meðal bestu flugvalla í heimi
Framundan er stærsta ferðamannasumar sögunnar á Íslandi. Sífellt er
unnið við þróun og breytingar sem og stækkun flugstöðvarinnar til að
mæta henni. VF-mynd/pket.
Hlaupið fram-
hjá vatnsbunu
Vatnsbunan stóð
út úr brunahana á
Hringbraut í Keflavík í
vikunni. Hópur hlaup-
ara hljóp framhjá og
lét veglega bununa
ekki stoppa sig í vor-
blíðunni. Linda Ólafs-
dóttir er í stækkandi
hópi hlaupara í
bæjarfélaginu sem
stundar hlaup reglu-
lega um götur bæjar-
ins og þarna má sjá
hana skokka framhjá
vatnsbununni.