Víkurfréttir - 10.04.2014, Blaðsíða 17
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 10. apríl 2014 17
Hringbraut 99 - 577 1150
ATVINNA
Starfskraftur óskast í Apótek Suðurnesja .
Um sumarstarf er að ræða.
Vinsamlegast sendið umsóknir
á lyfjaval@lyfjaval.is
BREKKUBRAUT 1, 230 REYKJANESBÆ
Herbergi: 9 - Stærð: 221,8m2 - Bílskúr - Auka íbúð
Hringdu og bókaðu skoðun
Einbýlishús með tveimur íbúðum á besta stað miðsvæðis í Keflavík. Aðaleignin er
með fjórum góðum svefnherbergjum og auðvelt að bæta við því fimmta. Aukaíbúðin
er þriggja herbergja. Húsið er í almennt góðu ástandi. Búið er að endurnýja skolp
og dren ásamt því að nýlega var þak yfirfarið og lagað.
Upplýsingar fást hjá Berglindi gsm 694-4000
kr. 39.000.000,-
BERGLIND HÓLM
BIRGISDÓTTIR
Löggiltur fasteigna-
fyrirtækja og skipasali
-mannlíf pósturu vf@vf.is
Ásbrúardagurinn er orð-inn árviss hátíð í upphafi
sumars. Til þessa hefur dagur-
inn verið haldinn hátíðlegur á
sumardaginn fyrsta og þá hafa
þúsundir Suðurnesjamanna og
gesta af höfuðborgarsvæðinu
safnast saman á Ásbrú í karnival-
stemmningu. Ásbrúardagurinn
verður aftur haldinn hátíðlegur í
ár en nú hefur dagsetningin verið
færð til. Að þessu sinni verður
hann haldinn hátíðlegur í lok
maí, fimmtudaginn 29. maí.
Unnsteinn Jóhannsson er verk-
efnastjóri fyrir Ásbrúardaginn og
vinnur nú að skipulagningu há-
tíðarinnar ásamt Önnu Steinunni
Jónasdóttur hjá Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar, Kadeco. Þau
sögðu í samtali við Víkurfréttir nú
í vikunni að dagskráin á Ásbrúar-
deginum verði á svipuðum nótum
og í fyrra. Hátíðin sé með karni-
valsniði og þar verði sannkölluð
fjölskyldustemmning með jákvæðu
andrúmslofti. Áhersla verði lögð á
skemmtilega upplifun fyrir gesti og
að fjölbreytt dagskrá verði í boði.
Aðalhátíðarsvæðið verður í Atlan-
tic Studios, sem er kvikmyndaverið
á Ásbrú. Þar verður skemmtidag-
skrá og leiktæki, auk þess sem
myndað verður markaðstorg með
sölubásum. Þeir sölubásar eru þó
eingöngu á vegum íþrótta- og góð-
gerðafélaga á Suðurnesjum til fjár-
öflunar. Í kvikmyndaverinu verður
einnig vettvangur fyrir fyrirtæki
á Ásbrú að kynna starfsemi sína.
Þá mun samfélagið á Ásbrú láta
vita af því hvað þar er um að vera,
enda margt skemmtilegt að gerast
á Ásbrú.
Á Ásbrúardeginum verður Keilir
einnig með opið hús þar sem
starfsemi skólans verður kynnt.
Þar verður einnig boðið upp á
skemmtidagskrá. Þá verður frum-
kvöðlasetrið Eldey opið og fjöl-
breytt starfsemi í húsinu kynnt
fyrir fólki.
Eins og á síðasta ári verður
Ásbrúardagurinn í ár í góðu sam-
starfi við bandaríska sendiráðið
sem kemur með ósvikna ameríska
stemmningu í húsið. Þannig verða
keppnir um besta Chili-réttinn hjá
veitingastöðum og einnig einstakl-
ingskeppni um amerískar bökur.
Nú er verið að skipuleggja dag-
skrána fyrir Ásbrúardaginn og þá
er verið að kalla eftir þátttakendum
til að taka þátt í uppákomum í
kvikmyndaverinu eða félagasam-
tökum sem hafa áhuga á að setja
upp sölubása til fjáröflunar. Þeir
sem vilja taka þátt eru beðnir um
að láta vita af sér með pósti á opni-
dagurinn@asbru.is.
Ásbrúardagurinn í lok maí
- sannkölluð karnivalstemmning
Frá Ásbrúardeginum í fyrra.
VF-mynd: Hilmar Bragi
Smiðjuvegi 68-72, Rvk Hjallahrauni 4, Hfj
Fitjabraut 12, Njarðvík Eyrarvegi 33, Selfossi Barðinn, Skútuvogi 2Rúðuvökvi
ÞÚ PASSAR HANN
VIÐ PÖSSUM ÞIG
VELDU ÖRYGGI FYRIR ÞIG OG ÞÍNA
www.solning.is
Nánari upplýsingar
12
mánaða
V
AX
TA L A U SA
R
A
F B O R G A N
I R
Ventus K115 Kynergy Dynapro