Víkurfréttir


Víkurfréttir - 10.04.2014, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 10.04.2014, Blaðsíða 22
fimmtudagurinn 10. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR22 -íþróttir pósturu eythor@vf.is Fimleikakonan Lilja Björk Ólafsdóttir frá Keflavík var á dögunum valin í unglinga- landslið Íslands sem tekur þátt í Norðurlandamótinu í áhaldafim- leikum. Mótið fer fram í Svíþjóð um páskana en Lilja segist spennt fyrir því verkefni. Auk þess er Evrópumót í Búlgaríu á næst- unni svo það er nóg framundan hjá þessum unga Keflvíkingi sem fagnaði öðrum Íslandsmeistara- titli sínum fyrir skömmu. Lilja sem kjörin var fimleikamaður ársins 2013 í Reykjanesbæ fagn- aði á dögunum öðrum Íslands- meistaratitli sínum á innan við ári, þegar hún sigraði á jafnvægislá í frjálsum æfingum. Hún segist sjálf hafa átt að gera betur á tvíslá í mót- inu en þar varð hún fyrir því óláni að detta. Hún er einmitt hvað sterk- ust í þessum tveimur greinum. Til þess að ná árangri sem þessum þarf að æfa vel en Lilja æfir fjóra tíma í senn fimm daga vikunar. Auk þess æfir hún ballet einu sinni í viku. Áður æfði hún fótbolta en hún varð að gefa boltann upp á bátinn, enda mikill tími sem fer í fimleikana hjá þessari efnilegu íþróttakonu. Hún verður að skipuleggja sig vel til þess að ná að sinna náminu vel en ljóst er að metnaðurinn er mikill. Lilja var á landsliðsæfingu fyrr í vikunni en hún segir þær æfingar vera tölu- vert erfiðari en gengur og gerist þar sem pressan sé töluverð á að sanna sig. Samkeppnin er hörð enda er samankomið í landsliðinu efnileg- asta fimleikafólk landsins. Strax farin að láta að sér kveða í Bandaríkjunum Lilja fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Bandaríkjanna í desember á síð- asta ári. Hún hefur strax látið að sér kveða í fimleikunum þar og sigraði tvær greinar á móti þar sem besta fimleikafólk Vestur Virginíu-fylkis keppti, en þar býr Lilja. „Það hefur gengið mjög vel. Ég vann á slá og gólfi í mínum aldurflokki,“ segir Lilja en henni líkar lífið í Banda- ríkjunum og segir fimleikana þar vera í öðrum gæðaflokki. „Stelp- urnar heima í Keflavík öfunda mig svolítið. Í Bandaríkjunum eru æfingar talsvert strangari en á Ís- landi og aginn meiri en það er viss draumur að fá að stunda fimleika í Bandaríkjunum,“ segir Lilja en sterk hefð er fyrir íþróttinni vestan- hafs. Til þess að vera gjaldgeng í landsliðið þarf Lilja að taka þátt í mótum hérlendis a.m.k. einu sinni á ári líkt og hún gerði nú á dög- unum. Hún segist ekki vera viss um að hún geri slíkt hið sama á næsta ári þar sem hún vill fremur æfa vel úti til þess að aðlagast betur að full- orðinsflokk, en það þykir talsvert stökk upp á við. Lilja verður 15 ára á þessu ári en hún fer í fullorðins- flokk á næsta ári. „Stelpurnar öfunda mig svolítið“ - Mikið framundan hjá Lilju Björk sem æfir nú fimleika í Bandaríkjunum Hvað er eftirlætis maturinn þinn? Íslenska Lambalærið. Áttu þér einhverja fyrirmynd í fimleikunum? Allar stelpurnar í ameríska landsliðinu. Erfiðasta æfing sem þú gerir? Erfiðasta þrekæfingin er örugglega sú að klifra kaðal án fóta, en erfiðasta æfingin sem ég get gert er örugglega flikk flikk án handa á slá og 1 1/2 skrúfa í framheljarstökk á gólfi. Hvað er skemmtilegast við það að æfa fimleika? það skemmtilegasta við að æfa fimleika er að læra nýjar æfingar. Áttu þér einhver framtíðar markmið? Að komast í landslið fullorðinna. það er viss draumur að fá að stunda fimleika í Bandaríkjunum

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.