Víkurfréttir


Víkurfréttir - 16.04.2014, Side 16

Víkurfréttir - 16.04.2014, Side 16
miðvikudagurinn 16. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR16 -fréttir pósturu vf@vf.is AÐALSKIPULAG REYKJANESBÆJAR BREYTING Auglýsing um breytingu á Aðalskipulagi Reykjanesbæjar 2008-2024, Grófin og Berg og deiliskipulagstillaga Bæjarstjórn Reykjanesbæjar auglýsir hér með breytingu á aðalskipulagi skv. 31.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan fellur ekki undir lög nr. 106/2000 um umhverfismat áætlana, þar sem hún markar ekki stefnu um framkvæmdir sem háðar eru lögum nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Samhliða er auglýst deiliskipulagstillaga af Gróf og Bergi skv. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. • Breyting á aðalskipulagi Grófin og Berg Breytingin felst í að miðsvæði er stækkað og íbúðasvæði minnkað. Einnig er sjávarstæði við höfn minnkað og fært til suðurs. Greinagerð er se™ fram á uppdræ™i í mkv. 1:17.500. • Deiliskipulagstillaga af Gróf og Bergi. Gert er ráð fyrir uppbyggingu á nýju miðsvæði í Grófinni og þé™ingu núverandi íbúðabyggðar á Berginu. Einnig er gert ráð fyrir stækkun smábátahafnar.Tillagan er se™ fram á tveim uppdrá™um og í greinagerð. Tillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar að Tjarnargötu 12 og hjá Skipulagsstofnun frá og með 16. apríl 2014 til 27. maí 2014. Tillögur eru einnig aðgengilegar á vefsíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Eldri auglýsing um sama efni, sem birtist í Lögbirtingi 19. mars og Víkurfré™um 20. mars sl. er þar með ógild. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 27. maí 2014. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, þar sem nafn, kennitala og heimilisfang sendanda kemur fram. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillögurnar fyrir tilskilinn frest telst samþykkur þeim. Reykjanesbæ, 10. apríl 2014. Skipulagsfulltrúi AUGLÝSING UM DEILISKIPULAGSTILLÖGU SUNNAN FITJA Í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst til kynningar e‘irfarandi deiliskipulagstillaga. Deiliskipulagstillaga sunnan Fitja Deiliskipulagssvæðið er um 10. ha sunnan Fitja (Pa™erson svæði) og er skipulagt undir gagnaver og aðveitustöð. Svæðið er í reit VÞ5 í Aðalskipulagi. Á svæðinu er gert ráð fyrir starfssemi sem tengist rannsóknum, þróun m.a. í tengslum við nýtingu orku, netþjónabúum og gagnaverum og er í samræmi við Aðalskipulag. Tillaga ásamt fylgigögnum verða til sýnis á skrifstofu Reykjanesbæjar, að Tjarnargötu 12, frá og með 16. apríl til 27. maí 2014. Tillögurnar eru einnig aðgengilegar á vefsíðu Reykjanesbæjar, www.reykjanesbaer.is. Eldri auglýsing um sama efni, sem birtist í Lögbirtingi 19. mars og Víkurfré™um 20. mars sl. er þar með ógild. Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 27. maí 2014. Skila skal inn skriflegum athugasemdum á skrifstofu Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12. Hver sá sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest telst samþykkur henni. Reykjanesbæ, 16. apríl 2014. Skipulagsfulltrúi Umfangsmikil skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis um rannsókn á aðdraganda og orsökum falls sparisjóðanna kom út í síðustu viku. Skýrslunnar hafði verið beðið lengi og með nokkurri eftir- væntingu, enda vonuðust margir til þess að skýrslan myndi varpa ljósi á þá atburði sem urðu sparisjóðunum að falli. Þegar skýrslan er skoðuð kemur bersýnilega fram að ýmsar brotalamir hafi verið í áhættustýr- ingu sparisjóðanna og hafi henni í raun verið ábótavant. Áhættusókn hafi í raun leitt til falls sparisjóðanna. Ljóst er að sparisjóðirnir töpuðu gríðarlegum fjármunum á kostnað skattgreiðenda, eða hátt á fjórða tug milljarða króna. Langstærsti hlutinn af því kemur til vegna Spari- sjóðsins í Keflavík. Í skýrslunni er farið yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar, þar á meðal starfs- og lagaumhverfi sparisjóðanna, útlán, fjárfestingar, stofnfjáraukningar, arðgreiðslur og fjárhagslega endurskipulagningu þeirra. Flestum ber saman um að skýrslan hafi ekki boðið upp á neinar afgerandi niðurstöður aðrar en þær að 21 mál mun fara fyrir ríkissaksóknara. Þau ákvæði sem málin snerta geta öll varðað fang- elsisrefsingu. Rannsóknarnefndin tók þá ákvörðun að nafngreina ekki viðkomandi aðila né fara nánar út í atvik mála í skýrslunni. En það mun væntanlega koma fram síðar. Þegar umsvif Sparisjóðsins í Kefla- vík voru mest, í lok árs 2008, hafði hann 17 afgreiðslustaði víðs vegar um landið; sex á Suðurnesjum að höfuðstöðvum meðtöldum, átta á Vestfjörðum og einn á Hvamms- tanga, á Ólafsvík og í Borgartúni í Reykjavík. Sparisjóðurinn virðist hafa fjarlægst upphaflegt hlutverk sitt, sem var að efla atvinnulíf og ávaxta sparifé almennings á Suður- nesjum. Hagnaður virtist hafa verið hafður að leiðarljósi og eftirlit með starfsemi sjóðsins í algjöru lágmarki á síðustu starfsárunum. Eftirlit stjórnar í algjöru lág- marki og stjórnun sparisjóðs- ins í höndum sparisjóðsstjóra Í skýrslunni er fjallað um ýmis félög og einstaklinga sem áttu stórtæk viðskipti við Sparisjóð Keflavíkur. Einnig er greint frá lánveitingum sem veitt voru til starfsmanna, en í skýrslunni er umfjöllun um stærstu lántakendur Sparisjóðsins í Kefla- vík frábrugðin umfjöllun um aðra sparisjóði sem teknir voru yfir af Fjármálaeftirlitinu, en þar liggja ekki fyrir upplýsingar um mat á útlánum við fall þeirra. Þegar Fjár- málaeftirlitið tók yfir Spkef árið 2010 voru heildarútlán starfs- manna 1.520 milljónir króna, þar af milljarður í erlendri mynt. Þeir tíu starfsmenn sem skulduðu mest hjá Spkef skulduðu samtals tæplega 1,1 milljarð króna eða 72 prósent af öllum lánum til starfsmanna. Það vekur athygli að hjá Sparisjóðnum í Keflavík voru ekki til neinar skrif- legar viðmiðunarreglur um fríð- indi starfsmanna né eftirlit með þeim. Vettvangskönnun Fjármála- eftirlitsins árið 2008 leiddi í ljós að í Sparisjóðnum í Keflavík voru ekki til neinar formlegar innri reglur eða ferlar varðandi áhættustýringu, svo sem áhættuviðmið, skilgreining á verkefnum áhættustýringar, verk- lag vegna lána í tapsáhættu, verklag ef frávik eru á tryggingum útlána og verklag við tengingar milli lán- þega í tengslum við stórar áhættu- skuldbindingar. Jafnframt voru engar innri reglur til um álagspróf, gerð þeirra, tíðni, úrvinnslu eða eftirfylgni. Niðurstöður skýrslu Fjármálaeftirlitsins voru á þá leið að frumkvæði og eftirlit stjórnar virtist vera í algjöru lágmarki og stjórnun sparisjóðsins að mestu í höndum sparisjóðsstjóra. Breyttar línur í arðgreiðslum Sparisjóðurinn í Keflavík greiddi stofnfjárhöfum arð af stofnfé þeirra milli áranna 2001–2007. Arð- greiðslurnar námu samtals rúmum 3,9 milljörðum króna, þar af voru 2,8 milljarðar króna vegna ársins 2007. Greiðsla arðs á þessu tímabili var í samræmi við reglur Trygg- ingasjóðs sparisjóða, en hin háa greiðsla vegna 2007 kallar á sér- staka umfjöllun, að því er kemur fram í skýrslunni. Í skýrslunni segir að ljóst hafi verið að ný stefna hvað snerti arðgreiðslu hafi verið tekin upp árið 2007. Á stjórnarfundi í nóvember 2007 var lagt til að hagnaði ársins yrði varið til greiðslu arðs og nýttar verði aðrar heimildir eftir því sem lög og reglur leyfa. Á fundi stofn- fjáreigenda skömmu síðar lagði Þorsteinn Erlingsson, stjórnarfor- maður Sparisjóðsins í Keflavík, til að stjórn sparisjóðsins skyldi stefna á að auka stofnfé fyrir áramót og greiða hærri arð en áður. Þannig myndi hlutdeild stofnfjáreigenda í heildar eigin fé aukast. Á sama fundi gerði Geirmundur Kristinsson sparisjóðsstjóri grein fyrir tillögu stjórnar um að henni yrði veitt heimild til að auka stofnfé umtalsvert. Samþykkt var að leggja fram á aðalfundi tillögu um arð- greiðslu til stofnfjáraðila upp á kr. 3,3 milljarða. Það jafngildir um það bil 25% arði á stofnfé. Þessi tillaga var svo ítrekuð og samþykkt á næsta stjórnarfundi. Aðstoðar- forstjóri Fjármálaeftirlitsins hafði samband við sparisjóðsstjóra sím- leiðis í kjölfarið og óskaði eftir upplýsingum um útreikning á arð- greiðsluhlutfallinu. Þar kom m.a. fram að samkvæmt lauslegum út- reikningum Fjármálaeftirlitsins var raunarðsemi ársins 2007 hjá sparisjóðnum 8,2%. Beðið var um skýringar á því hvernig 25% arð- greiðsluhlutfallið var fundið. Ekki hvíldi lagaleg skylda á Fjármála- eftirlitinu að hafa eftirlit með arð- greiðslum sparisjóða. Þetta var eina skiptið sem Fjármálaeftirlitið hafði afskipti af arðgreiðslu hjá sparisjóði og um frekari eftirfylgni eða að- gerðir var ekki að ræða. Óhófleg bjartsýni í útlánum og hirðuleysi við innheimtu Í september 2008 lagði Fjármála- eftirlitið fram skýrslu um útlána- áhættu, markaðsáhættu og eftir- lit með peningaþvætti hjá Spari- sjóðnum í Keflavík. Í niðurstöðum skýrslunnar sagði að útlánasafn sparisjóðsins væri almennt nokkuð vel dreift en gæði þess væru vafa- söm. Vanskil væru í lágmarki en væru þó að aukast, lán til venslaðra aðila væru umtalsverð og 90% út- lána með veði í hlutabréfum væru tryggð með veði í óskráðum hluta- bréfum. Fyrirséð væru útlánatöp vegna ofmats á verðmæti félaga, óhóflegrar bjartsýni í útlánum og hirðuleysi við innheimtu lána. Tryggingaþekja sparisjóðsins vegna lána með veði í hlutabréfum Icebank hf. og stofnfjárbréfum sparisjóðsins var talin óviðunandi. Þá væru veð sparisjóðsins í fast- eignum í mörgum tilvikum léleg og haldbærar tryggingar almennt of lágar. Var það meðal annars talin afleiðing þess að regluverk sjóðsins væri í ólestri og þá sérstaklega hvað varðaði áhættustýringu. Einnig var bent á að mikilvægt væri að settar yrðu reglur um mat á afskriftum og skjalfest stefna um hlutfall út- lána til einstakra atvinnugreina. Þá virtist Fjármálaeftirlitinu sem stjórn sparisjóðsins hefði ekki sinnt eftirlitshlutverki sínu með rekstri sjóðsins á fullnægjandi hátt. Starfsmenn fóru út fyrir laga- heimildir Frá miðju ári 2005 og fram til ársins 2007 var ekki að finna ítar- lega umfjöllun innri endurskoð- anda um útlán Sparisjóðsins í Keflavík í fundargerðum stjórnar sjóðsins. Rannsóknarnefndin fékk ekki afhentar skýrslur innri endur- Áhersla á gróða og arðsemi – misstu sjónar af upprunalegu hlutverki Sparisjóðanna ■■ Úr skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.