Víkurfréttir - 16.04.2014, Side 18
miðvikudagurinn 16. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR18
-íþróttir pósturu eythor@vf.is
Njarðvíkingum tókst með harðfylgi að halda lífi í
von þeirra um að komast í úr-
slitaleikinn gegn KR í Domino's
deildinni í körfubolta eftir sigur
á Grindavík í Ljónagryfjunni í
fyrrakvöld. Lokatölur urðu 77-68
fyrir heimamenn eftir að staðan í
hálfleik hafði verið 26-30.
„Það var frábært að vinna og nú
fylgjum við því eftir með sigri á
fimmtudaginn,“ sagði Elvar Már
Friðriksson eftir leikinn í viðtali
við Stöð 2. Sverrir Þór Sverris-
son, þjálfari UMFG sagði að sínir
menn hefðu verið arfaslakir og ekki
átt skilið að vinna. Hefðu í raun
hangið lengur inni í leiknum en
frammistaða þeirra bauð upp á.
Njarðvíkingar voru betri í fyrsta
leikhluta en skoruðu svo aðeins 7
stig í næsta og voru undir í leik-
hléi, 26-30. Þeir unnu svo næstu
fjórðunga en munurinn var aldrei
mikill. Grindvíkingar voru inni í
leiknum alveg þangað til í blálokin.
Elvar Már var gríðarlega öflugur
á lokakaflanum og mjög góður í
leiknum öllum. Það er unun að sjá
drenginn spila körfubolta og það
mun ekki koma neinum á óvart þó
svo honum vegni vel í New York en
þangað heldur hann í háskólanám
og körfuboltaleik í haust.
Elvar skoraði 21 stig, tók 8 fráköst
og gaf 9 stoðsendingar og Tracy
Smith girti heldur betur upp bux-
urnar frá síðasta leik og var með 25
stig og 3 varin skot. Logi Gunnars-
son var ekki upp á sitt besta en er
samt alltaf gríðarlega öflugur inni á
vellinum. Hann kláraði 13 stig.
Hjá Grindavík var Sigurður G. Þor-
steinsson með 15 stig og 10 fráköst
og 4 varin skot, Earnest Lewis skor-
aði aðeins 13 stig og var ekki nærri
því eins drjúgur og í fyrri leikjum
og munar um minna. Ólafur Ólafs
var með 12 stig, Ómar Örn 11 og
Jóhann Árni 10 stig.
Lokaleikurinn í þessari undanúr-
slitaviðureign verður í Grindavík á
skírdag kl. 19.15.
Úrslitaleikur hjá
Grindavík og Njarðvík
-í Röstinni í Grindavík á skírdag
v
Helgi Jónas með Keflavík og
Friðrik Ingi með Njarðvík
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur samdi í vikunni við Helga Jónas Guðfinnsson um að hann taki að sér þjálfun meistara-
flokks karla. Samningurinn er til tveggja ára.
Helgi Jónas ætti að vera öllum körfuboltaunnendum kunnur en
hann lék um árabil með liði Grindavíkur og landsliði Íslands auk
þess sem hann var um tíma atvinnumaður í Hollandi og Belgíu.
Helgi Jónas þjálfaði lið Grindavíkur með góðum árangri en árið
2012 gerði hann liðið að Íslandsmeisturum. Að því tímabili loknu
tók kappinn sér frí frá körfuboltaþjálfun en hann hefur þó undan-
farin ár eytt miklum tíma í að mennta sig á svði þjálfunar.
Þá eru Njarðvíkingar að ganga frá samningum við Friðrik Inga
Rúnarsson um að þjálfa bæði karla- og kvennalið félagsins. Friðrik
Ingi hefur þjálfað Njarðvíkinga áður og gerði þá að Íslandsmeist-
urum 1991 og 1998. Hann gerði Grindavík líka að meisturum 1996
og hefur þjálfað að auki bæði KR og landsliðið.
Allt fasteignir á Suðurnes-
jum – sími 426-8890
Allt fasteignir - fasteignasa-
la í Grindavík
YFIR 300 EIGNIR Á
SUÐURNESJUM TIL
SÖLU HJÁ OKKUR
Skoðið heimasíðu okkar alltfasteignir.is
Grindavík sími 426-8890
Dagbjartur Willardsson sölustjóri gsm 861 7507 // Þórir Sigfússon sölufull-
trúi gsm 612 2266 // Þorbjörn Pálsson löggiltur fasteignasali gsm 898 1233.
Samtals unnu sundmenn ÍRB 35 verðlaun á ÍM50
mótinu sem fram fór um sl.
helgi. Þar af voru 5 gull, 16
silfur og 14 brons eða 28%
allra verðlauna sem voru veitt
á mótinu. Sunneva Dögg var
með besta árangur ÍRB kvenna
á mótinu með 714 FINA stig í
800 m skriðsundi og Kristófer
Sigurðsson var með besta ár-
angur ÍRB karla með 713 FINA
stig í 400 m skriðsundi.
Liðið eignaðist fjóra Íslands-
meistara á mótinu. Þröstur
Bjarnason varð Íslandsmeistari í
bæði 800 og 1500 m skriðsundi,
Kristófer Sigurðsson í 200 m
skriðsundi, Sunneva Dögg Frið-
riksdóttir í 1500 m skriðsundi
og Sylwia Sienkiewicz í 200 m
flugsundi. Sundlið ÍRB var með
stærsta liðið á móti ÍM50 eða alls
33 sundmenn.
Sunneva Dögg Friðriksdóttir,
Eydís Ósk Kolbeinsdóttir og Kar-
en Mist Arngeirsdóttir settu allar
íslensk aldursflokkamet á mót-
inu. Sunneva sló met síðan 2005
í 1500 m skriðsundi í stúlkna-
flokki og bætti það um 9 sek.
Eydís Ósk sló 1500 m skriðsund-
metið í telpnaflokki og bætti það
um 20 sek og náði einnig að vera
7 sek undir telpnametinu í 800
skriði en var þá önnur í bakk-
ann í aldursflokknum þann-
ig að aðeins munaði nokkrum
sekúndubrotum. Karen Mist var
með metaregn um helgina en
hún byrjaði mótið á því að slá
telpnamet síðan 2005 í 50 og 100
m bringusundi og svo bætti hún
aftur metið í 50 m bringusundi
tvisvar síðasta dag mótsins.
Þrjár boðsundsveitir náðu einn-
ig íslandsmetum í stúlknaflokki.
Íris Ósk Hilmarsdóttir, Sunneva
Dögg Friðríksdóttir, Sylwia Sien-
kiewicz og Eydís Ósk Kolbeins-
dóttir slógu metið í 4x200 skrið-
sundi og 4x100 skriðsundi og
Íris, Sunneva, Sylwia og Karen
Mist Arngeirsdóttir náðu metinu
í 4x100 fjórsundi. Metið í 4x200
skriðsundi átti ÍRB síðan 2013 en
hin tvö átti SH síðan 2008.
Í ár voru tvær nýjar greinar á
ÍM50. Það voru blandað 4x100
skrið- og fjórsund. ÍRB vann
brons í báðum þessum greinum
með A-liðið en B-liðin náðu
bæði nýjum pilta/stúlkna metum
í þessum greinum. Í B liðunum
syndtu Eiríkur Ingi Ólafsson,
Svanfriður Steingrímsdóttir,
Gunnhildur Björg Baldursdóttir
and Björgvín Theodór Hilmars-
son í 4x100 fjór og Eiríkur Ingi
Ólafsson, Karen Mist Arngeirs-
dóttir, Bjarndís Sól Helenudóttir
and Ingi Þór Ólafsson í 4x100
skrið.
Yfirburðir
ÍRB á ÍM50
Unnu þriðjung verðlauna á mótinu
Elvar Már
Friðriksson í
baráttu við Jón
Guðmundsson
og Daníel Guð-
mundsson í
Ljónagryfjunni.
VF-mynd/pket.