Víkurfréttir - 23.01.2014, Qupperneq 4
fimmtudagurinn 23. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR4
Hugmyndir að hraðlest milli Keflavíkurflugvallar og
miðborgar Reykjavíkur voru
kynntar á opnum fundi á Ásbrú í
vikunni. Hraðlest gæti hafið starf-
semi árið 2022 miðað við að farið
verði í verkefnið strax á næsta
ári. Stofnkostnaður yrði á bilinu
95-105 milljarðar króna. Run-
ólfur Ágústsson ráðgjafi fór yfir
möguleika hraðlestarsamgangna
á þessari leið en hann hefur verið
að skoða verkefnið fyrir Kadeco
- Þróunarfélag Keflavíkurflug-
vallar, verkfræðistofuna Eflu,
fyrirtækjaráðgjöf Landsbank-
ans, Isavia, Ístak, Reykjavíkur-
borg, fasteignafélagið Reiti og
Samband sveitarfélaga á Suður-
nesjum. Markmið verkefnis var
að kanna kostnað og hagkvæmni
þess að byggja og reka hraðlest
milli Keflavíkurflugvallar og mið-
borgar Reykjavíkur í einkafram-
kvæmd.
Hámark 20 mínútna ferðatími
Forsendur hraðlestar eru að ferða-
tími verði innan við 20 mínútur að
hámarki og að ferðatíðni verði á 15
mínútna bili á annatíma. Undir-
búningstími vegna hraðlestar er 4
ár og framkvæmdatíminn er 3 ár.
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum
er gert ráð fyrir 3-4 milljónum far-
þega á ári 2023 en 5-6,5 milljónum
ársfarþega 10 árum síðar. Stofn-
kostnaður vegna hraðlestar er á
bilinu 95-105 milljarðar króna en
gert er ráð fyrir um 10 milljarða
ársbrúttótekjum við opnun.
Fjórar lestareiningar
á tvöföldum teinum
Hraðlestin mun notast við tvöfalda
teina eftir yfirboði frá Keflavík að
Hafnarfirði. Einfaldur teinn liggur
svo um göng frá Straumsvík að
miðborg Reykjavíkur. Lengd leiðar
er 46 km, þar af 12,3 í göngum.
Meðalhraði lestarinnar er u.þ.b.
180 km/klst. Hámarkshraði rúm-
lega 200 km/klst. Fjórar lestarein-
ingar sem geta í upphafi annað allt
að 1.000 manns á klukkustund í
hvora átt. Möguleiki á að a.m.k.
tvöfalda þá getu síðar. Hugmyndin
gerir ráð fyrir að aðeins séu tvær
lestarstöðvar, önnur sem yfirbyggð
lestarstöð við flugstöðina, hin
neðanjarðarstöð við gangaendann
í miðborg Reykjavíkur. Fjórir mis-
munandi farþegahópar myndu
nýta sér lestarsamgöngurnar. Fyrst
skal nefna erlenda ferðamenn á
leið til og frá landinu, þá íslenska
ferðamenn í sömu erindum. Þriðji
hópurinn eru svokallaðir skiptifar-
þegar og loks almennir innlendir
farþegar.
- KEFLAVÍKURHRAÐLESTIN // Möguleikar á lest milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar skoðaðir:
Þetta er gríðarlega stór fram-kvæmd. Við erum að áætla
kostnað upp á 95-105 milljarða
króna og að framkvæmdin taki
um 4 ár í undirbúningi og um 3
ár í framkvæmd. Þetta er mjög
stórt verkefni sem myndi hafa
mikil áhrif á Suðurnesjum og
myndi færa Suðurnes í sömu
stöðu og úthverfi Reykjavíkur,
sem myndi hækka fasteignaverð
og bæta atvinnulífið“.
Þetta segir Runólfur Ágústsson,
ráðgjafi, sem vinnur að úttekt á
því hvort hagkvæmt sé að ráðast
í lagningu lestarspors milli Kefla-
víkurflugvallar og miðborgar
Reykavíkur.
- Nú heyrum við áhyggjur hjá
ferðaþjónustunni að þetta muni
senda alla útlendingana beint til
Reykjavíkur.
„Lestin virkar í báðar áttir. Ég held
að það sé að skapast með þessu,
ef af verður, miklu stærri og fleiri
tækifæri heldur en þær ógnanir
sem mögulegar breytingar hafa
í för með sér. Menn þurfa að
mæta því með opnu og jákvæðu
hugarfari og skynja tækifærin sem
breytingar hafa í för með sér.
- Er þetta raunhæft verkefni?
„Þetta er ekki spurning um hvort,
heldur hvenær. Almennt er talið
að það þurfi þrjár milljónir far-
þega til að standa undir svona
framkvæmd að lágmarki. Við
erum að gera ráð fyrir 3 til 4 millj-
ónum farþega árið 2024 og svo
hóflegum vexti þaðan í frá. Við
teljum að þetta geti verið og sé
klárlega raunhæft verkefni. Við
erum að reikna arðsemina og
erum hóflega bjartsýn á að þetta
gangi upp“.
- Miðað við þá stóru tölu sem
þetta kostar, þetta er þá lengi að
borga sig upp. Hverjir eru til-
búnir að kaupa sig inn í svona
fyrirtæki?
„Verkefnið og framtíð þess ræðst
af slíku að hægt sé að selja það
fjárfestum. Við erum að horfa á
þetta til 30 ára; að menn fái á þeim
tíma sína peninga til baka“.
- Þú vilt meina að innan 10 ára
verði þetta raunhæft og að fram
að þeim tíma noti menn tímann
til að vinna í málinu?
„Það er hugmyndin. Við erum
að vinna að viðskiptaáætlun og
ætlum að skila henni af okkur um
miðjan febrúar. Við erum komin
með stofnkostnaðinn nokkuð vel
framsettan. Við höfum nokkuð
góða hugmynd um mögulegar
tekjur og erum núna að vinna í
rekstrarkostnaði, sem skiptir
verulegu máli“.
- Stendur þetta ekki og fellur með
því að einhverjir séu tilbúnir að
borga brúsann? Ertu með hug-
myndir um fjárfesta, t.d. lífeyris-
sjóði?
„Ég ætla ekki að hafa hugmyndir
um það. Verkefnið stendur og
fellur með því að sterkir fjárfestar
séu tilbúnir að leggja í það fjár-
magn vegna þess að þeir sjá arð-
semina og sjá sér hag í því. Svona
framkvæmd þarf bæði að fram-
kvæma með eigin fé og lánsfé.
- Þú fékkst margar spurningar úr
sal á kynningarfundinum og þær
voru alls ekki allar jákvæðar.
„Þær voru bæði jákvæðar og
neikvæðar. Ég held að heildar-
áhrifin hér suðurfrá af þessari
framkvæmd verði afar jákvæð en
auðvitað breytingar fyrir ákveðna
aðila. Það er ljóst að þessi sam-
göngumáti verður í samkeppni
við aðra samgöngumáta eins og
rútur, bíla og vegi. Þetta er kannski
bara partur af því sem koma skal í
okkar samfélagi“.
Hraðlestin
raunhæft
verkefni
Fjórar hraðlestir í förum á
milli Keflavíkurflugvallar
og miðborgar Reykjavíkur?
- segir Runólfur Ágústsson ráðgjafi
Hraðlest við Flugstöð
Leifs Eiríkssonar?
Gæti verið raunveruleiki
innan áratugar.
Texti og myndir: Hilmar Bragi Bárðarson / Páll Ketilsson
Lestin
virkar
í báðar áttir.
Ég held að það
sé að skapast
með þessu, ef
af verður, miklu
stærri og fleiri
tækifæri heldur
en þær ógnanir
sem mögulegar
breytingar hafa
í för með sér.
RUNÓLFUR ÁGÚSTSSON
Frá opnum fundi á Ásbrú í vikunni þar
sem hugmyndin um hraðlest var kynnt.tjú tjú!
Ekki nauðsynlegt að flytja innanlandsflugið
Flutningur innanlandsflugs úr Vatnsmýri til Keflavíkurflugvallar er ekki for-
senda lestar en hún skapar stóraukin sóknarfæri í innanlandsflugi. Farþegar
í innanlandsflugi myndu litlu bæta við heildarfarþegafjölda. Styttri tengitími
milli alþjóða- og innanlandsflugs myndu skapa innanlandsfluginu ný tæki-
færi en fáir erlendir ferðamenn nýta innanlandsflugið sem samgöngukost.
Skiptar skoðanir
Á fundinum á Ásbrú í dag komu fram mjög skiptar skoðanir á hugmyndinni
um hraðlest milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar Reykjavíkur. Áhyggjur
manna beinast helst að ferðaþjónustu á Suðurnesjum og að með lest sé verið
að flytja ferðafólk beint út af svæðinu. Þá var einnig talað fyrir því að með því
að tvöfalda Reykjanesbrautina alla leið frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar og til
Reykjavíkur þá væri hægt að stytta ferðatíma enn frekar og með þreföldun
brautarinnar væri einnig hægt að auka ferðahraða umtalsvert og nálgast þau
markmið sem sett eru með ferðatíma hraðlestar á milli þessara staða.