Víkurfréttir - 23.01.2014, Qupperneq 6
fimmtudagurinn 23. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR6
-ritstjórnarbréf
vf.is
Á háhraða út úr bænum
Á fyrstu dögum þessarar viku síðla janúar-
mánaðar voru tveir kappar á leið út úr
bænum á miklum hraða. Hannes Friðriks-
son er maður vikunnar á Suðurnesjum og
Runólfur Ágústsson er örugglega númer
tvö. Báðir á miklum hraða í lífinu.
Þorrablóts-annáll Keflvíkinga heillaði á sjöunda
hundrað gesti á blótinu og hafði síðan marg-
feldisáhrif þegar Víkurfréttir og fleiri sýndu
þennan skemmtilega videó-annál. Hannes
Friðriksson, sem hefur staðið í framlínu bæjar-
pólitíkur í Reykjanesbæ fyrir Samfylkinguna
og verið duglegur að halda meirihluta Sjálfstæðismanna við efnið með
skrifum í Víkurfréttir, var í hópnum sem tók gríninu illa. Hann hótaði
að stinga af með fyrsta bíl út úr bænum og fann annál Keflvíkinga allt
til foráttu. Keflvíkingar svöruðu því til að annállinn ætti bara að vera
upplýsandi og skemmtilegur, kannski pínu kryddaður. Hvað um það.
Hlutir gerðust hratt og viðbrögð við viðbrögðum Hannesar voru mikil
í samfélaginu og meira að segja rataði þetta í stóru netmiðlana. Nýjustu
fréttir eru þær að Hannes hefur tekið gleði sína á ný og er kominn heim
eins og hann segir í grein í blaðinu. Til stóð að blása í friðarpípu og gera
video-„skets“ með Hannesi „komnum heim“. Kíkið á vf.is til að sjá hann.
Þetta er góður endir. Hannes segist hafa fengið fólk til að hugsa
um ímynd bæjarfélagins og annálsmenn eru ánægðir að Hannes
sé ekki lengur í fýlu. Fínasta niðurstaða. Allir glaðir og hressir
í byrjun árs. Ef annállinn hefði farið illa í fleiri er ekki ólík-
legt að það hefðu orðið miklir fólksflutningar úr bænum.
Runólfur háhraðalestar-kappi kynnti í vikunni grundvöll fyrir því að
koma upp lestarkerfi milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Virkilega athyglis-
vert mál. Áhrifin verði lang mest góð fyrir Suðurnesjamenn. Jóhann
heitinn Einvarðsson, þingmaður og bæjarstjóri, reifaði fyrst þessa hug-
mynd fyrir allmörgum árum síðan. Þá var hlegið og hugmyndin þótti
ekki tímabær. Eflaust var Jóhann framsýnn og miðað við orð Runólfs
er þetta ekki spurning um hvort þetta verður að veruleika - heldur bara
hvenær. Miðað við faraþegaspár til næstu ára er líklegt að svo sé rétt.
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Þórgunnur Sigurjónsdóttir, thorgunnur@vf.is
Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur
Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.
Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn
sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Páll Ketilsson skrifar
SÍMI 421 0000
-mundi
Farðu úr bænum - hvað þetta
var fyndinn annáll!
Næstkomandi laugardag, 25. janúar, verður opnuð sýning á
nýjum verkum Svövu Björnsdóttur,
myndlistarmanns í sýningarsal
Listasafns Reykjanesbæjar í Duus-
húsum, í Keflavík.
Svövu þarf vart að kynna; hún hefur
um árabil verið meðal þeirra lista-
manna sem mest hafa lagt til endur-
nýjunar þrívíddarlistarinnar á land-
inu. Allt frá því hún
sneri heim frá Þýska-
landi við upphaf ní-
unda áratugarins, eftir
glæstan námsferil og
margvíslegan framgang
í München og víðar í
Evrópu, hefur hún sent
frá sér fjölda verka sem umbylt hafa
viðteknum hugmyndum okkar um
hlutverk og verkan þrívíddarmynda
í nútíma umhverfi. Verkin hefur hún
steypt úr lituðum pappírsmassa, sem
hefur gert henni kleift að nýta sýn-
ingarrými – og rými almennt – með
nýjum hætti. Þannig virkjar Svava
ekki einasta gólf og veggi, heldur
einnig loft, skúmaskot og afkima
sýningarrýmisins. Með markvissri
sviðsetningu verka sinna gerir hún
sérhvert rými að heildstæðri inn-
setningu með dramatísku ívafi.
Formgerð Svövu er sömuleiðis
óvenjuleg. Verk hennar minna í senn
á vélarhluta, form náttúrunnar og
lifandi verur, og eru jafn fjölbreytileg
að inntaki. Lögun og litróf verkanna
skipta hana mik lu
máli, en einnig léttleiki
þeirra, samspil og ljóð-
rænn slagkraftur.
Fyrir sýninguna í Lista-
safni Reykjanesbæjar
s e tt i Svava saman
innsetningu sem hún
nefnir KRÍA/KLETTUR/MÝ, og er
tilraun til að skapa samnefnara fyrir
ákveðna náttúruinnlifun. Og þó að
þessi innlifun sé ekki bein endur-
speglun aðstæðna hér í Keflavík, er
eflaust margt í henni sem Suður-
nesjabúar kannast við.
Sýningin er opnuð kl. 15
KRÍA/KLETTUR/MÝ
Vel heppnað Keflavíkurþorrablót
Rúmlega sexhundruð Keflvíkingar skemmtu sér vel á Þorrablóti Keflavíkur 2014 sem
fram fór í Íþróttahúsi Keflavíkur sl. laugardag.
Þrátt fyrir mikið fjör og mikinn mannfjölda fór allt
vel fram. Frábær þorramatur frá Réttinum, fjöl-
breytt skemmtiatriði og brekkusöngur sló í gegn.
Þá var fluttur videoannáll og góð veislustjórn var
í höndum Jóns Björns Ólafssonar. Ingó og veður-
guðirnir sáu um danstónlistina og gerðu það með
stakri prýði.
Á meðfylgjandi myndum má sjá lítinn hluta af
prúðbúnum þorragestum. Á efstu myndinni eru
kapparnir úr Þorrablótsnefndinni.
Í myndasafni á vf.is má sjá fleiri myndir.