Víkurfréttir - 23.01.2014, Qupperneq 22
fimmtudagurinn 23. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR22
Töluverðar væntingar voru gerðar til þess að Grind-
víkingar myndu blanda sér í
toppbaráttuna í Domino’s deild
kvenna í körfubolta þetta tímabil.
Liðið styrktist mikið með komu
leikmanna eins og Ingibjargar
Jakobsdóttur, Pálínu Gunnlaugs-
dóttur og Maríu Ben Erlings-
dóttur. Hinn sigursæli þjálfari
Jón Halldór Eðvaldsson var feng-
inn til þess að stýra liðinu sem
sigraði 1. deildina í fyrra. Meiðsli
og vandræði með erlenda leik-
menn hafa hins vegar sett stórt
strik í reikninginn.
„Þetta er búið að vera erfitt tíma-
bil. Það er mikið álag á nokkrum
einstaklingum þar sem leikið er
þétt. Það þarf að passa upp á að
halda öllum ferskum. Það hefur
ekki gengið eins vel og maður hafði
vonað,“ sagði Jón Halldór þjálfari
Grindvíkinga í samtali við blaða-
mann Víkurfrétta.
Leikmenn sem áttu
að bera liðið uppi
Tveir sterkustu leikmenn liðsins,
Pálína Gunnlaugsdóttir og Petr-
únella Skúladóttir hafa verið frá
að mestu þetta tímabil. Petrúnella
er barnshafandi og hefur ekkert
leikið og Pálína hefur verið meidd
síðan í lok nóvember. Síðan hún
meiddist hafa Grindvíkingar fallið
úr fjórða sæti deildarinnar í það
sjöunda og næstsíðasta. Af þeim
átta leikjum í deildinni sem Pálína
hefur misst af hafa sjö tapast, auk
eins leiks í bikarnum. „Þetta er bara
eins og þú myndir taka tvo bestu
leikmennina úr hvaða liði sem er
á landinu, landsliðsmenn sem eru
í byrjunarliði. Þetta er erfitt þegar
þú missir tvo leikmenn sem áttu í
raun að bera þetta lið uppi,“ segir
þjálfarinn.
Erfitt að skipta
um erlanda leikmenn
Það er óhætt að segja að Grindvík-
ingar hafi ekki verið heppnir með
erlenda leikmenn þessa leiktíðina,
en um áramót var Lauren Oosdyke
látin fara frá liðinu og Bianca Lutley
mætti til leiks. Sú síðarnefnda hefur
ekki alveg staðið undir væntingum
og samkvæmt heimildum Víkurf-
rétta þykir líklegt að hún verði látin
fara innan skamms. „Það versta
sem getur gerst, fyrir utan að missa
þína bestu leikmenn í meiðsli, er
að skipta um erlendan leikmann.
Það fer mikill tími í að kenna þeim
inn á leik liðsins og fá þá til þess að
treysta þjálfaranum og liðsfélögum
sínum.“ Jón segist hins vegar hafa
verið sáttur við Oosdyke en eftir
að Pálína meiddist þurfti hann
öðruvísi leikmann. Hópurinn er
þunnskipaður hjá þeim gulklæddu
um þessar mundir og hefur Jón
aðeins getað nýtt níu leikmenn að
undanförnu, þar með er talda hina
13 ára Hrund Skúladóttur. „Það
eru ungar stelpur þarna sem eru
óvanar að leika margar mínútur
í efstu deild og það tekur tíma að
öðlast reynslu.“
Ekki vanar að axla ábyrgð
Pálína hefur verið að æfa með
liðinu að undanförnu en engu að
síður í endurhæfingu vegna hné-
meiðsla. Hún var í búningi gegn
KR í bikarnum á dögunum en Jón
ákvað að nota hana ekki í leiknum.
Ef litið er á tölfræðina, og þá stað-
reynd að aðeins hafi komið tvö stig
í hús hjá Grindvíkingum frá því að
Pálína meiðist, þá er ekki óeðlilegt
að tengja slæma gengið við fjarveru
hennar. „Hún er auðvitað besti
leikmaðurinn á Íslandi, hefur verið
kjörin það undanfarin tvö ár. Þegar
þú ert með þunnan hóp og missir
besta leikmanninn þinn út þá getur
það vegið ansi þungt. Það er hins
vegar þannig að eins manns dauði
er annars brauð. Ég hef alltaf sagt
það að þegar einhver dettur út þá
verða aðrir leikmenn að stíga upp.
Vandamálið sem við höfum verið
að glíma við er að þessar stelpur eru
ekki vanar að taka á sig ábyrgð. Allt
frá yngri flokkum hefur það verið
þannig. Ef þú tekur yngri flokkana
í Keflavík sem dæmi, þá er búið
að kenna þessum krökkum frá 7-8
ára aldri að vera sigurvegarar. Þær
í Grindavík hafa alla burði til þess
að axla ábyrgð en það tekur tíma að
kenna þetta.“
Á undirbúningstímabilinu áttu
Grindvíkingar hreinlega í erfið-
leikum með að smala í lið á æfingar.
Fjölmargir leikmenn sem höfðu
verið með í fyrra ákváðu að halda
ekki áfram af ýmsum ástæðum.
„Þetta var nýtt fyrir mér að vera
með lið þar sem það eru vandræði
með að fá mannskap á æfingar.
Ég vinn því bara úr því sem ég er
með, það þýðir ekkert að vera að
velta sér upp úr þessu.“ Jón segir að
sjálfsögðu sér stefnt á fjórða sætið
aftur og þar með í úrslitakeppni.
„Það er líf og fjör í þessu. Við leggj-
umst ekkert í jörðina og förum að
gráta, við höldum bara áfram. Ef
allt gengur upp þá náum við fjórða
sætinu, þá byrjar líka nýtt mót,“
segir þjálfarinn að lokum.
Þetta er
erfitt þegar
þú missir tvo
leikmenn sem áttu í
raun að bera þetta lið
uppi
-íþróttir pósturu eythor@vf.is
Frjálst fall Grindvíkinga
eftir brotthvarf Pálínu
- Jón Halldór Eðvaldsson segir tímabilið hafa verið erfitt í Grindavík
ÁLAGNINGARSEÐLAR
FYRIR ÁRIÐ 2014
Tilkynning til eigenda fasteigna um álagningu ársins 2014
Álagningarseðlar fyrir árið 2014 verða eingöngu birtir rafrænt og ekki sendir út í bréfapósti. Nú geta fasteignaeigendur nálgast
álagningarseðilinn á mittreykjanes.is og á upplýsinga- og þjónustuveitunni www.island.is. Reykjanesbær mun þó áfram senda
einstaklingum 67 ára og eldri álagningarseðil í pósti. Þeir sem óska eftir að fá álagningarseðilinn sendan í pósti er bent á að
senda tölvupóst á netfangið thjonustuver@reykjanesbaer.is
Gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda
Gjalddagar fasteignagjalda eru tíu. Fyrsti gjalddagi er 25. janúar 2014 til og með 25. október 2014. Eindagi fasteignagjalda er
þrjátíu dögum eftir gjalddaga og falla öll gjöld ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Reynist heildarálögð gjöld 20.000 krónur eða
lægri er gjalddagi heildargjaldanna 25. janúar 2014. Athygli er vakin á því að greiðsluseðlar vegna fasteignagjalda eru sendir út
rafrænt og birtast í heimabönkum. Þeir sem vilja fá senda greiðsluseðla er bent á að senda tölvupóst
á thjonustuver@reykjanesbaer.is
Mynd: www.karfan.is