Víkurfréttir - 30.01.2014, Side 12
fimmtudagurinn 30. janúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR12
ATVINNA
HLJÓMAHÖLLIN
STARFSMAÐUR Í
MÓTTÖKU/AFGREIÐSLU
HLJÓMAHALLAR
Hljómahöll óskar e
ir því að ráða
starfsmann í móöku/afgreiðslu
Hljómahallar/Rokksafns Íslands.
Starfsmaður í móöku/afgreiðslu
Rokksafnsins er ábyrgur fyrir fagmann-
legri móöku gesta sem koma í safnið
og að þeir fari ánægðir og margs vísari
um Rokksögu Íslands en þegar þeir
komu.
Verksvið
• Móaka einstaklinga og hópa sem
koma í Rokksafn Íslands
• Miðasala og upplýsingagjöf til gesta
• Aending og kennsla á snjalltæki,
sem eru hluti af safninu, og e
irlit
með að þeim sé skilað að
notkun lokinni
• Símsvörun og upplýsingagjöf ásamt
móöku pantana
• Afgreiðsla og sala veitinga í samráði
við umsjónarmann veitinga Hljómahallar
• Afgreiðsla og sala minjagripa og
annars varnings sem kann að verða
seldur í Rokksafninu
• Önnur störf í samráði við
framkvæmdastjóra og umsjónarmann
veitinga
Hæfniskröfur
• Rík þjónustulund
• Mjög góð íslensku og enskukunnáa.
Færni í fleiri tungumálum kostur.
• Áhugi og þekking á sögu íslenskrar
popp- og rokktónlistar.
• Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfni og sjálfstæð
vinnubrögð
• Mjög góð tölvukunnáta
• Reynsla af kassauppgjöri æskileg
Umsóknarfrestur er til og með
10. febrúar nk
Umsækjendur eru beðnir um að sækja
um starfið á vef Reykjanesbæjar
UMSJÓNARMAÐUR VEITINGA Í
HLJÓMAHÖLL
Hljómahöll óskar e
ir því að ráða
umsjónarmann veitinga.
Umsjónarmaður veitinga Hljómahallar
er ábyrgur fyrir allri veitingaþjónustu í
húsinu s.s. vínveitingum, aðkeyptri vöru
og þjónustu, e
irliti og samskiptum við
utanaðkomandi veitingamenn auk
e
irlits og umsjónar með tengdum
tækjum, búnaði og húsgögnum Hljóma-
hallar. Um fullt starf er að ræða.
Verksvið
• Umsjón og e
irlit með allri
veitingaþjónustu í húsinu við hin
ýmsu tækifæri
• Umsjón og e
irlit með eldhústækjum,
húsgögnum, borðbúnaði og öðrum
tengdum búnaði
• Viðvera þegar boðið er upp á veitingar
í húsinu
• Samskipti, ráðgjöf og aðstoð við
leigutaka við undirbúning viðburða
• Samskipti við veitingamenn sem koma
í húsið og starfsfólk þeirra
• Ráðningar, mönnun og stjórnun
þjónustufólks Hljómahallar
• Umsjón með eigin veitingasölu hússins
við almenna viðburði
• Uppröðun og undirbúningur sala og
húsbúnaðar í samvinnu við sviðs-
og tæknistjóra
• Móaka hópa og þjónusta
Hæfniskröfur
• Menntun eða mikil reynsla sem
nýtist í starfi
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Skipulagshæfni og sjálfstæð
vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til og með
10. febrúar n.k. Umsækjendur eru beðnir
um að sækja um starfið á vef Reykjanes-
bæjar.
Umsóknum um störfin þurfa að fylgja starfsferilskrár og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í það
sem starf sem só er um. Nánari upplýsingar veitir Tómas Young
(tomas@hljomaholl.is), framkvæmdastjóri Hljómahallar.
Hljómahöll er ný menningarmiðstöð í Reykjanesbæ sem
er ætlað að vera máarstólpi menningarlífs á Reykjanesi.
Finnar leggja til tvær björg-unarþyrlur sem geta verið til
aðstoðar Landhelgisgæslunni í
leitar- og björgunarverkefnum á
meðan æfingin „Iceland Air Meet
2014“ fer fram hér á landi. Þyrl-
urnar komu með flutningaskipi
til hafnar í Helguvík í gær og voru
Víkurfréttir á staðnum og smelltu
af myndum.
Eins og Víkurfréttir hafa áður
fjallað um stendur nú yfir fjölþættur
undirbúningur fyrir æfinguna sem
mun fara fram samhliða loftrýmis-
gæslu Atlantshafsbandalagsins við
Ísland. Gert er ráð fyrir að samtals
verði um að ræða 300 liðsmenn frá
þjóðunum og um 20 flugvélar á
landinu vegna æfingarinnar.
Æfingin þjónar m.a. þeim til-
gangi að þjálfa þjóðirnar í að flytja
mannafla og búnað til björgunar-
starfa fjarri heimahögum og ís-
lenska samstarfsaðila í að taka á
móti og þjónusta svo fjölmennt
björgunarlið. Hún verður að þessu
sinni í umsjón flugsveitar norska
flughersins. Sænskar og finnskar
flugsveitir taka þátt í æfingunni auk
Norðmanna.
n Styttist óðum í „Iceland Air Meet 2014“:
Finnsku björgunar-
þyrlurnar komnar
-fréttir pósturu vf@vf.is
„Ég læt ekkert
stöðva mig,“
s e g i r M a r í a
Ósk Kjartans-
dóttir, einstæð
m ó ð i r s e m
er búin að fá
f i m m h e i l a -
blæðingar. Þá
síðustu fékk hún 12. október í
fyrra. María Ósk stendur fyrir
tónleikum í Norðurljósasal
Hörpu 9. febrúar n.k. og mun
hagnaður af tónleikunum renna
til rannsókna á arfgengri heila-
blæðingu.
Margir landsþekktir tónlistar-
menn munu koma fram, m.a.
Kaleo, Bubbi Morthens, Einar
Ágúst, Þórunn Antonía, Einar
Ágúst, Lögreglukórinn og svo
verður atriði frá Verslunarskóla
Íslands. Kynnir verður Auðunn
Blöndal. Aðgangseyrir er kr. 3900
og hægt er að nálgast miða á miði.
is.
Einnig með barnaskemmtum
Klukkan 14:00 til sama dag
verður barnaskemmtun í sama sal
þar sem m.a. munu koma fram
Íþróttaálfurinn, Solla stirða, Frið-
rik Dór og töframaðurinn Einar
Mikael. - Nánar á vf.is
n Tónleikar til styrktar rannsóknum
á arfgengri heilablæðingu:
Hefur fulla trú á að fylla salinn
Kristjana Henný Axelsdóttir hefur verið ráðin nýr þjálfunarstjóri
bóklegrar deildar Flugakademíu
Keilis og tekur hún við starfinu af Ír-
isi Erlu Thorarensen sem hefur verið
ráðin til Icelandair. Einnig hafa Guð-
leifur Árnason, Gunnar Thoraren-
sen, Søren Bendixen, Robin Farago
og Michael Dencker Lauritzen verið
ráðnir til kennslu við skólann. Kemur
það til bæði vegna aukinna umsvifa í
flugkennslu og sökum þess að fjöldi
kennara og starfsmanna skólans hafa
undanfarið verið ráðnir til starfa við
flugfélög bæði hérlendis og erlendis.
Þá hafa einnig fjölmargir útskrifaðir
nemendur úr atvinnuflugmanns-
námi Keilis verið ráðnir til starfa sem
flugmenn á undanförnum misserum.
Samkvæmt Tómasi Beck, skólastjóra
Flugakademíu Keilis er erfitt að sjá á
eftir svona mörgum góðum starfs-
mönnum, en engu að síður ánægjulegt
að svona margir aðilar sem tengjast
skólanum hafi fengið draumastarfið
sem atvinnuflugmenn. Það sé stað-
festing á því að þeir aðilar sem leggja
stund á flugnám og starfa hjá Keili séu
eftirsóknarverðir starfskraftar í flug-
heiminum.
Á síðasta ári voru 4.250 skráðir flug-
tímar hjá Flugakademíu Keilis og eru
líkur á að sá tímafjöldi verði enn meiri
á þessu ári, enda mikil ásókn í flugnám
hjá Keili bæði meðal innlendra og er-
lendra nemenda. Þess má geta að fullt
er í atvinnuflugmannsnám við skólann
á vorönn 2014.
NEMENDUR OG STARFS-
FÓLK KEILIS EFTIRSÓTTIR