Víkurfréttir - 30.01.2014, Síða 13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 30. janúar 2014 13
Aníta Mist Albertsdóttir er
í gerðaskóla í 9. bekk. Hún væri
til í að hitta Beyonce og segir að
samfélagsfræði sé leiðinlegasta
fagið í skólanum.
Hvað geriru eftir skóla?
Læri og fer á fótboltaæfingar og
hitti vinkonur mínar.
Hver eru áhugamál þín?
Fótbolti.
Uppáhalds fag í skólanum?
Íslenska og stærðfræði.
En leiðinlegasta?
Ég verð að segja samfélagsfræði.
Ef þú gætir hitt einhvern frægan,
hver væri það?
Ég væri til í að hitta Beyonce.
Ef þú gætir fengið einn ofurkraft
hver væri hann?
Það væri gaman að geta flogið.
Hvað er draumastarfið
í framtíðinni?
Mig langar til þess að verða sál-
fræðingur.
Hver er frægastur
í símanum þínum?
Bára Kristín.
Hver er merkilegastur
sem þú hefur hitt?
Cristiano Ronaldo.
Hvað myndiru gera ef þú mættir
vera ósýnileg í einn dag?
Stríða vinkonum mínum.
Hvernig myndiru lýsa
fatastílnum þínum?
Bara ósköp venjulegur.
Hvernig myndiru lýsa þér
í einni setningu?
Ég er mjög hress og opin.
Hvað er skemmtilegast
við Gerðaskóla?
Félagskapurinn og kennararnir.
Hvaða lag myndi lýsa þér best?
Free - Rudimental.
Hvaða sjónvarpsþáttur
myndi lýsa þér best?
Friends.
Besta:
Bíómynd? Notebook er í uppá-
haldi.
Sjónvarpsþáttur? Friends.
Tónlistarmaður/Hljómsveit?
Beyonce.
Matur? Pizza.
Drykkur? Mountain Dew er besti
drykkurinn.
Leikari/Leikkona? Ryan Gosling.
Fatabúð? Forever 21 og HM.
Vefsíða? Facebook.
Bók? Sogblettur.
- fs-ingur vikunnar pósturu eythor@vf.is
Helsti kostur FS?
Eini skólinn í Reykjanesbæ og svo
er líka mikið um skemmtilega við-
burði.
Hjúskaparstaða?
Ég er á lausu.
Hvað hræðistu mest?
Að missa einhvern nákominn mér.
Hvaða FS-ingur er líklegur til þess
að verða frægur og hvers vegna?
Ég held að Sölvi Elísabetarson eigi
eftir að verða þekktur fyrir hin
ýmsu uppátæki.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Að mínu mati er það meistari
Tryggvi Ólafsson.
Hvað sástu síðast í bíó
og hvernig var sú mynd?
Anchorman 2, hún var frábær.
Hvað finnst þér vanta í mötu-
neytið?
Alexander Hauksson er á 17.
ári og stundar nám á Náttúru-
fræðibraut við Fjölbrautaskóla
Suðurnesja. Alexander er Hús-
víkingur að upplagi en hann
fluttist til Innri-Njarðvíkur árið
2009. Alexander er í Gettu betur
liði FS en um síðustu helgi tapaði
liðið eftir bráðabana í 16-liða
úrslitum keppninnar. Alexander
er FS-ingur vikunnar að þessu
sinni.
Myndi hiklaust fá Bjarnabolta aftur
Krapvél.
Hver er þinn helsti galli?
Ég á það til að vera allt of ákveðinn.
Hvað er heitasta parið
í skólanum?
Er það ekki í tísku að vera single?
Hverju myndirðu breyta
ef þú værir skólameistari FS?
Ég myndi hiklaust fá Bjarnabolta
aftur og svo myndi ég líka laga
netið í skólanum.
Áttu þér viðurnefni?
Hef verið kallaður Alli,
Alex og Lexi.
Hvaða frasa eða orð
notar þú oftast?
„Sæll“
Hvernig finnst þér
félagslífið í skólanum?
Fólk mætti horfa á það með já-
kvæðara hugarfari og taka meiri
þátt. Annars er það bara mjög gott.
Áhugamál?
Íþróttir, ferðalög, tónlist og að gera
eitthvað skemmtilegt með
vinunum.
Hvert er stefnan tekin
í framtíðinni?
Ég hef ekki ákveðið mig ennþá.
Ertu að vinna með skóla?
Nei ekki í augnablikinu.
Hver er best klædd/ur í FS?
Hún Maríanna Líf er alltaf vel til
höfð.
Hver myndi leika þig ef gerð yrði
kvikmynd um líf þitt?
Bradley Cooper eða Jason Statham.
Eftirlætis:
Kennari?
Haukur Ægis er snillingur
Fag í skólanum? Efnafræði
Sjónvarpsþættir? Breaking bad,
Hawaii five O og Family guy
Kvikmynd? Pulp fiction eða The
Dark knight. Get ekki valið á milli
Hljómsveit/tónlistarmaður?
Avicii
Leikari? Jason Statham
Vefsíður? Facebook, Youtube
og Google
Flíkin? Blend úlpan mín
Skyndibiti? Domino's
Hvaða tónlist/lag fílarðu í laumi
(guilty pleasure)? Mér hefur alltaf
fundist Party in the USA með
Miley Cyrus vera gott lag
- ung // Aníta Mist Albertsdóttir pósturu pop@vf.is
Hress og opin
Sigurður Björgvinsson, Þórdís Guðjónsdóttir,
Svala Björgvinsdóttir, Baldur Kristjánsson,
Árni Björgvinsson, Friðbjörg Helgadóttir,
Sveinn Vopnfjörð Björgvinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi
Björgvin Árnason,
Fv. félagsmálastjóri, Suðurgötu 8, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 18. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju
fimmtudaginn 6. febrúar kl. 13:00.
Nakkaew Sara Seelarak,
Eiríkur Hafberg Sigurjónsson, Elín Or Seelarak,
Kristján Reykdal Sigurjónsson, Aðalheiður Bjarnleifsdóttir,
Jóhannes Snævar Harðarson, Unnur Svava Sverrisdóttir,
Hörður Snævar Harðarson, Súsanna Björg Fróðadóttir,
Karl Narong Seelarak, Rathcanee Malai,
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sigurjón Reykdal,
vélstjóri og leigubifreiðastjóri,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
miðvikudaginn 15. janúar.
Útför fór fram í Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn
23. janúar í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir vilja aðstandendur færa starfsfólki
á legudeild Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
William Young,
Guðrún Helga Mehrins, Monique Mehrins,
Sigríður Anna Adolfsdóttir,
Vilhelm Bernhöft Adolfsson, Hildur Björk Sigurgeirsdóttir,
og fjölskyldur.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og systir
Hrafnhildur Betty Young,
andaðist að heimili sínu í South Carolina þann 10. janúar sl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Sigríður Guðrún Ólafsdóttir,
Svanhildur Heiða Gísladóttir, Michael Anthony Weaver,
Trausti Gíslason, Kristín Guðmundsdóttir,
Bergrós Gísladóttir,
og barnabörn.
Ástkæri eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Gísli Kristján Traustason,
húsasmíðameistari, Háseyla 25, Innri Njarðvík,
lést föstudaginn 24. janúar, útför hans fer fram í
Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn 31. janúar kl.14:00.
Nemendafélag Fjölbrauta-skóla Suðurnesja mun halda
fatamarkað á sal skólans næst-
komandi laugardag frá kl. 14-17.
Öllum Suðurnesjabúum er vel-
komið að koma og gera góð kaup.
Nemendur skólans geta leigt borð
á 2500 krónur og allur ágóðinn
af seldum borðum fer til Barna-
spítala Hringsins.
Óska eftir strákum
Það eru þegar í kringum 10 manns
sem hafa leigt borð og munu verða
með föt til sölu á markaðnum. Enn
er hægt að næla sér í borð. „Við
vonumst til þess að fá miklu fleiri til
þess að taka þátt í þessu með okkur,
þetta eru allt stelpur sem hafa
ákveðið að vera með en við viljum
endilega fá strákana líka með! Við
verðum ekki bara með föt fyrir
okkar aldurshóp heldur verða föt
á alla aldurshópa, þú getur fundið
allt frá barnafötum og uppúr,“ sagði
Elva Dögg Sigurðardóttir formaður
NFS í samtali við Víkurfréttir.
Gestum verður svo boðið upp á
atriði úr nýjum söngleik skólans,
Dirty Dancing, klukkan 16:00. Svo
verður leikhópurinn með góðgæti
til sölu á meðan á markaðinum
stendur. Fyrirhugað er að hefja
sýningar á söngleiknum 20. febrúar
næstkomandi.
Fatamarkaður NFS á laugardag
- Til styrktar Barnaspítala Hringsins