Víkurfréttir - 06.02.2014, Qupperneq 1
vf.is
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUDAGURINN 6. FEBRÚAR 2014 • 5. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
af lyfjum utan greiðsluþátttöku
af lausasölulyfjum og öðrum vörum
Frábært
vöruúrval
og þjónusta
í Reykjanesbæ
16% afsláttur
12% afsláttur
Lyfja Reykjanesbæ
Krossmóa 4
Sími 421 6565
www.lyfja.is
Afgreiðslutími:
mán.–fös. 9–19
laugard. 10–16
sunnud. 12–16
Betri kjör fyrir heldri borgara
Félagar í Félagi eldri borgara
á Suðurnesjum njóta sérkjara
í Lyfju Reykjanesbæ.
Við stefnum að vellíðan.
Við Suðurnesjamenn vitumað hér er brú á milli tveggja
heimsálfa. Mig langar að búa til
nýja hefð sem verður fólgin í því
að taka mynd hjá þessari brú
eins og verið sé að halda á brúnni
sem tengir Evrópu og Ameríku,“
segir Daniel Alexandersson, 13
ára nemi í 8. bekk í Akurskóla.
Skakki turninn í ítölsku borginni
Pisa er þekkt kennileiti og ferða-
menn taka gjarnan mynd af sér
hallandi eins og turninn eða
styðjandi við hann. „Þetta er fræg
ítölsk hefð og mig langar að hvetja
til slíkrar hefðar hér hjá okkur.
Auðvitað verður hún ekki allt í
einu til og það þyrfti kannski að
gera þægilega gangstétt sem leiðir
að staðnum þar sem fólkið mun
taka myndirnar,“ segir Daniel.
Hann bætir við að sniðugt væri að
láta þetta svo berast innan ferða-
mannaiðnaðarins á Íslandi.
„Hingað til lands koma margir
frægir og það væri sniðugt að
fá þá til þess að „halda á brúnni
milli heimsálfa. Ég er viss um að
þessi hefð gæti orðið mikilvæg
fyrir Suðurnesin því hingað koma
margir ferðamenn. Þetta gæti orð-
ið skemmtileg viðbót til þess að
hvetja ferðamenn til að fara víðar
um Reykjanesið,“ segir hinn hug-
myndaríki Daniel.
VILL LÁTA „HALDA Á“
BRÚNNI Á MILLI HEIMSÁLFA
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Dim
sokk
ar 20
% a
fslátt
ur
TILB
OÐ
VIKU
NNA
R
Atvinnuleysi á Suður-nesjum dróst töluvert
saman á milli áranna 2012
og 2013. Í desember 2013 var
atvinnuleysi 30% minna en
á sama tíma árið áður. Alls
voru 779 atvinnulausir á
Suðurnesjum í lok árs 2013
en 1123 í lok árs 2012.
Þetta kemur fram á vef Vinnu-
málastofnunar. Þetta telst
jákvæð þróun og atvinnu-
lausum hefur fækkað jafnt og
þétt en hæst fór fjöldi þeirra
í 1670 sem voru án atvinnu
á Suðurnesjum árið 2009. Þá
fækkar atvinnulausum talsvert
í öllum sveitarfélögum á svæð-
inu. Atvinnulausir karlar voru
í lok árs 2012 alls 567 og konur
556 án atvinnu en í desember
2013 voru 357
karlar án atvinnu
á Suðurnesjum
og 422 konur.
Að sögn Krist-
jáns Gunnars-
sonar, formanns Verkalýðs- og
sjómannafélags Keflavíkur og
nágrennis, eru samninga-
nefndir að hittast á ný þessa
dagana og ráða ráðum sínum,
eftir að samningar voru felldir
í janúar. Jákvæð þróun og
stígandi sé í atvinnumálum
og hann nefnir til dæmis að
100 færri voru á atvinnuleysis-
skrá í janúar en í desember.
„Þrátt fyrir að kjarasamningar
væru felldir erum við í upp-
sveiflu. Þegar þeir hafa náðst
verður þetta allt upp á við,“
segir Kristján.
Atvinnuleysi
35% minna
Mörghundruð nemendur í
9. og 10. bekk grunnskóla
á S u ð u r n e s j u m ky n n t u
sér störf um 60 manns í
í þ r ó tta m i ð s t ö ð i n n i v i ð
Sunnubraut á mánudags-
morgun. Víkurfréttir voru
á staðnum og tóku myndir
og einnig viðtöl við nokkra
viðstadda.
Áhugasvið nemendanna
voru fjölbreytt og þeir voru
vel undirbúnir með tilbúnar
spurningar. Flestir nem-
endur spurðu um laun og
vinnutíma en lengd náms
o g a t v i n n u m ö g u l e i k a r
fylgdu þar fast á eftir.
Fleiri myndir og frásögn eru
á bls. 6 í blaðinu í dag.
Hvað fáum við í laun?
Listamaðurinn Guðmundur Rúnar Lúðvíksson
hefur fengið góðar móttökur við hugmynd sinni
um gera átta metra háa Norðurljósaturna sem
hann hyggst reisa í Reykjanesbæ. Guðmundur
hefur falast eftir landi undir verkið en ætlar
sjálfur að standa straum af kostnaði við verkið
sjálft.
Áhugasamir geta styrkt og hjálpað til við að gera
Norðurljósaturnana að veruleika. Hver sá sem
styrkir verkefnið um a.m.k. 1.140 kr. fær nafn
sitt grafið í eina af súlunum á verkinu. Nú þegar
hafa safnast hátt á 800 þúsund krónur en áætl-
aður kostnaður eru fjórar milljónir.
Á heimasíðu verkefnisins segir að með lítilli
upphæð frá hverjum og einum ætti að vera
möguleiki á að Norðurljósaturnarnir rísi hér á
landi.
Söfnun fyrir
Norður-
ljósaturnum
gengur vel