Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.02.2014, Blaðsíða 9

Víkurfréttir - 06.02.2014, Blaðsíða 9
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 9 -fréttir Dagskrá Fyrirkomulag og undirbúningur framboðs Samfylkingarinnar til sveitarstjórnakosninganna í Reykjanesbæ í maí n.k.     Félagar fjölmennið. Laugardagskaffi 8. febrúar  Munið laugardagskaffi jafnaðarmanna á hverjum laugardegi kl. 10:30-12:00 að Víkurbraut 13. Næsta laugardag þann 8. feb. munu bæjarfulltrúar Samfylkingarinnar halda stutt erindi og svara spurningum sem brenna á íbúum. Félagar takið með ykkur gesti.   Allir velkomnir! FÉLAGSFUNDUR Félagsfundur Samfylkingarfélaganna í Reykjanesbæ verður haldinn fimmtudaginn 13. febrúar kl. 20:00 í sal Samfylkingarinnar að Víkurbraut 13 við Keflavíkurhöfn. FRÁBÆRT ATVINNUTÆKIFÆRI Fiskbúðin Vík í Keflavík er til leigu/sölu. Nánari upplýsingar í síma 898 4694 Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kynnir: Þín heilsa – þín skemmtun Landskeppni í hreyfingu ÍS L E N S K A /S IA .I S /I S I 66 77 5 01 /1 4 Skráðu þig Lífshlaupið byrjar 5. febrúar! Skráning og nánari upplýsingar á: www.lifshlaupid.is • Vinnustaðakeppni • Grunnskólakeppni • Einstaklingskeppni Samstarfsaðilar Ólympíufjölskylda ÍSÍ Lífshlaupið er fræðslu- og hvatningarverkefni ÍSÍ fyrir alla aldurshópa. Markmið þess er að hvetja landsmenn til þess að fara eftir ráðleggingum Lýðheilsustöðvar um hreyngu og gera hreyngu að föstum lið í lífsstíl sínum. Fleiri eru í fullu starfi nú en hafa verið síðan í ágúst 2007 og hlutfall þeirra sem eru starf- andi eykst í öllum aldurshópum hjá Eflingu og VSFK en stendur í stað hjá Hlíf. Þó er dvínandi starfsöryggi og óöryggi tengist t.a.m. áhyggjum af fjárhagsstöðu. Þetta er á meðal helstu niður- staðna nýrrar kjarakönnunar sem Capacent gerði fyrir Flóabanda- lagið, en í því eru Efling, Hlíf og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis. Aukin atvinnuþátttaka Fjölgun meðal atvinnuþátttakenda er í næstum öllum aldurshópum og aukning hjá öllum félögum. Þá hefur atvinnuleysistími styst. Lægst var starfsöryggi hjá ríki, í byggingarstarfsemi/mannvirkja- gerð, málmframleiðslu, heildsölu og smásölu. Auknar áhyggjur eru af fjárhagsstöðu í öllum aldurshópum og stéttarfélögunum þremur. Laun hækka og vinnutími stendur í stað Heildarlaun hækka um 10%, körlum fjölgar örlítið í hópnum og því hækka launin í heild meira en hjá hvoru kyni fyrir sig. Laun félagsmanna félaganna þriggja hækka mismikið en álíka mikið ef miðað er við tímabilið 2010-2013. Þá er ánægja með að laun standi í stað. Vinnutími og vinnuálag standa nokkurn veginn í stað. Fjar- vistir hafa aukist síðustu ár, úr 38% 2011 í 42% 2013. Flestir eru ánægð- ir með staðsetningu orlofshúsa og mjög fáir óánægðir. Fleiri konur atvinnulausar Yngra fólk hefur frekar reynslu af atvinnuleysi síðastliðin tvö ár og fólk með skemmri starfsaldur. Fólk með „veika atvinnustöðu“ hefur einnig frekar reynslu af atvinnu- leysi. 67 af svarendum voru án at- vinnu, flestir styttra en 2 mánuði. Flestir atvinnulausir eru konur á aldrinum 45-54 ára. Úrtak og þýði Lagt var upp með að úrtak endur- speglaði þýði með tilliti til stéttar- félags og ÍSAT Atvinnugreinar. Ef litið er til kynjahlutfalla svarenda, þá starfa karlar aðallega sem verka- menn og véla- og vélgæslumenn, en konur í mötuneytum, við veitinga- störf, umönnun og ræstingar, leið- beinendur og við iðnaðarstörf. Þá hafa flestir svarendur lokið grunn- skólaprófi auk starfsmenntunar. 81,5% svarenda eru launþegar eða einyrkjar, 8% án atvinnu og 10,5% eru í námi, leyfi, á eftirlaunum eða heimavinnandi. Um þriðjungur svaraði Könnunin fór þannig fram að send voru bréf til 3300 viðtakenda, með upplýsingum um könnunina, vef- slóð og lykilorði. Af 3300 bréfum voru 329 endursend þar sem þátt- takendur fundust ekki. Í framhald- inu var hringt í þátttakendur og þeim boðið að svara könnuninni í síma eða á neti. Af þeim sem náðist í neituðu 725 að svara en 519 fundust ekki. Það náðist í 1449, sem fengu senda könnun og henni svöruðu 1082. Aukinn kostnaður á almenning Á vefsíðu VSKF kemur fram að minnkandi atvinnuleysi megi rekja að miklu leyti til fjölgunar starfa í ferðaþjónustu sem óvíst sé að verði til frambúðar. Bág kjör, erfið n Ný kjarakönnun Flóabandalagsins: Fleiri með vinnu og auknar fjárhagsáhyggjur skuldastaða heimila og fyrirtækja og viðvarandi há verðbólga sé það sem einkenni íslenskt samfélag. Ríki, sveitarfélög og atvinnulífið í landinu hafi ítrekað velt kostnaðar- auka yfir á almenning. Á sama tíma og forsvarsmenn atvinnulífsins og ríkisvaldið tali um nauðsyn þjóðar- sáttar í formi kostnaðaraðhalds í samfélaginu séu vísbendingar um aukið launamisrétti í þjóðfélaginu. Stöðugleiki ekki á valdi launafólks Mikilvægt sé að hraða uppbyggingu efnahagslífsins með því að efla at- vinnulífið og skapa gott svigrúm til almennrar kaupmáttaraukningar. Losun hafta sé forgangsmál og for- senda stöðugleika. Það verði hins vegar ekki gert með því að setja kröfuna um stöðugleika á launafólk eitt og sér. Til verði að koma víð- tæk aðgerðaráætlun og samstaða þar sem ríkisvaldið, sveitarfélög, fjármálamarkaðurinn og Samtök atvinnulífsins axli einnig ábyrgð á viðfangsefninu. Samræmd launastefna Megináherslur Flóabandalagsins taka mið af fyrrgreindum stað- reyndum og að markmið launa- breytinga verði að tryggja aukinn kaupmátt, hækka sérstaklega lægri launataxta og tekjutryggingu. Mikilvæg forsenda samninga verði að byggt sé á samræmdri launa- stefnu allra samtaka launafólks. 6. febrúar er merkisdagur í leik- skólum landsins. Þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leik- skólakennara fyrstu samtök sín. Markmiðið með þessum degi er að beina kastljósinu að því gróskumikla og mikilvæga starfi sem fram fer innan leikskólanna og beina sjónum að menntun og velferð ungra barna. Leikskólar eru eins fjölbreyttir og þeir eru margir en eiga það sam- eiginlegt að vinna á markvissan hátt að því að efla þroska barna og undirbúa þau fyrir lífið sem framundan er í lýðræðissamfélagi. Í leikskóla stíga börn sín fyrstu skref á menntabrautinni og er því mikilvægt að sú reynsla sé jákvæð. Að vekja áhuga barna á námi er eitt af því mikilvægasta sem góður leikskólakennari gerir. Það skilar sér í gagnrýnum einstaklingum sem hafa gaman af áskorunum lífsins. Leikskólakennarastarfið er einstaklega fjölbreytt starf og enginn dagur er eins. Það sem einkennir leikskólana er gleði og jákvæðni en öll börn eiga skilið að alast upp og menntast í jákvæðu og styðjandi skólaumhverfi. Góð- ir leikskólar eru stolt hvers bæjar- félags og getur okkar bær hreykt sér af metnaðarfullum leikskólum og leikskólakennurum. Við óskum leikskólasamfélaginu öllu til hamingju með daginn. Margrét Kolbeinsdóttir, Heiða Ingólfsdóttir, Ragna Kristín Árnadóttir Stjórn Félags leikskóla- kennara. 9. deild. Dagur leikskólans 6. febrúar

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.