Víkurfréttir - 06.02.2014, Side 12
fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR12
KENNA SUÐURNESJA-
MÖNNUM LJÓSMYNDUN
Algengt er að fólk fjárfesti í dýrum myndavélum án
þess að nota alla þá möguleika
sem vélarnar bjóða upp á. Ljós-
myndararnir Ellert Grétarsson
og Oddgeir Karlsson hyggjast
bæta úr þessu með kvöldnám-
skeiðinu „Hugsað út
f y r ir auto- i ð“ s em
verður á næstunni
haldið á Ljósmynda-
stofu Oddgeirs v ið
Borgarveg í Njarðvík.
Um er að ræða ódýr 3ja
t íma kvöldnámskeið
fyrir þá sem vilja læra á
DSLR myndavélina sína
og nýta möguleika hennar betur
til skapandi verka. Farið verður
yfir grunnstillingar og tæknileg
atriði ljósmyndunar, s.s. sam-
spil hraða og ljósops, iso, white
balance og annað sem ræður lýs-
ingu myndar. Námskeiðið verður
haldið fimmtudaginn 13. feb kl.
19 – 22 og fimmtudaginn 18. feb.
á sama tíma.
Þá verður einnig boðið upp á
námskeiðið „Taktu betri myndir“.
Þar verður fjallað um hagnýt at-
riði ljósmyndunar og hvernig
maður ber sig að við mismun-
andi viðfangsefni, s.s. lands-
lags- og náttúrumyndatökur
og barna- og fjölskyldumynda-
tökur. Námskeiðið hentar mjög
vel fyrir þá sem hafa lært betur
á myndavélina sína á myndavél-
anámskeiðinu og aðra sem vilja
fræðast meira um ljósmyndun.
Námskeiðið verður haldið
þriðjudaginn 25. febrúar kl. 19
– 22 og miðvikudaginn 5. mars
kl. 19 – 22.
Myndvinnsla er nauðsynlegur
hluti stafrænnar ljósmyndunar
og ætla þeir félagar því að bjóða
upp á tveggja kvölda
grunnnámskeið í Lig-
htroom, sem er eitt vin-
sælasta myndvinnslu-
forrit samtímans. Það
verður haldið mánudag-
inn 10. mars og þriðju-
daginn 11. mars frá kl.
19 – 22.
Þátttaka verður tak-
mörkuð við einungis 8-10 manns
á hvert námskeið svo hægt verði
að sinna betur hverjum og einum
þátttakanda.
Skráning á Ljósmyndastofu
Oddgeirs, í síma 421 6556 eða
ok@mitt.is eða elg@elg.is
- fs-ingur vikunnar pósturu eythor@vf.is
Helsti kostur FS?
Þeir eru nú alveg nokkrir, skemmti-
legir kennarar, stutt fyrir mig að
rölta í skólann og svona.
Hjúskaparstaða?
Er í sambandi.
Hvað hræðistu mest?
Það er margt, er með snákafóbíu en
það hljómar bara gelgjulega þann-
ig að örugglega bara svona þetta
týpíska, að missa sína nánustu og
þannig.
Hvaða FS-ingur er líklegur til þess
að verða frægur og hvers vegna?
Kannski Guðbjörg Ægisdóttir vin-
kona mín fyrir verðlauna fram-
komu sína í Landsbankamynd-
bandinu.
Hver er fyndnastur í skólanum?
Myndi segja að það væri strákur
sem er með mér í tíma, veit ekki
hvað hann heitir og ég held hann
sé heldur ekkert að reyna að vera
fyndinn. Annars finnst mér bróðir
minn Eyjólfur vera eitt það fyndn-
asta sem ég veit um, hann er í FS.
Hvað sástu síðast í bíó og hvernig
var sú mynd?
Fór með mömmu og systur minni
á Last Vegas síðustu helgi, hún var
virkilega skemmtileg fannst mér.
Hvað finnst þér vanta
í mötuneytið?
Kannski allt.
Hver er þinn helsti galli?
Óþarfa stress og stundum get ég
verið mjög löt.
Hvað er heitasta parið
í skólanum?
Vá, ef ég á að segja eins og er þá
dettur mér ekkert par í hug bara
Alexandra Herbertsdóttir er
tvítugur Keflvíkingur sem þjáist
af snákafóbíu. Hennar helsti
galli er óþarfa stress og hún á
það til að vera löt. Alexöndru
finnst gaman að lesa, hlusta
á tónlist og svona. FS-ingur
vikunnar gjörið þið svo vel.
Held að hausinn á mér springi á endanum
yfir höfuð, greinilega ekki nógu
mikið inn í öllu.
Hverju myndirðu breyta
ef þú værir skólameistari FS?
Góð spurning, kannski byrja aftur
á að hafa kvöldskóla og breyta
sumum reglum annars er skólinn
fínn. En svo væri náttúrulega fínt
að hafa fleiri sófa og svona kósý.
Áttu þér viðurnefni?
Það virðist oft taka of langan tíma
að segja Alexandra þannig að oftast
heyri ég bara Lexa, annars er ég
með mörg viðurnefni frá hinum
og þessum.
Hvaða frasa eða
orð notar þú oftast?
„What“
Hvernig finnst þér
félagslífið í skólanum?
Tek nú ekki mikinn þátt í því lengur
en held það sé örugglega bara fínt.
Áhugamál?
Hreyfing, hollusta, ræktin, vera í
góðra vina hóp og hafa gaman að
lífinu og áskorunum sem verða á
vegi mínum. Nei ég er að grínast,
ég er samt farin að hafa áhuga á
hreyfingu talsvert meira en ég gerði
áður, svo finnst mér gaman að lesa
og hlusta á tónlist og svona.
Hvert er stefnan
tekin í framtíðinni?
Það er mjög góð spurning sem ég
þori ekki að svara, svo margt sem
mig langar að stundum held ég að
hausinn springi á endanum.
Ertu að vinna með skóla?
Já er að vinna í Eymundsson og
bæði sem liðveitandi og stuðnings-
foreldri sem er virkilega gaman!
Hver er best klædd/ur í FS?
Finnst svo margir flott klæddir
alltaf í skólanum, en ef ég þyrfti
að velja einn þá væri það pottþétt
Valur Orri, hann er alltaf flottur.
Hver myndi leika þig ef gerð yrði
kvikmynd um líf þitt?
Eflaust margir sem myndu slást um
það hlutverk en mér finnst Ellen
Page voða skemmtileg.
Eftirlætis:
Kennari: Má segja Heba? Annars
hefur mér alltaf fundist allir kenn-
arar skemmtilegir á sinn hátt.
Fag í skólanum: Líffræði
Sjónvarpsþættir: Sex and the city,
modern family, entourage, friends
og svo margir að ég nenni ekki að
telja þá upp, er núna að horfa á Will
and Grace og ég dýrka þá.
Kvikmynd: Búin að hugsa það
mikið og fyrir utan Rocky horror
picture show þá verð ég að segja
Batman myndirnar.
Hljómsveit/tónlistarmaður:
Á mér margar uppáhalds hljóm-
sveitir, Daft Punk og Gus Gus eru
svona með bestu en svo eru líka
hljómsveitir eins og Crystal Castles,
Röyksopp, Chromeo, Fm Belfast,
Hot Chip,The knife og fleiri.
Leikari: Leonardo di Caprio shet.
Vefsíður: Þær vefsíður sem ég
skoða mest eru mbl, vísir, facebook,
google og svo finnst mér mjög
gaman að fara á vísindavefinn.
Flíkin: Maður gerir ekki upp á milli
barna sinna
Skyndibiti: KFC alltaf.
Hvað tónlist/lag fílarðu í laumi
(guilty pleasure)? Hlusta stundum
á kjánaleg technolög svona þegar
enginn er nálægt en það er þá oftast
bara ef ég er í ræktinni eða sam-
bærilegum fíling.
Daglegar
fréttir
á vf.is
TIL LEIGU
Vatnsnesvegur 5
Ca. 70 fm atvinnuhúsnæði með inn-
keyrsludyrum og góðri loftæð á besta
stað í Keflavík. Mjög auðvelt aðkoma.
Frekari upplýsingar í síma 661 7000.
2 herb. íbúð i Grindavík
Til leigu strax falleg 2 herbergja íbúð.
Vinsaml. sendið okkur E-mail á gugga@
tron.is og við munum hafa samband.
Þjónustumiðstöðin
Nesvöllum
Vikan 16. - 22. jan. nk.
• Bingó • Listasmiðja • Handverk
• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.
• Félagsvist • Bridge
• Hádegismatur • Síðdegiskaffi
Föstudaginn 24. jan nk.
á Nesvöllum kl. 14:00.
Sigurður Guðmundsson frá UMFÍ ,
kynnir Landsmót 50+ 2014
Allir velkomnir
Nánari upplýsingar í síma 420
3400 eða á www.nesvellir.is
- smáauglýsingar
PARKETÞJÓNUSTA
Parketslípun, lagnir, við-
gerðir og almennt
viðhald húsnæðis.
Látið fagmenn
vinna verkin!
Parketþjónusta
Árna Gunnars,
s. 698 1559,
arnigunnars@simnet.is
ÓSKAST
Óskum eftir einbýlishúsi eða íbuð til
leigu í innri Njarðvík
Hjón með 3 börn og eitt á leiðinni óska
eftir húsnæði til leigu í innri Njarðvík
sem fyrst. Erum með 100% meðmæli
frá fyrri leigusala,
Öruggar greyðslur og góð umgengni.
Uppl. í síma 8465898 Palli
ÞJÓNUSTA
Vantar þig iðnaðarmann ?
Lærður húsasmiður getur bætt við sig
verkefnum, utan sem innanhúss. Ára-
tuga reynsla. s.863 6095
ÓDÝR HÚSGAGNA
OG TEPPAHREINSUN
Við djúphreinsum: rúmdýnur, sófa-
sett, hæginastóla, teppi og mottur.
s:7808319; djuphreinsa@gmail.com
GÆLUDÝR
Hundasnyrting
Tek að mér að klippa og snyrta hunda.
Löng reynsla og vönduð vinnubrögð.
Sjá FB síðu Hundasnyrting. Kristin S.
897 9002
Bílaviðgerðir
Partasala
Kaupum bilaða
og tjónaða bíla
Iðjustíg 1c - 260 Reykjanesbæ
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Þjónustumiðstöðin
Nesvöllum
Vikan 7. - 13. feb. nk.
• Bingó • Listasmiðja • Handverk
• Leikfimi - dans- boltaleikfimi.
• Félagsvist • Bridge
• Hádegismatur • Síðdegiskaffi
Föstudaginn 8. feb nk.
á Nesvöllum kl. 14:00.
Séra Skúli , Arnór og félagar
Allir velkomnir
Nánari upplýsingar í síma 420
3400 eða á
www.nesvellir.is/
Forvarnir með næringu
STAPAFELL
Hafnargötu 50, Keflavík
NÝTT
Opið alla daga
fram á kvöld
Sandra Valsdóttir, Garðar Magnússon,
Dagný Ósk,
Rökkvi.
Ástkær dóttir okkar og systir,
Bryndís Hulda Garðarsdóttir,
Skógarbraut 1101, Ásbrú/Reykjanesbæ,
lést miðvikudaginn 22. janúar á gjörgæsludeild Landspítalans.
Útför hennar fer fram í Keflavíkurkirkju þann 7. febrúar kl. 13:00.
LESTUR
VINSÆLASTI
FRÉTTAMIÐILL Á
SUÐURNESJUM
www.vf.is+
83%