Víkurfréttir - 06.02.2014, Síða 13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 13
Halla Margrét Helgadóttir
er í Heiðarskóla í 10. bekk. Hún
elskar að fara á snjóbretti og
dansa. Henni finnst sund leiðin-
legasta fagið í skólanum og væri
til í að verða flugmaður.
Hvað geriru eftir skóla?
Fer oftast bara heim að chilla og fer
á dansæfingu eða ræktina.
Hver eru áhugamál þín? Mér
finnst geggjað að fara á snjóbretti
og svo er það náttúrulega dansinn
og vera með vinunum.
Uppáhalds fag í skólanum?
Íþróttir er alltaf skemmtilegast.
En leiðinlegasta? Váhh það er sko
sund!
Ef þú gætir hitt einhvern frægan,
hver væri það?
Miley Cyrus allan daginn!
Ef þú gætir fengið einn
ofurkraft hver væri hann?
Að getað lesið hugsanir væri svaða-
legt.
Hvað er draumastarfið
í framtíðinni?
Draumajobbið er að verða flug-
maður.
Hver er frægastur
í símanum þínum?
Haha vinkonur minar þær eru
frægastar.
Hver er merkilegastur
sem þú hefur hitt?
Ætlaði í bíó í Boston og hitti Obama
fyrir utan á leiðinni á operu.
Hvað myndiru gera ef þú
mættir vera ósýnileg í einn dag?
Myndi örugglega taka næsta flug
til Ameríku og fara í svakalega
verslunarferð og taka allt sem mig
langaði í.
Hvernig myndiru
lýsa fatastílnum þínum?
Myndi lýsa honum sem frekar kósy
bara.
Hvernig myndiru lýsa
þér í einni setningu?
Er geimvera frá plánetunni Halla.
Hvað er skemmtilegast
við Heiðarskóla?
Alltaf gaman að hitta alla krakkana
í skólanum.
Hvaða lag myndi lýsa þér best?
Three little birds með Bob Marley.
Hvaða sjónvarpsþáttur
myndi lýsa þér best?
Friends held ég bara.
Besta:
Bíómynd? Ætli það sé ekki Titanic.
Sjónvarpsþáttur? Chuck
Tónlistarmaður/Hljómsveit?
Queen B ofcourse.
Matur? Kalkúnninn á áramó-
tonum.
Drykkur? Mix hefur alltaf verið
best.
Leikari/Leikkona? Ed Westwick
og Jennifer Lawrence.
Fatabúð? Urban Outfitters er flott-
ust!
Vefsíða? Twitter hefur tekið við af
facebook.
Bók? Englar Alheimsins.
- ung // Halla Margrét Helgadóttir pósturu pop@vf.is
Hitti Obama á leiðinni í óperu
+ Umsóknir óskast fylltar út á
www.icelandair.is/umsokn eigi síðar en 17. febrúar.
TÆKNIÞJÓNUSTA ICELANDAIR
Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI
ÓSKAR EFTIR RENNISMIÐ-CNC
STARFSSVIÐ:
■ Rennismíði og CNC vinna
HÆFNISKRÖFUR:
■ Viðkomandi ha menntun
og/eða reynslu á sviði
rennismíði og fræsivinnu
■ Frumkvæði og sjálfstæð
vinnubrögð
Nánari upplýsingar veita:
Theodór Brynjólfsson, netfang: tbrynjol@its.is
Steinunn Una Sigurðardóttir, netfang: unasig@icelandair.is
Við leitum að öugum liðsmanni til starfa í stærsta ugskýli landsins í tæknivæddu og alþjóðlegu
umhver. Um er að ræða spennandi og kreandi framtíðarstarf í góðu starfsumhver þar sem öryggi,
áreiðanleiki og hágæðavinnubrögð eru höfð að leiðarljósi. Viðkomandi þarf að hafa áhuga á að ná árangri
í star og hafa metnað til að vinna sem hluti af öugri liðsheild.
KOMDU TIL LIÐS
VIÐ OKKUR
n Stórhuga lýðheilsufulltrúi
Sandgerðisbæjar:
Draumurinn
að efla alla
aldurshópa
„Ég var ekkert endilega að leita
að öðru starfi en þegar ég sá
auglýsinguna fannst mér starfs-
lýsingin skemmtileg og eiga vel
við mig. Er mjög ánægð með að
reyna fyrir mér í þessu,“ segir
Rut Sigurðardóttir, lýðheilsufull-
trúi hjá Sandgerðisbæ. Hún tók
við þessu nýja starfi í september
sem gengur út á að skipuleggja
alls kyns íþrótta- og frístund-
astarf í bænum. Blaðamaður
Víkurfrétta hitti hana í húsnæði
bæjarskrifstofunnar.
Mest gefandi þegar vel
tekst til
Rut er frá Akureyri og hefur
búið í Reykjanesbæ í 8 ár, þar
sem hún var íþróttakennari
áður en hún tók við starfi lýð-
heilsufulltrúa. Þá þjálfar hún í
Sporthúsinu á morgnana og að-
stoðar eiginmann sinn, Helga
Rafn Guðmundsson, í að þjálfa
nemendur í taekwondo. „Allt
sem ég starfa við eru áhugasvið
mín. Það er mest gefandi þegar
vel tekst til og fólk er ánægt með
það sem ég geri.“ Rut hóf starfið
með því að leggja könnun fyrir
alla nemendur grunnskólans um
hvers konar námskeið og annað
þau hefðu áhuga á að boðið yrði
upp á. „Ég er svolítið að verða
við þeirra óskum og ætla að
þróa það áfram. Ég er að fara af
stað með ýmiss námskeið handa
grunnskólabörnum,“ segir Rut.
Þá sér hún mikið um að skipu-
leggja, búa til auglýsingar, fara í
skólana að hitta krakka, kennara
og skólastjóra. Einnig fer hún í
Miðhús að hitta eldri borgara og
í íþróttamiðstöðina.
Eldri borgarar rosalega dug-
legir
Heilsueflingarátak hefur verið
fyrir eldri borgara síðan í nóv-
ember, m.a. stafganga og jóga.
„Stafgangan átti að hætta fyrir
skömmu en það kom ósk frá
þeim um að halda áfram alla
vega mánuð í viðbót. Það er
alltaf að bætast í hópinn og
þetta gengur vel. Þau ganga í
öllum færum og eru rosalega
dugleg.“ Fyrstu vikuna í mars
verður heilsuvika fyrir alla ald-
urshópa. Rut finnst spennandi
hvað verður hægt að vinna úr
því. Ef það er eitthvað sem fólk
hefur áhuga á vill hún endilega
koma því í framkvæmd. „Minn
draumur er að efla þetta enn
betur. Bjóða upp á eitthvað fyrir
alla aldurshópa, bæði hreyfingu
og alls kyns frístundastarf, “
segir Rut hress að lokum.
Gettu enn betur, spurningakeppni grunnskólanna í Reykjanesbæ, var haldin mánudagskvöldið 3. febrúar í Myllubakkaskóla. Lið
Heiðarskóla fór með sigur af hólmi að þessu sinni eftir harða og jafna
keppni. Ásamt Heiðarskóla sendu Akurskóli, Holtaskóli, Myllubakka-
skóli og Njarðvíkurskóli lið til þátttöku.
Í úrslitum mættust Heiðarskóli og Njarðvíkurskóli. Eftir jafna og
skemmtilega úrslitaviðureign stóð Heiðarskóli uppi sem sigurvegari í
Gettu enn betur 2014.
Heiðarskóli sigraði Gettu enn betur