Víkurfréttir - 06.02.2014, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 6. febrúar 2014 • VÍKURFRÉTTIR14
-íþróttir pósturu eythor@vf.is
60 manna hópur NES
til Malmö
u Íþróttafélagið NES mun á
morgun föstudag skella sér á
íþróttamótið Malmö Open sem
fram fer í Svíþjóð. Alls fer um 60
manna hópur frá NES og munu
keppendur keppa í sundi og
boccia. Með í ferð verða þjálfarar
og aðstandendur keppenda. Mikil
eftirvænting er komin í mann-
skapinn og allir ætla að gera sitt
besta ásamt því að kynnast nýju
fólki og skoða sig um í Malmö. Er
þetta í annað skipti sem NES fer á
mótið en í fyrra stóðu keppendur
sig með mikilli prýði. Við á VF
munum fylgjast með gengi NES á
mótinu og flytja fréttir á vf.is.
Porsche Landry farin frá
Keflvíkingum
uKvennalið Keflavíkur í Dom-
ino's deildinni hefur samið við
Diamber Johnson sem áður lék
með Hamri. Porsche Landry mun
því ekki leika áfram með liðinu en
hún er farin af landi brott. Sam-
kvæmt upplýsingum Víkurfrétta
óskaði Landry eftir því að komast
heim til Bandaríkjanna og virtist
leikmaðurinn ekki hafa löngun
til þess að spila hérlendis lengur.
Áður en leikmannaglugginn
lokaðist bauðst Keflvíkingum að
fá Johnson til liðsins og það þáðu
þeir með þökkum.
„Við ætluðum okkur að hafa þær
báðar fyrst til að byrja með og
taka svo ákvörðun. Porsche vildi
svo halda aftur heim og því tók
hún í raun ákvörðunina fyrir
okkur,“ sagði Sævar Sævarsson
í stjórn Körfuknattleiksdeildar
Keflavíkur í samtali við Víkur-
fréttir. Hann sagðist ekki viss um
hvaða ástæður lægju að baki,
hvort um heimþrá væri hreinlega
að ræða hjá Landry.
Grindvíkingar í bikarúrslit
uGrindvíkingar tryggðu sér sæti
í bikarúrslitum karla í körfubolta
með góðum sigri gegn Þórsurum.
Leikurinn fór fram í Grindavík og
lauk honum með 93-84 sigri Ís-
landsmeistaranna. Grindvíkingar
byrjuðu af krafti og leiddu 32-19
eftir fyrsta leikhluta. Allt virtist
stefna í stórsigur en Þórsarar voru
ekki á þeim buxunum. Gestirnir
minnkuðu muninn í næstu
tveimur leikhlutum og hleyptu
spennu í leikinn. Að lokum sýndu
Grindvíkingar þó styrk sinn og
höfðu níu stiga sigur. Grind-
víkingar leika svo gegn ÍR-ingum
í úrslitum en leikurinn fer fram
síðar í febrúar.
Jóhannes aðstoðarþjálfari
Keflvíkinga
Jóhannes Hleiðar Gíslason var í
vikunni ráðinn aðstoðarþjálfari
meistaraflokks kvenna Keflavíkur
í knattspyrnu. Hann verður því
Heiðari Birni Torleifssyni þjálfara
liðsins til aðstoðar fram á haust.
Ráðningin er liður í því að efla
kvennaknattspyrnuna hjá Kefla-
vík.
Friðrik Erlendur Stefánsson kom til Njarðvíkinga um
rúmlega tvítugt. Hefur hann
verið sigursæll með liðinu svo
ekki sé meira sagt. Nú þegar
„Heimakletturinn“, eins og hann
er stundum kallaður, er að slaga í
38 árin, er þó kominn tími til þess
að segja þetta gott. Miðherjinn
stæðilegi hóf tímabilið í haust
með það fyrir augum að freista
þess að fá lokatækifæri til þess
að berjast um titla. Faðir tími og
meiðsli hafa hins vegar reynst
erfið og því var ákvörðunin tekin
um að hætta. Þegar blaðamaður
Víkurfrétta náði tali af Friðriki
var hann nýbúinn að spila einn-
á-einn við stórsöngvarann Sverri
Bergmann. Ætli það hafi ekki
verið síðasti leikurinn á ferlinum.
Var sáttur við að hætta
Friðrik hætti áður körfuboltaiðkun
árið 2011 og hann var satt best að
segja nokkuð sáttur við það. „Ég
var alveg fínn, ætla ekkert að ljúga
að þér með það. Það vantaði svo
stóran varamann og ég sló aftur til.
Maður fer svo bara aftur að æfa eins
og maður sé 25 ára ennþá og slakar
lítið á.“ Friðrik segir að eftir tíma-
bilið í fyrra hafi hann ekki verið
alveg sáttur og viljað meira. Hann
sá að mikið bjó í ungu strákunum í
Njarðvík. Því átti að taka tímabilið
núna með trompi. Skrokkurinn var
hins vegar á öðru máli.
Var á leið í handboltann
Friðrik hóf ferilinn í heimabænum
Vestmannaeyjum þar sem hann
fékk fljótlega tækifæri með ungl-
ingalandsliði Íslands, enda stórir
og sterkir strákar ekki á hverju
strái. Hann tók svo þá ákvörðun að
reyna fyrir sér í höfuðborginni og
varð KR þar fyrir valinu. Hann fór
eftir það á svolítið flakk. Þá stóð til
boða að fara til Ísafjarðar að spila
og Friðrik stökk á það tækifæri.
„Það var enn eitt flippið og gerðist
bara fyrir röð tilviljana.“ Friðrik lék
þar með KFÍ í 1. deild en bauðst
svo að fara til Þórs Akureyri þar
sem hann hugðist reyna fyrir sér í
úrvalsdeildinni. Atvinnuástandið
var ekki sem best fyrir norðan á
þeim tíma svo Friðrik fór á æsku-
slóðirnar þar sem loðnuvertíð og
handbolti tóku við. „Þar datt ég inn
í handboltann aftur og var á leið til
Svíþjóðar með liði ÍBV í æfingaferð.
Þorbergur Aðalsteinsson fyrrum
landsliðsþjálfari var þarna með
liðið,“ rifjar Friðrik upp og hlær.
Þá kom aftur símtal frá Ísafirði þar
sem óskað var eftir starfskröftum
Vestmannaeyingsins stóra. Þrátt
fyrir að kunna ágætlega við hand-
boltann kallaði körfuboltinn á
Friðrik. Þar fór boltinn að rúlla og
Friðrik vakti athygli fyrir vasklega
framgöngu sína. Eftir eitt ár með
KFÍ í úrvalsdeild kom tilboð frá
Bandaríkjunum. Háskóli í Jackson-
ville, Flórída, vildi fá Friðrik í sínar
raðið og var hann spenntur fyrir
því. Það gekk hins vegar ekki upp
af ýmsum ástæðum.
Hafði alltaf haldið með Njarð-
vík
Njarðvík var lið sem Friðrik hafði
hug á að leika með. „Ég hafði allt-
af haldið með þeim þegar ég var
yngri. Við Palli Kristins vorum líka
miklir vinir í gegnum unglinga-
landsliðin.“ Önnur lið vildu ólm fá
miðherjann enda var hann þarna
einn efnilegasti leikmaður lands-
ins. „Ég hef bara alltaf fylgt minni
sannfæringu. Oft getur það verið
djöfuls vitleysa hjá manni. Maður
hefði kannski átt að elta peningana
einhvern tímann,“ segir Friðrik um
þá ákvörðun að fara til Njarðvíkur
á sínum tíma. Það átti hins vegar
eftir að reynast ágætis ákvörðun
hjá honum.
Fór í starfsnám til Finnlands
Friðrik segir að af og til hafi komið
tilboð um tækifæri í atvinnu-
mennsku auk þess sem önnur ís-
lensk lið hafi viljað hann. Friðrik
reyndi fyrir sér í Finnlandi um
stutta stund en það segir hann ein-
faldlega hafa verið algjört klúður.
„Ég var þarna á starfssamningi í
stutta stund,“ segir miðherjinn
kíminn. „Þar var enginn peningur
og snarvitlaus þjálfari. Tóm veit-
leysa bara,“ segir Friðrik og hlær.
Allt toppmenn í Njarðvík
Þegar Friðrik lítur yfir farsælan
feril hjá Njarðvík er þar margs að
minnast. „Það fór m.a. fram risa-
stór bikarúrslitaleikur árið 99’
þegar Hemmi [Hauksson] rölti
aðeins og smellti þristi til þess að
jafna leikinn,“ rifjar hann upp.
Allir titlarnir sem unnust eru eftir-
minnilegir en tímabilið 2005-2006
var sérstaklega eftirminnilegt að
sögn Friðriks. „Það var mitt besta
tímabil. Þá var ég fyrirliði og við
vorum með virkilega flottan hóp.
Þarna voru ungir guttar í bland
við okkur sem vorum leiðtogar
í liðinu. Þarna voru sérstaklega
margir góðir varnarmenn. Ég hef
reyndar verið heppinn með að
hafa haft góða varnarmenn með
mér í Njarðvík, það eru mikil for-
réttindi.“ Aragrúi leikmanna hafa
orðið á vegi Friðriks á ferlinum.
Margir hverjir ansi eftirminnilegir
persónuleikar. „Fyrsta nafnið sem
skýst upp í hausinn á mér er Ör-
lygur heitinn. Svo gæti ég haldið
áfram endalaust, þetta eru allt ein-
tómir snillingar. Þetta eru allt topp-
menn hérna í Njarðvík.“
Alltaf tilbúinn að spila fyrir
þjóðina
Friðrik á 112 landsleiki að baki
og þykir það mikill heiður. Hann
hefur sterkar skoðanir á land-
liðinu og rekstri þess. „Það er til
háborinnar skammar hvernig ríkið
kemur fram við mörg landslið
okkar. Maður er þó alltaf tilbúinn
að spila fyrir Ísland. Það er mesti
heiður sem manni hlotnast. Það á
líka að vera búið þannig að því að
þú eigir að vera stoltur að spila fyrir
þjóðina.“
Friðrik verður alltaf talinn meðal
bestu íslensku miðherjanna en
hann hefur barist við þá nokkra
góða. „Á tímabili áttum við nokkra
ansi frambærilega miðherja. Það
var alltaf erfitt að spila gegn Fann-
ari Ólafs og Hlyni Bærings. Svo var
leiðinlegt að spila gegn Palla Krist-
ins þegar hann fór til Grindavíkur.“
Þú getur ekki verið annað en sáttur
með ferilinn, er það nokkuð? „Jú
maður er sáttur. Ég er samt það
mikill keppnismaður að maður er
aldrei sáttur. Ég er alveg fáránlega
tapsár,“ segir Friðrik og hlær. „Það
eru hlutir sem svíða þegar maður
horfir yfir ferilinn. Ef ég hefði samt
talað um að eiga svona feril í körfu-
bolta þegar ég var að slá úr tækj-
unum á loðnuvertíð í Vestmanna-
eyjum, þá held ég að fólk hefði talið
mann vera eitthvað klikkaðan,“
segir Friðrik að lokum.
Körfuboltinn kallaði
- Frá loðnuvertíð í Vestmannaeyjum til Njarðvíkur
Ef ég hefði samt talað um að eiga
svona feril í körfubolta þegar ég var
að slá úr tækjunum á loðnuvertíð í
Vestmannaeyjum, þá held ég að fólk hefði
talið mann vera eitthvað klikkaðan
„Ég er samt það mikill
keppnismaður að
maður er aldrei sáttur.
Ég er alveg fáránlega tapsár,“