Víkurfréttir


Víkurfréttir - 20.02.2014, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 20.02.2014, Blaðsíða 15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 20. febrúar 2014 15 Minningarmót Ragnars Margeirssonar í febrúar -Til styrktar fjölskyldu Steinars Ingimundarsonar -viðtal pósturu eythor@vf.is MORFÍs, Mælsku- og rökræðu-keppni framhaldsskóla á Ís- landi, stendur nú sem hæst en fram- undan er viðureign Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Menntaskólans við Sund á sal skólans þann 26. febrúar. Bjarni Halldór Janusson er liðs- stjóri FS-inga í MORFÍs en hann var einnig hluti af liði skólans sem tók þátt í Gettu betur á dögunum. FS-ingar féllu þar úr keppni eftir bráðabana gegn sterku liði Borgar- holtsskóla. Minnstu munaði að liðið kæmist í sjónvarpssal en það hefur aðeins gerst þrisvar áður í sögu skólans. Bjarni sem er 18 ára hefur búið í Njarðvík síðustu sjö árin. Áður bjó Bjarni með fjölskyldu sinni í Dan- mörku. Þegar kom að því að velja framhaldsskóla þá varð MR fyrst fyrir valinu hjá Bjarna. Hann varð þó fljótt þreyttur á því að vakna fyrir allar aldir til þess að sækja skólann í Reykjavík og koma seint heim á kvöldin. Auk þess er námið krefjandi í MR og gafst lítill tími fyrir annað en lærdóminn. Það er augljóst að Bjarni er sterkur á fleiri sviðum en náminu enda ansi krefjandi að vera bæði í MORFÍs og Gettu betur. Fæstir vita kannski hvað það er sem felst í þeirri vinnu sem fer í það að vera með sam- keppnishæft lið í þessum keppnum. Við spurðum Bjarna spjörunum úr varðandi þessar keppnir og lífið í FS. Af hverju tekur þú þátt í MORFÍs? „Ég prófaði að taka þátt í innan- skólaræðukeppnum í gamla skólanum mínum (MR) og ákvað að fara í forprufurnar þar. Ég var settur þar í svo- kallað B-lið af því að ég var enn svo ungur. Þegar ég fór yfir í FS ákvað ég svo að kýla á þetta af fullum krafti.“ MORFÍs lið FS saman- stendur af Bjarna sem liðsstjóra, Ólafi Ingva Hanssyni sem frummæl- anda, Sigurði Smára Hans- s y n i m e ð - mælanda og Jóni Bjarna Í s a k s s y n i s tuðnings- m a n n i . Bjarni segir að í raun sé ekki mikill metnaður fyrir þessum liðum hjá nemendum yfir höfuð. Þó sýni margir stuðning þegar vel gengur. „Þetta er svona svipað eins og með væntingar sem gerðar eru til félagslífsins. Fólk fer loksins að taka þátt og sýna áhuga þegar það gengur vel í einhverju,“ segir Bjarni en hann vonast til þess að með góðu gengi MORFÍs liðsins, þar sem liðið er einungis einni keppni frá undanúrslitum, og góðu gengi Gettu Betur liðsins, þar sem liðið var einungis einu stigi frá sjónvarpinu, aukist áhuginn hjá FS-ingum. Árið 2009 náðu FS-ingar alla leið í úrslit keppninnar þar sem þeir létu í minni pokann gegn Verzlunarskólanum. Hvað þarf maður af hafa fram að færa til þess að komast í MORFÍs lið? „Það eru ákveðnar týpur, á góðan hátt, sem komast inn í liðið. Þú þarft að hafa kjark í það að geta rökrætt og haldið ræður fyrir framan fólk, þú þarft að geta tekið pressunni. Metn- aður er líka eitthvað sem þarf þar sem maður eyðir gífurlegri orku og miklum tíma í þetta. Ef þú ert ræðu- maður þurfa málflutningur og tilþrif að vera í lagi,“ segir Bjarni en það er ekki laust við það að keppendur verði að vera með leikræna tilburði á hreinu. Tveir keppenda FS eru ein- mitt í leiklistinni. Sem liðsstjóri sér Bjarni um að kynna sér efnið í þaula fyrir keppni, en það þarf að geta samið góð svör með skömmum fyrirvara þegar keppni fer fram. Annars hafa allir liðsmenn sitt hlutverk auk þess sem liðið hefur þjálfara sem býr yfir reynslu í keppn- inni. 80 tíma vinnuvika fyrir keppni Fyrir síðustu keppni gegn FG eyddu liðsmenn um 80 klukkustundum á aðeins einni viku í undirbúnings- vinnu. Viku fyrir keppni er samið við hitt liðið um um- ræðuefnið. Tími keppninnar er ákveðinn og undirbúningur hefst. Fyrir síðustu keppni var umræðuefni og tími ákveðið á föstu- d e g i . H a f i s t var handa á laugardags- morg ni og u n n i ð t i l k l u k k a n 3 : 0 0 u m n ó t t i n a . Sama var uppi á ten- i n g n u m á sunnu- deginum. Á virkum dögum var svo farið strax eftir skóla í 88 húsið við Hafnargötu þar sem liðið hefur að- stöðu og oftar en ekki æft fram yfir miðnætti. Um leið og ræður eru til- búnar er nauðsynlegt að læra þær utanbókar. Auk þess þarf að finna hvaða rödd hentar, helstu áhersluat- riðin í ræðunni og karakterinn fyrir ræðumanninn sjálfan. Bjarni segir að liðsmenn hafi sporðrennt ansi mörgum pizzusneiðum á æf- ingum sem oft standa langt fram á nótt. Góður andi er meðal liðsins og stemning á æfingum. „Liðið er mjög gott og getur náð langt, við þurfum núna bara að skapa réttu stemninguna fyrir næstu keppni,“ segir Bjarni en það myndast oft mikil stemning á MORFÍs keppnum. Þeir sem ekki hafa sótt ræðukeppni vita líklega ekki að þar myndast mikil stemning og spila áhorfendur stórt hlutverk í uppfærslunni ef svo mætti segja. Bjarni og strákarnir í liðinu vonast til þess að sjá sem flesta FS- inga á keppninni nk. miðvikudag. „Við stefnum alla leið í úrslitin og treystum á stuðning FS-inga,“ segir liðsstjórinn að lokum. n Bjarni Halldór Janusson er bæði í MORFÍs og Gettu betur: Metnaðarfullir FS-ingar í MORFÍs - Margar vinnustundir að baki ræðukeppni Besti árangur FS í Gettu betur: Komust í 8-liða úrslit 2009 gegn MH. 8-liða úrslit árið 2003 gegn MS. 8-liða úrslit gegn Verzló árið 1990. 8-liða úrslit 1986 en þau voru ekki sýnd í sjónvarpi. Besti árangurinn í MORFÍs var árið 2009 þegar liðið komst alla leið í úrslit gegn Verzló en liðið tapaði þeirri keppni. Þjálfarar liðsins eru þau Arnar Már Eyfells, fyrrum ræðu- skörungur FS-inga og fyrrum framkvæmdastjóri MORFÍs, og Salka Valsdóttir, fyrrum liðs- stjóri hjá MH. Knattspyrnumót til minningar um Keflvíkinginn Ragnar Margeirs- son verður haldið í Reykjaneshöllinni á laugardaginn 22. febrúar næstkomandi en mótið hefur verið árlegur viðburður síðan árið 2003. Ýmsar knattspyrnugoð- sagnir hafa heiðrað mótið með nærveru sinni frá því mótið hóf göngu sína og verður engin undantekning þar á í ár. Allur ágóði og fé sem safnast af þessu tilefni, mun renna til fjölskyldu Steinars Arnar Ingimundarsonar, sem lést á síðasta ári aðeins 44 ára að aldri eftir langvarandi veikindi.Steinar hafði sterka tengingu við Suðurnesin eftir að hafa spilað með Víði og þjálfað kvennalið Keflavíkur. Keflvíkingurinn Ragnar Margeirsson lék fyrir öll landslið Íslands og skoraði fyrir þau öll. Hann lék með liðum Keflavíkur, Fram og KR hér á landi, og var auk þess um skeið atvinnumaður í Belgíu. myndatextinn..hann heitir Bjarni Halldór Janusson og er liðsstjóri Bjarni Halldór Janusson liðsstjóri Laus störf í leikskólum hjá Skólum ehf. Allir leikskólar Skóla starfa eftir Heilsustefnunni og leggja ríka áherslu á heilsueflingu, jákvæðan skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Skólarnir fylgja allir Næringarstefnu Skóla og sameiginlegum matseðli en hlaut það verkefni tilnefningu til Orðsporsins 2014. Við leitum að samstarfsfólki sem: • Er tilbúið til að tileinka sér starfsaðferðir og hugmyndafræði leikskólans • Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum • Er tilbúið til að taka þátt í öflugri starfsþróun • Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig fram um að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn. Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um! Heilsuleikskólinn Háaleiti, Ásbrú í Reykjanesbæ Auglýsir eftir: • Matráði í 75% starfshlutfall Heilsuleikskólinn Háaleiti er þriggja deilda leikskóli með um 60 börn. Nánari upplýsingar veitir: Þóra Sigrún Hjaltadóttir leikskólastjóri, sími 426-5276 Rafrænar umsóknir er hægt að leggja inn á http://skolar.is/Starf/ Heilsuleikskólar Skóla eru: Hamravellir í Hafnarfirði, Háaleiti á Ásbrú í Reykjanesbæ, Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík. ehf. starfa eftir Heilsustefnunni o leggj ríka áherslu á heilsueflingu, jákvæðan skólabrag og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Því leitum við að samstarfsfólki sem: • Er t lbúið til að tileinka sér st rfsaðferðir leikskólans • Hefur áhuga á heilsueflingu, umhverfismennt og umhyggjusömum samskiptum • Er tilbúið til að taka þátt í öflugri starfsþróun • Er stundvíst, samviskusamt og leggur sig fram um að velja sér jákvæð viðhorf í dagsins önn. Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um! Heilsuleikskólinn Háaleiti, Ásbrú í Reykjanesbæ Auglýsir eftir: • Leik kólakennara og/eða uppeldismenntuðum starfsmanni í 100% stöðu • Leikskólakennara og/eða uppeldismenntuðum starfsmanni í 50% stöðu Heilsuleikskólin Háaleiti er i j il a leikskóli með um 60 börn. Nánari l i eitir: Þóra Sigrún Hjaltad tti l i l stjóri, sími 426-5276 Rafrænar umsók i er hægt að leggja inn á http://www.leikskolinn.is/haaleiti/ undir „Um leikskólann“. eilsuleikskólar Skóla e u: Hamravellir í Hafnarfirði, Háaleiti á Ásbrú í Reykjanesbæ, Kór í Kópavogi, Krókur í Grindavík og Ungbarnaleikskólinn Ársól í Reykjavík. Árni Sigfússon bæjarstjóri hefur veitt Reykjanesbæ sterka forystu á erfiðum tímum. Hann hefur ótrauður talað í bæjarbúa kjark og staðið með þeim sem eru hjálpar þurfi. Enginn forystumaður á landinu er jafn mikill baráttu- maður fyrir betri menntun og uppeldi barna okkar. Árni hefur staðið í stafni við mótun betra umhverfis, öflugri menningu, íþrótta- og tónlistarlífi og unnið að fjölbreyttum og vel launuðum atvinnutækifærum sem nú eru að stinga upp sprotum sínum. Markviss vinnubrögð hans við mótun skýrrar „framtíðarsýnar“, þar sem allir geta átt hlut að máli, hafa markað brautina á flestum sviðum samfélagsins. Reykjanesbær er nú að rísa og bæjarbúar finna það. Veitum Árna Sigfússyni ótvírætt umboð til að vera áfram okkar leiðtogi og berjast fyrir og með okkur bæjarbúum. Fyrsta skrefið er í prófkjöri sjálfstæðisfélaganna 1. mars nk. - Runólfur Sanders, formaður Fulltrúaráðsins sjálfstæðisfélaganna í Reykjanesbæ, - Guðbergur Reynisson, formaður Sjálfstæðisfélags Keflavíkur, - Hildur Gunnarsdóttir, formaður Heimis, félags ungra sjálfstæðismanna, Njarðvík, Keflavík og Hafnir - Karvel Granz, formaður sjálfstæðisfélagsins Njarðvíkings. - Baldur Guðmundsson, bæjarfulltrúi - Björk Þorsteinsdóttir, bæjarfulltrúi - Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi - Einar Magnússon, bæjarfulltrúi - Magnea Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi - Björk Guðjónsdóttir, fyrrv. bæjarfulltrúi - Garðar Vilhjálmsson, fyrrv. bæjarfulltrúi - Sigríður Jóna Jóhannesdóttir, fyrrv. bæjarfulltrúi - Steinþór Jónsson, fyrrv. bæjarfulltrúi - Þorsteinn Erlingsson, fyrrv. bæjarfulltrúi - Birgitta Jónsdóttir Klasen, frambjóðandi - Guðmundur Pétursson, frambjóðandi - Ísak Ernir Kristinsson, frambjóðandi - Jóhann Snorri Sigurbergsson, frambjóðandi - Una Sigurðardóttir, frambjóðandi PRÓFKJÖR SJÁLFSTÆÐISFÉLAGANNA Í REYKJANESBÆ 1. MARS N.K. 1. SÆTIÐ ER LEIÐTOGASÆTI

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.