Víkurfréttir


Víkurfréttir - 06.03.2014, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 06.03.2014, Blaðsíða 10
fimmtudagurinn 6. mars 2014 • VÍKURFRÉTTIR10 -viðtal pósturu olgabjort@vf.is Bjarni Róbert Bragason er Njarðvíkingur og bjó í Reykja- nesbæ þar til hann flutti til London í lok ársins 2009. Hann starfar sem myndbrellumeistari (e. composi- tor) og segir í viðtali við Víkur- fréttir frá starfi sínu, reynslu og Óskarsverðlaunum sem hann á hlut í fyrir myndina The Gravity. Lærði grunninn hjá Latabæ „Besta leiðin til að lýsa starfinu mínu er að ég sé til þess að leik- arar, sem teknir eru upp í mynd- veri með ekkert annað en grænt tjald í bakgrunni, virðast hafa verið teknir upp t.d. í öðrum heimi eða öðru landslagi. Einnig búa mynd- brellumeistarar til galdra og aðr- ar brellur, láta Súperman fljúga og annað sem er í eðli sínu ekki hægt að taka upp,“ segir Bjarni. Spurður um hvenær áhugi hans á myndbrellum kviknaði segist Bjarni muna eftir að hafa séð kvik- myndina Dragonheart, frá árinu 1996, þar sem Sean Connery talaði fyrir tölvuteiknaðan dreka. „Flestir duttu í að fá áhuga á svona eftir að hafa seð Jurassic Park eða Term- inator 2 en ég hreifst af því hvað það væri hægt að blása miklu lífi og tilfinningu í eitthvað sem er ekki til.“ Boltinn fór að rúlla eftir að Bjarni hafði leikið sér að því að gera þrívíddarmódel og annað í frístundum heima samhliða fram- haldsskólanámi. Nítján ára, fyrir 10 árum síðan, hætti hann svo í framhaldsskóla því kunnátta hans kom honum inn um dyrnar hjá La- tabæ þegar þar vantaði mannskap í myndbrelludeildinni. „Þeir kenndu mér grunninn að því sem ég geri í dag,“ segir Bjarni. Ævintýrið í kringum The Gravity Besta við starfið segir Bjarni vera að geta starfað við áhugamál sitt og fengið laun fyrir. „Almennt er mjög skemmtilegt fólk í þessum bransa og það er mjög gaman og verðugt að sjá nafnið sitt í stórmyndunum. Vinnutíminn er hins vegar mjög langur starfsöryggi oft lítið þannig að þetta á best við fólk sem getur fært sig á milli landa eins og ekkert sé.“ Eftir að Latibær hætti fram- leiðslu á þáttunum um 2008 komst Bjarni í samband við Daða Einars- son, sem einnig vann að myndinni The Gravity. „Daði hafði þá stofnað útibú Framestores á íslandi (sem kallast RVX í dag) og ég byrjaði að vinna með honum í Reyjavík. Seinna fór ég út til Framestore í London að vinna við Clash of the Titans og eftir nokkrar myndir fór ég inn í teymið sem gerði The Gra- vity,“ segir Bjarni. Atriði með Söndu Bullock og George Clooney Hann var það sem kallað er „2d sequence Lead“ og sá þá um 5-6 manna teymi sem hélt utan um samsetningu myndbrellna úr hluta af byrjun myndarinnar. Í fyrirtækinu í kringum myndina störfuðu um 400 manns og vinnsla Bjarna hluta af myndinni tók eitt ár, svo að hann eignaðist fjölda vina. „Stór hópur fólks kemur að gerð sömu hluta myndarinnar en hlutinn sem ég var með var um 6 mínútur af myndinni.“ Hann segir tökurnar aðeins hafa verið tvær og því gríðarlega erfitt en spenn- andi verkefni. Þetta hefði aldrei verið gert áður og þess vegna hefði verið gaman að vera hluti af þessu. „Minn hluti byrjar þegar þau upp- götva að það er eitthvað að og allt fer í bál og brand og Sandra Bul- lock kastast út í geim og endar svo þegar George Clooney finnur hana aftur.“ Bjarni segir vinnsluna hafa verið allt frá því að setja saman margar tökur af Söndru og blanda saman svo úr verði ein löng taka án þess að áhorfandinn taki eftir því, setja andardráttinn á glerið, allar rispur, setja inn sólina og hanna útlit hennar, litaleiðréttingar og fleira. „Okkar verk er að láta þetta líta út fyrir að hafa verið tekið upp í tökuvel með allar sína galla frekar en þetta fullkomna þrívíddarútlit,“ segir Bjarni. Óskarsverðlaun eins og Ólympíugull Spurður um hvernig tilfinningin hafi verið að vera hluti að teymi sem vinnur Óskarsverðlaun, segir Bjarni: „Það náttúrulega bara það stærsta sem getur komið fyrir. Það eru engin meiri viðurkenning en þetta fyrir starfið sitt. Þetta er í raun bara Ólympíugullið okkar.“ Bjarni situr ekki auðum höndum og mikið er í pípunum. „Ég var að klára Edge of Tomorrow með Tom Cruise og er núna byrjaður í Guardians of the Galaxy sem ég verð upptekinn af í sumar. Ég er fastráðinn hjá Fram- estore svo að í augnablikinu þá held ég bara áfram hjá þeim í London. Stærsti draumurinn er að fá að gera persónulegt stórmyndarverkefni eða taka við Óskarnum sjálfur einn daginn,“ segir Bjarni spenntur að lokum. n Var í teymi sem gerði myndbrellur í myndinni The Gravity: Langar að taka sjálfur við Óskarnum „Minn hluti byrjar þegar þau uppgötva að það er eitthvað að og allt fer í bál og brand og Sandra Bullock kastast út í geim og endar svo þegar George Clo- oney finnur hana aftur“ Hulda Bjarnadóttir, Jóhann Geirdal, Guðjón Þórhallsson, Guðveig Sigurðardóttir, Lárus B Þórhallsson, Hrönn Gestsdóttir, Magnea Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma Steinunn Þórleifsdóttir, Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ, frá Efri-Hólum, Núpasveit, lést í faðmi fjölskyldu sinnar að morgni sunnudagsins 2. mars á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hún verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 11. mars kl. 13:00. Skólamatur auglýsir eftir umsóknum í stöðu starfsmanns í framleiðslueldhúsi, Reykjanesbæ. Helstu hæfniskröfur: Áhugi og þekking á matargerð Skiplagshæfni og sveigjanleiki Hæfni í mannlegum samskiptum Grunn tölvuþekking Kostur er að hafa menntun sem nýtist í starfi Vinnutími er frá kl.7-15 alla virka daga (100%) Umsóknir berist fyrir 14.mars á fanny@skolamatur.is Hefur þú brennandi áhuga á matargerð? Hollt, gott og heimilislegt Skólamatur ehf. | Iðavellir 1 | 230 Reykjanesbær Sími 420 2500 www.skolamatur.is ATVINNA Þjónn óskast í fullt starf Óska eftir þjóni í fullt starf á veitingastað í Keflavík. Framtíðarstarf. Umsókn með mynd og ferilskrá sendist á nordic@visir.is Bjarni, lengst til vinstri, ásamt systkinum sínum Bryndísi Ósk og Brynjari Atla. Bjarni, ásamt foreldrum sínum, Önnu Jamison og Braga Sigurðssyni og systkinum. Húsmæðraorlof Gullbringu- og Kjósarsýslu 2014 uEins og undanfarin ár gefst konum kostur á að sækja um ferðir á vegum Orlofsnefndar Gullbringu- og Kjósarsýslu, en þessar ferðir njóta ávallt mikilla vinsælda, enda vel að þeim staðið. Í ár verða 3 ferðir í boði og verður fyrsta ferðin í byrjun júní til Ít- alíu, þar sem farið verður til Toskana, Pisa og Flórens. Í september verður boðið upp á ferð til Bodensee í Þýskalandi og Lichtenstein og í desember verður farin aðventuferð til Innsbruck í Austurríki. Rétt til að sækja um ferðirnar hefur sérhver kona sem veitir eða hefur veitt heimili forstöðu án launagreiðslu fyrir það starf. Ferðirnar verða auglýstar nánar á næstunni.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.