Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.04.2014, Qupperneq 1

Víkurfréttir - 30.04.2014, Qupperneq 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 MIÐVIKUDAGURINN 30. APRÍL 2014 • 17. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR Hringbraut 99 - 577 1150 Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Hjá okkur njóta allir sérkjara af lyfjum utan  greiðsluþáttöku Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA Á morgun er 1. maí, alþjóðlegur dagur verkafólks. Af því tilefni verða hátíðar- höld í Stapa og opnar húsið kl. 13:45 undir ljúfum tónum frá Guðmundi Hermannssyni. Ræðu dagsins flytur Sigurrós Kristinsdóttir, varaformaður Eflingar, og fjöldi listamanna stígur á stokk. Þá verður árleg merkjasala 1. maí merkja, sem afhent verða á skrifstofu verkalýðsfélaganna í Krossmóa 4, og rennur andvirði merkjasölu til duglegra sölubarna. Á meðfylgjandi mynd sjáum við starfsmenn sem unnu að viðgerð á gangstétt við Skólaveg í Kefla- vík í gærdag. Þar höfðu nýlega verið endurnýj- aðar lagnir en í gær var gangstéttin steypt að nýju. Hátíðarhöld í Stapa og steypt við Skólaveg Hundruð tonna af rusli skiluðu sér í Kölku í Helguvík og á móttöku- stöðvar fyrirtækisins í sérstöku um- hverfisátaki sem efnt var til á Suður- nesjum sl. föstudag og laugardag. Móttökustöðvar Kölku í Grindavík og Vogum tóku á móti rusli frá heimilum án endurgjalds þessa tvo daga og auk þess voru settar upp móttökustöðvar í Sandgerði og Garði. Þá voru jafnframt sett upp tímabundin gámaplön bæði á Ásbrú og í Innri Njarðvík. Jón Norðfjörð, framkvæmdastjóri Kölku, segir að íbúar Suðurnesja hafi tekið vel við sér og verið duglegir að koma með rusl til eyðingar. Langar raðir mynduðust við móttökustöðina í Helgu- vík en allar móttökustöðvar Kölku voru vel nýttar þessa daga. Jón segir að því miður hafi einnig borið á því að fyrir- tæki hafi misnotað aðstöðuna og hent rusli án endurgjalds þessa tvo daga. Sér- staklega hafi borið á því á föstudeginum. Það megi m.a. lesa úr því rusli sem barst. Ekki liggja fyrir nákvæmar tölur yfir það magn af rusli sem barst þessa daga. Tonnin séu nokkur hundruð. Þegar Víkurfréttir ræddu við Jón á mánudag áttu enn eftir að berast gámar af mót- tökustöðvum í Grindavík, Vogum og Sandgerði. Í umræðu um rusl sem hent er á víða- vangi hefur talsvert verið rætt um gjald- töku Kölku og að fólk setji hana fyrir sig. Jón segir að um helmingur af því rusli sem borist hafi á umhverfisdögunum sé rusl sem flokkist sem gjaldskylt. Helst sé þar um að ræða timbur og húsgögn. Ekkert hefur verið ákveðið með fram- hald á þessu umhverfisátaki. Nú muni menn setjast niður og skoða árangurinn og framkvæmdina sem slíka. Hugsan- lega megi dreifa svona átaki yfir lengri tíma og á milli sveitarfélaga. ■■ Umhverfisátak á Suðurnesjum: Hundruð tonna af rusli skil- uðu sér á tveimur dögum VF-myndir: Hilmar BragiVF-myndir: Hilmar Bragi Sérstök móttaka var sett upp á Ásbrú. Þangað var fólk duglegt að koma og losa sig við rusl. Ruslið fyllti marga gáma.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.