Víkurfréttir - 30.04.2014, Blaðsíða 14
miðvikudagurinn 30. apríl 2014 • VÍKURFRÉTTIR14
Þegar ljóst varð að ég skipaði
2. sæti Frjáls afls í
Reykjanesbæ spurði
góð vinkona hvers
vegna ég stæði í
þessu og bætti svo
við: „Veist þú eitthvað um pól-
ítík?“
Fyrri spurningunni svaraði ég
þannig að öllum væri hollt að
stíga út fyrir þægindarammann og
takast á við nýjar áskoranir. Seinni
spurningunni svaraði ég svona:
„Ég kann sem betur fer lítið inn á
gamaldags pólitík sem snýst um að
tryggja sér og sínum valdastöður,
en ég veit nákvæmlega hvernig
pólitík ég vil sjá í Reykjanesbæ í
framtíðinni.“
Mín pólitíska sýn gengur út á
ábyrga stjórnun bæjarfélagsins,
þar sem bætt lífskjör eru eðlileg af-
leiðing af öguðum vinnubrögðum.
Hún gengur út á að við einbeitum
okkur að raunhæfum atvinnutæki-
færum í stað þess að dreifa kröft-
unum út um víðan völl með engum
árangri. Hún gengur út á að hags-
munir íbúanna verði í brennidepli
í stað þess að stjórnendur bæjar-
félagsins baði sig í sviðsljósinu.
Fyrir mér snýst pólitík um ákvarð-
anir um skólamál, atvinnumál,
heilbrigðisþjónustu, samgöngur,
menningu, tómstundir, fjármál og
margt fleira. Ég kann svo sannar-
lega að taka ákvarðanir og hef
brennandi áhuga á að byggja upp
betri Reykjanesbæ. Áskorunin felst
í því að skapa hér réttlátt, heilbrigt
og skemmtilegt bæjarfélag þar sem
okkur getur öllum liðið vel.
Elín Rós Bjarnadóttir,
skipar 2. sæti á lista Frjáls afls.
-aðsent pósturu vf@vf.is
Fy r r á á r i n u ákvað ég að fara
í smá óvissuferðalag
sem fólst í því að
taka þátt í pólitík.
Fyrst var ég ekki
alveg viss út í hvað
ég væri að fara og hvort að þetta
væri eitthvað sem ég hefði áhuga
á að gera. Áhyggjurnar reyndust
hins vegar vera algör óþarfi. Því
meira sem ég tók þátt í þessu því
skemmtilegra var það. Það er
óhætt að segja að pólitík sé orð-
in eitt af mínum áhugamálum.
Maður hittir helling af frábæru
fólki sem er samt svo mismunandi
hvað varðar menntun, reynslu og
atvinnu, ræðir við þau um hvern-
ig samfélagi við myndum vilja
búa í, því að við eigum það jú öll
sameiginlegt að okkur þykir vænt
um bæinn okkar.
Mér finnst samt dálítið sorglegt
hversu óvirkt ungt fólk er í pólit-
ík. Af hverju skiptir það ungt fólk
svo litlu máli hvernig samfélagið
þeirra er? Það samfélag sem þau
alast upp í, mennta sig, vinna og
nota þjónustu? Ég er viss um að
ef ég spyrði einhverja af mínum
vinum af hverju hafa þau engan
áhuga á pólitík myndu eftirfarandi
svör koma upp: Óspennandi, ekki á
mannamáli og að þetta sé bara fólk
að rífast.
Ég get alveg sagt að ég var mjög
sammála þeim áður en ég prófaði
að taka þátt í þessu sjálf. En svo
er eins og ein lítil pólitísk ljósa-
pera hafi kviknað einhvers staðar
í kollinum. Þá gerði ég mér grein
fyrir því hversu mikilvægt er að
hafa skoðanir um samfélagið sitt
og hversu mikilvægt það er að taka
þátt, beint eða óbeint, til að stuðla
að betri bæ handa okkur öllum.
Pólitík getur nefnilega verið allt
annað en sandkassaleikir pólitík-
usa. Hún getur verið allt það sem
skiptir þig máli. Það umhverfi sem
þú ert í og þessi þjónusta sem þú
notar. Er þá ekki rétti tíminn núna
til að velta því fyrir sér hvernig við
getum gert okkar samfélag betra?
Hvernig við getum skapað sam-
félag sem ÖLLUM líður vel í? Það
er nefnilega þannig, hvort sem þú
trúir því eða ekki, að þín skoðun,
þinn vilji og þitt atkvæði skipta
máli. Það er bara undir þér komið
hvort þú viljir láta þínar skoðanir,
vilja og þitt sjónarhorn á framtíðar-
samfélagi líta dagsins ljós.
Gætir þú hugsað þér að taka þátt
í pólitík? Ég mæli með að þú gerir
það og hver veit, kannski upplifir
þú það sama og ég? Það er líka alltaf
pláss fyrir ungt fólk að taka þátt í að
breyta samfélaginu.
Dominika Wróblewska
Býður sig fram í 8. sæti
hjá Beinni leið
■■ Dominika Wróblewska skrifar:
Ég vil vera með
■■ Elín Rós Bjarnadóttir skrifar:
Af hverju ætlar þú í framboð, Elín?
■■ Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar:
Er ekki tími tilkominn að breyta?
■■ Silja Dögg Gunnarsdóttir, alþingismaður skrifar:
Fáum ekki fjögurra ára frí á milli kosninga
■■ Magnea Lynn Fisher skrifar:
Heima er þar sem
hjartað slær
Öll börn eiga að njóta
sömu tækifæra. Það
er miserfitt hjá fólki
og margir búa við
bág kjör. Sumir eiga
ekki fyrir mat og
hvað þá reikningum.
Sumir eru að missa heimili sín og
bílana sína. Margt fólk er að berjast
fyrir lífi sínu og barnanna og er að
reyna að finna lausnir sinna mála
alla daga.
Eitt íþróttagjald á hverja fjölskyldu
En hvað með börnin okkar ? Stétt
og staða foreldra á ekki að skipta
máli þegar kemur að velferð barna.
Börn eiga að fá að vera jafningjar
og eiga ekki að þurfa að líða fyrir
heimilisaðstæður. Við í Framsókn
teljum til dæmis að það myndi
hjálpa mörgum fjölskyldum og
börnum ef eitt íþróttagjald væri
sett á hverja fjölskyldu og börnin
mættu þá æfa þá íþrótt sem hentar
þeim. Nú er staðan sú að mikill
munur er á kostnaði á milli íþrótta-
greina. Það útilokar sum börn frá
því sem þau hafa mestan áhuga á.
Þessu getum við breytt.
Aðstoð við heimanám
Annað sem skiptir miklu máli til að
jafna aðstöðumun barna og auka
lífsgæði einstaklinga í bænum er
að samræma betur skóla og tóm-
stundastarf. Með aukinni samræm-
ingu á almenningssamgöngum og
frístundastarfi ætti skutl eftir skóla
að minnka og það er svo sannar-
lega eitthvað sem myndi skipta fólk
máli.
Börn búa við mjög mismunandi
aðstæður heima fyrir og því finnst
okkur hjá Framsókn mikilvægt að
boðið verði upp á aðstoð í öllum
skólum við að ljúka heimanámi og
að foreldrar greiði skóla eitt fast
gjald fyrir bækur og ritföng. Við
stefnum einnig að því að samræma
skóladagatal á milli hverfa og auka
sveigjanleika í opnunartíma leik-
skóla.
Heima er þar sem hjartað slær.
Hjálpumst að því að gera bæinn
okkar að betra heimili og aukum
öryggi og vellíðan barnanna okkar.
Hér eiga allir að búa við jafnrétti og
það er verk okkar allra að hlúa að
þeim sem minna mega sín.
Magnea Lynn Fisher,
sálfræðinemi og í 8. sæti á lista
Framsóknar í Reykjanesbæ
Spennandi tímar eru framundan,
sveitastjórnarkosn-
ingar eftir mánuð.
Aukinn áhugi er
á bæjarmálum og
m i k i ð a f f r a m -
boðum, loforðum og gylliboðum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í
meirihluta í bæjarstjórn Reykjanes-
bæjar síðan árið 2002. Setjum þessa
tímalengd í örlítið samhengi: Árið
2002 varð Manúela Ósk Harðar-
dóttir ungfrú Reykjavík í rauða Ty-
son kjólnum sínum, Alicia Keys
kom fram á sjónarsviðið og þætt-
irnir The Osbournes hófu göngu
sína. Flugfélagið Iceland Express
var stofnað, Keiko var sleppt í
sjóinn og hóf ferð sína til Færeyja,
Falun Gong meðlimir voru hand-
teknir í Reykjanesbæ og ég í Fjöl-
braut! Já, það má með sanni segja
að árið 2002 var fyrir löngu síðan.
Burtséð frá kostum og löstum nú-
verandi meirihluta er það mín ein-
læga skoðun að stjórnarseta ein-
hvers eins flokks í svo langan tíma,
alveg sama hvað hann heitir, sé
aldrei góð hugmynd. Enginn einn
maður eða einn flokkur er ómiss-
andi en ætíð þarf að hafa í huga að
ef sama fólkið situr alltaf við stjórn,
verður ekki ákveðin stöðnun í
stefnu bæjarmála? Er litið fram-
hjá nýjum, frjóum og gefandi hug-
myndum ef þær koma frá öðrum?
Mótum samfélagið saman
Ég er ný í pólitík. Ég er 32 ára
gömul og starfa sem hjúkrunar-
fræðingur. Ég er í meistaranámi í
heilbrigðisvísindum, á tvö börn og
það styttist í þriðju háskólagráðuna
mína. Ég hef gaman af áskorunum
og því að fylgja málefnum eftir og
sjá hugmyndir verða að veruleika.
Það hefur því verið gaman að vinna
undanfarið að því að móta nýja sýn
fyrir Reykjanesbæ með félögum
mínum og finna leiðir til þess
hvernig við getum mótað saman
samfélag grundvallað á jöfnuði,
lýðræði, ábyrgð og gegnsæi með
fjölskylduna í fyrirrúmi.
Það sem mér þykir sérstaklega
spennandi og áhugavert fyrir fjöl-
skyldurnar í bænum er meðal
annars það að við ætlum að hækka
umönnunargreiðslur og þrefalda
hvatagreiðslur. Hvað varðar at-
vinnumálin tel ég brýnt að við
hefjumst handa við að auka komu
ferðamanna til Reykjanesbæjar
með því að móta skýra stefnu í
ferðamálum sem raunhæft er að
fylgja eftir með framkvæmdum
og öflugu markaðsstarfi. Það að
efla Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
er mál sem stendur mér mjög ná-
lægt og mun ég leggja allan minn
metnað í það. En stefnumálin
okkar í heild sinni má finna á
xsreykjanesbaer.is
Þar sem er vilji, þar er leið
Mér þykir eitt forgansefni mjög
aðkallandi en það eru allar fjöl-
skyldurnar í bæjarfélaginu sem
eru í húsnæðisvandræðum. Sam-
fylkingin og óháðir ætla að leggja
mikla áherslu á samstarf við Íbú-
ðalánasjóð til að koma umræddum
tómum íbúðum á almennan leigu-
markað. Þar sem er vilji, þar er leið.
Kæru íbúar, ég hvet ykkur til að
kynna ykkur stefnumál flokkana
af kostgæfni og nákvæmni. Takið
þátt í að byggja með okkur heil-
brigt, lifandi og skemmtilegt sam-
félag sem við getum verið stolt af.
Nýtið kosningarrétt ykkar og takið
afstöðu.
Guðný Birna Guðmundsdóttir
hjúkrunarfræðingur
og meistaranemi
2. sæti á lista Samfylk-
ingarinnar og óháðra
Sa g a l ý ð r æ ð i s á Í s l a n d i e r
nánast jafn löng og
saga þjóðarinnar.
Ef til vil l tökum
því stundum sem
sjálfsögðum hlut.
Kjósum og skiptum okkur svo
ekki meira af næstu fjögur árin.
En þetta er að breytast. Þátttaka
almennings í samfélagslegum
ákvörðunum er grundvöllur þess
að lýðræðið virki. Allir hafa eitt-
hvað fram að færa.
Skiptum okkur af
Að mínu mati vakti Hrunið haustið
2008 þjóðina af værum blundi. Fólk
áttaði sig á því að stofnanir sem það
hélt að það gæti treyst voru ekki
traustins verðar. Almenningur reis
upp og mótmælti. Síðan þá hefur
umræðan um þjóðfélagsmál al-
mennt aukist og breyst. Í síðustu
alþingiskosningum komu fjölmörg
ný framboð fram á sjónarsviðið.
Sú hugsun að stjórnun sé einkamál
lítils hóps er sem betur fer liðin tíð.
Þessar breytingar eru liður í fram-
þróun, ákveðinni vakningu og mér
sýnist sem það sama sé að gerast
hér í Reykjanesbæ.
Máttlaus umræða
Í Reykjanesbæ hafa nú nokkur ný
framboð tilkynnt þátttöku sína í
komandi sveitastjórnarkosningum
sem er af hinu góða. Það er engu
bæjarfélagi hollt að hafa sama
fólkið við stjórnvölinn árum og
jafnvel áratugum saman. Valda-
klíkur myndast, gagnrýnin þynnist
út og umræðan verður máttlaus. Í
þannig umhverfi þrífst raunveru-
legt lýðræði ekki. Svona er ástandið
orðið í bæjarfélaginu okkar og
því þurfum við að breyta í næstu
kosningum með því að kjósa nýtt
fólk til að fara með stjórnun bæjar-
félagsins.
Nýjar áherslur
Innra eftirlit með fjármálum
bæjarfélagsins verður að styrkja og
áætlanir um fjármál og uppbygg-
ingu bæjarfélagsins verða að vera
raunhæfar. Einnig er kominn tími
á nýjar áherslur í atvinnumálum
og styrkingu félagsþjónustunnar
sem og aukið íbúalýðræði. Fram-
boðslisti Framsókn í Reykjanesbæ
skartar nú öflugu fólki með fersk-
ar hugmyndir og nýjar áherslur.
Stefnuskrá framboðsins verður
kynnt 2. maí þegar kosningaskrif-
stofan Hafnargötu 62 verður opnuð
með pompi og prakt og kynning á
frambjóðendum og nánari upplýs-
ingar um framboðið má nú finna
á heimasíðunni: www.framsokn.
com.
Silja Dögg Gunnarsdóttir, al-
þingismaður og skipar 22.sæti á
lista Framsóknar í Reykjanesbæ
www.vf.is
83% LESTUR
+