Víkurfréttir - 15.05.2014, Blaðsíða 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUDAGURINN 15. MAÍ 2014 • 19. TÖLUBLAÐ • 35. ÁRGANGUR
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Hjá okkur njóta allir sérkjara
af lyfjum utan greiðsluþáttöku
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
KRISTÍN LEA Í
VONARSTRÆTI
KEFLVÍKINGURINN KRISTÍN LEA
LEIKUR Í NÝRRI ÍSLENSKRI KVIK-
MYND SEM VAKIÐ HEFUR ATHYGLI
Heilnæmt „iðnaðarskolp“ eða hrakstraumarfrá orkuverum HS Orku í Svartsengi og á
Reykjanesi eru nýtt til atvinnuskapandi verkefna
hjá mörgum fyrirtækjum og hafa gefið af sér um
400 störf og fer fjölgandi. Fyrirtækin sem nýta
þennan afgang eru samtals orðin jafn stór og HS
Orka, eigandi orkuveranna, en með miklu fleiri
starfsmenn. Þar ber hæst Bláa lónið sem er orðið
eitt öflugasta ferðaþjónustufyrirtæki á Íslandi.
Albert Albertsson, aðstoðarforstjóri HS Orku segir í
viðtali við Sjónvarp Víkurfrétta að líklega hefði Bláa
lónið ekki orðið til miðað við regluverkið sem er
við lýði í dag því ekki fengist leyfi til að dæla jarð-
hitavökva frá orkuverinu í Svartsengi út í náttúruna.
Albert útskýrir í viðtalinu hvernig svokallaður Auð-
lindagarður á Reykjanesi hefur þróast frá því orku-
verið í Svartsengi var stofnsett. Þar er endurnýtingin
á jarðhitavökva sem kemur út úr orkuverunum ein
stærsta búbót eða bónus sem engir gátu séð fyrir
þegar Hitaveita Suðurnesja var stofnuð.
Mikil vinna hefur verið lögð í að formgera Auðlinda-
garðinn á Reykjanesi á síðustu mánuðum. Sýnin er
einföld; endurnýjanleg auðlind og sjálfbær vinnsla -
samfélag án úrgangs – 100% grænn Auðlindagarður
með jarðvarma í grunninn, þar sem ekkert fer til
spillis og hrat frá einu fyrirtæki getur verið aðföng
annars. Þverfaglegt samstarf og samhæfing ólíkra
þátta til að hámarka árangur, nýtingu og virkni.
Í vikulegum þætti Sjónvarps Víkurfrétta frá Suður-
nesjum er einnig spjallað við Ásgeir Margeirsson,
forstjóra HS Orku um breytingar á lögum um orku-
mál og hvaða þýðingu þau höfðu. Hann tók við sem
forstjóri fyrirtækisins um síðustu áramót. Ásgeir
segir umræðuna um fyrirtækið oft hafa verið á villi-
götum en mörg bæjarfélög á Suðurnesjum seldu
hlut sinn í Hitaveitu Suðurnesja þegar ný lög um
skiptingu fyrirtækisins í HS Veitur og HS Orku,
tóku gildi. HS Orka á orkuverin í Svartsengi og á
Reykjanesi en leigir landssvæðin af Grindavíkurbæ
og ríkinu. Hann segir að íbúar á Suðurnesjum þurfi
ekki að hafa áhyggjur af því þótt eigandi að um 2/3
hluta fyrirtækisins sé kanadískt orkufyrirtæki en 14
íslenskir lífeyrissjóðir eiga um þriðjung. Fyrrverandi
eigendur hefðu ekki haft bolmagn og fjármagn sem
til þurfti til eflingar þess inn í framtíðina. Þá segir
hann HS Orku mjög meðvitaða um að auðlindin sé
ekki ótakmörkuð og náttúran sé alltaf í öndvegi.
Þátturinn er á ÍNN í kvöld kl. 21:30.
Afgangs jarðhiti
býr til um 400 störf
MEIRIHLUTINN
KOLFALLINN
– samkvæmt könnun Fréttablaðsins
Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Reykja-nesbæ er kolfallinn samkvæmt nýrri
skoðanakönnun sem Fréttablaðið birtir í gær.
Flokkurinn fær 30,8 prósent atkvæða og fjóra
bæjarfulltrúa, en fékk 52,8 prósent í kosning-
unum árið 2010 og sjö bæjarfulltrúa.
Samfylkingin tapar einnig talsverðu fylgi frá síð-
ustu kosningum en 19,6% ætla að kjósa flokkinn
núna. Það skilar Samfylkingunni tveimur bæjar-
fulltrúum en fyrir fjórum árum fékk flokkurinn
28,4% atkvæða og þrjá bæjarfulltrúa. Þetta gerir
um þriðjungi minna fylgi.
Fylgi Framsóknarflokksins minnkar einnig um
þriðjung. Flokkurinn fer úr 14% fylgi í 9,3% í
könnunni. Flokkurinn heldur sínum eina bæjar-
fulltrúa. Frjálst afl, sem er klofningsframboð úr
Sjálfstæðisflokknum er stærst nýrra framboða í
Reykjanesbæ, samkvæmt könnuninni. Frjálst afl
fær 18,6% atkvæða og tvo bæjarfulltrúa. Píratar
fá 10,4% atkvæða samkvæmt könnuninni og
einn mann kjörinn. Bein leið fær 9,8% atkvæða
og einn bæjarfulltrúa.
Nánar má lesa um könnunina á vf.is.
Heilnæmt iðnaðarskolp í Auðlindagarði einn
stærsti atvinnuveitandinn á Suðurnesjum:
Mikið hefur borið á því aðungmenni séu að stinga
sér til sunds við bryggjur Suður-
nesja að undanförnu. Reyndar
tíðkast þetta víða um land en
ástæðan ku vera áskorun á fa-
cebook þar sem fólk er hvatt til
þess að stökkva í sjóinn, ellegar
þurfa að sæta refsingu í staðinn
t.d. með því að borga áskoranda
pítsu eða bjór.
Sigurður Arnar Kristmundsson,
hafnarstjóri í Grindavík hefur
nokkrar áhyggjur af því að ung-
mennin séu að stökkva án eftir-
lits í sjóinn. Hann sendi heima-
síðu bæjarsins línu þar sem hann
brýnir fyrir ungu fólki að fara með
gát.
„Ég hef mestar áhyggjur af hætt-
unni á því að börnin fái krampa.
Ég reyni að brýna fyrir þeim að
synda ekki á milli bryggja og vera
ekki lengur í vatninu en þrjár
mínútur í mesta lagi vegna hættu
á ofkælingu. Ef þau fá krampa þá
þarf ekki að spyrja að leikslokum.
Ég legg til að við öll, foreldrar og
skólar, brýnum fyrir þeim að fara
ekki langt frá bryggjum og alls
ekki reyna að synda á milli þeirra
og helst fara beint upp úr sjónum.
Best væri að hafa einhverja áætlun
um hvernig hægt er að fá hjálp
ef eitthvað fer úrskeiðis,“ segir
hafnarstjórinn.
Ungmenni stökkva í
sjóinn vegna áskorunar
á Facebook
Getur verið hættu-
legt að stökkva af
bryggjum
Mynd úr safni.