Víkurfréttir


Víkurfréttir - 15.05.2014, Blaðsíða 3

Víkurfréttir - 15.05.2014, Blaðsíða 3
– að fjölskyldu- og félagsmálum Fjölskyldan – hornsteinn samfélagsins Við leggjum áherslu á að ef við byrjum snemma að vernda börnin og veita þeim bestu aðstæður til náms og þroska, þá er það besta veganesti sem við getum veitt þeim. • Hærri umönnunargreiðslur • Ókeypis uppeldisnámskeið • Snemmtæk íhlutun í leikskólum • Betri menntun • Betri þjónustu við eldri borgara • Betri heilsugæslu • Fatlaðir fái þá þjónustu sem þeir þurfa við hæfi hvers og eins og við höldum áfram að efla úrræði í búsetumálum • Eldri borgarar njóti góðrar þjónustu og eigi áhyggjulaust ævikvöld Komum að rekstri Heilbrigðisstofnunar Við viljum hækka þjónustustig heilsugæslunnar þannig að bið eftir sjálfsagðri þjónustu verði styttri og í samræmi við það sem best gerist á höfuðborgarsvæðinu. Að okkar mati verður þetta einungis gert með því að Reykjanesbær komi að gerð framtíðarsýnar og markmiðasetningu fyrir stofnunina. Sjálfboðaliðar í velferðarmálum Ráðum verkefnastjóra sem hafi yfirsýn yfir það sem unnt er að gera í sjálfboðastarfi í Reykjanesbæ á sviði umhverfis-, félags- og velferðarmála. Fjölskyldusetur opnað Fjölskyldusetrið er samhent aðgerð samfélagsins í Reykjanesbæ til að fagaðilar nái til allra foreldra og barna með jákvæðri fræðslu og aðstoð, allt frá fæðingu barns fram á fullorðinsár. Lausnir í húsnæðismálum Sjálfstæðismenn leggja áherslu á að leyst verði úr húsnæðisvanda margra íbúa í kjölfar efnahagskreppunnar. Rætt verði við aðila sem búi yfir lausu húsnæði, s.s. Íbúðalánasjóð og banka og leitað nýrra lausna strax á þessu sumri. Dagar fjölmenningar Við fögnum fjölbreytileikanum í samfélaginu um leið og við tökum vel á móti gestum okkar og þeim sem vilja búa í okkar samfélagi. Styðjum þá sem minna mega sín Reykjanesbær hefur á undanförnum árum verið í forystu nýrra leiða til að styðja einstaklinga sem búa við skerta möguleika í lífinu m.a. vegna líkamlegra, andlegra eða efnahagslegra hafta. xdreykjanes.is Vinnum áfram Vinnum áfram Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ Á kosningamiðstöð okkar að Hafnagötu 90 bjóðum við uppá súpu í hádeginu á virkum dögum, við grillum pylsur á milli kl. 14 og 16 á laugardögum og bökum saman vöfflur alla sunnudaga frá 14 til 16. Síminn hjá kosningastjóra er 848-2424. Líttu við!

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.