Víkurfréttir - 28.05.2014, Síða 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
miðvikudagurinn 28. maí 2014 • 21 . TÖLuBLað • 35. Árgangur
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Hjá okkur njóta allir sérkjara
af lyfjum utan greiðsluþáttöku
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
ERFIDRYKKJUR
Chef Örn Garðars
Sími 692 0200
TVÖ AUKABLÖÐ
VÍKURFRÉTTA
Það er lífleg útgáfa hjá Víkurfréttum íþessari viku. Víkurfréttir eru 40 síður en
þar af eru níu síðna blaðauki um samfélagið á
Ásbrú í tilefni af Opnum degi sem haldinn er
á Ásbrú á morgun, uppstigningardag.
Í gær gáfu Víkurfréttir út Járngerði í sam-
starfi við Grindavíkurbæ. Um er að ræða 48
síðna blað sem gerir 40 ára kaupsstaðarafmæli
Grindavíkurbæjar skil, auk þess sem Sjóar-
anum síkáta eru gerð ítarleg skil í blaðinu.
Páll Árnason fjórði maður álista Pírata í Reykjanesbæ
hefur sagt skilið við flokkinn. Það
gerir Páll vegna þess að honum
fannst sem ekki væri farið eftir
grunngildum flokksins í yfirstandandi kosn-
ingabaráttu. „Flokkurinn á að snúast um lýð-
ræði og gegnsæi. Undanfarið hefur þetta verið
þannig að oddvitinn hefur ráðið öllu upp á
eigin spýtur,“ segir Páll í samtali við Víkur-
fréttir en hann er ósáttur við þá staðreynd
að ýmis mál hafi ekki verið rædd og atkvæði
greidd innan flokksins.
„Ég vildi að hugsanlegt samstarf við Sjálfstæðis-
flokkinn yrði í það minnsta rætt. Oddviti vildi
hins vegar notast við loðin svör og ekki ákveða
afstöðu okkar með ráðningu bæjarstjóra. Oddviti
var ekki fáanlegur til þess að leyfa fólki að kjósa
um slík mál,“ segir Páll sem hefur sagt sig form-
lega úr flokknum. „Ég vil að fólk fari upplýst í
kjörklefann en ég tel að við höfum ekki verið að
upplýsa fólk nógu vel.“
Í yfirlýsingu frá Pírötum í kjölfarið segir að ósætti
hafi verið milli Páls og Trausta Björgvinssonar
oddvita flokksins. Ekki sé raunin að flokkurinn og
eða oddviti hafi tekið þá stefnu í einhverjum ein-
ræðisherraleik, að fara í samstarf við aðra flokka.
Segir einnig í tilkynningu að hjá Pírötum fari
fram lýðræðislegar kosningar en úrslit þeirra séu
ekki alltaf eins og sumir vilji. Haldinn var fundur í
gærkvöldi (mánudag) og sammældust þeir fram-
bjóðendur sem komust á hann um að stuðningur
við oddvita væri 100% og mun flokkurinn halda
áfram að starfa af fullum krafti með öll gildi Pírata
að leiðarljósi. Einnig kemur fram að komi til þess
að flokkurinn nái nægilegum fjölda kjörna full-
trúa inn í komandi kosningum og sjái sér það fært
að ná fram sínum markmiðum sem eru gerð eftir
grunngildum flokksins, ætla þeir sér ekki að úti-
loka á neinar viðræður við aðra flokka. Hins vegar
hafi engin ákvörðun verið tekin hvað samstarf við
aðra flokka og ekki sé hægt að taka svo stór skref
þar sem ekki sé enn byrjað að telja upp úr kössum.
Fjórði maður á lista
Pírata fyrir borð
- Segir oddvita ráða öllu innan flokksins
Áttatíu nemendur útskrifuðust frá vorönn í Fjölbrautaskóla Suðurnesja en braut-
skráning og skólaslit fóru fram á sal skólans sl. laugardag. Sandra Lind Þrastardóttir,
sem er að verða 18 ára, dúxaði frá skólanum með glæsilegri frammistöðu. Nánar um
útskriftina og viðal við Söndru á bls. 22-23. Myndir frá útskrift tók Oddgeir Karlsson.
Glæsilegur útskriftarhópur í FS
Áður en Víkurfréttir fóruí prentun í gær fengust
þau svör hjá sýslumanninum
í Keflavík að helmings aukn-
ing hafi verið á kjörsókn utan
kjörfundar í ár, miðað við
sveitarstjórnarkosningarnar
árið 2010.
Hjá sýslumanninum í Kefla-
vík höfðu 518 kosið utan
kjörfundar kl. 15:30 í gær
þriðjudag. Í sveitarstjórnar-
kosningunum árið 2010 höfðu
245 kosið utan kjörfundar í
lok þriðjudags. Í lok þriðju-
dags árið 2006 höfðu 570 kosið
utan kjörfundar. Bæði 2010
og 2006 (og Alþk. 2013) eru
tölur miðaðar við lok dags, en
staðan í dag er miðuð við kl.
15:30, en opið er til kl. 19:00.
Í alþingiskosningunum 2013
höfðu 737 kosið í lok þriðju-
dags fyrir kjördag.
Helmings aukn-
ing í kjörsókn
utan kjörfundar