Víkurfréttir - 28.05.2014, Blaðsíða 4
miðvikudagurinn 28. maí 2014 • VÍKURFRÉTTIR4
SJÓMANNADAGURINN
Í REYKJANESBÆ
ATVINNA
HEIÐARSKÓLI
Sjómannamessa og dagskrá í Duushúsum sunnudaginn
1. júní kl. 11.00
Sjómannamessa í Bíósal á vegum Ytri-Njarðvíkurkirkju.
Safnstjóri Byggðasafnsins kynnir nýja sýningu í
Bryggjuhúsi.
Í lok dagskrár verður lagður krans við minnismerki
sjómanna á Hafnargötu og síðan verður
vígður nýr minnisvarði um drukknaða og horfna sjómenn í
Njarðvíkurkirkjugarði kl: 12:00
Kaffiveitingar á eir í Safnaðarheimili Njarðvíkurkirkju
í Innri-Njarðvík.
Heiðarskóli óskar eir starfsmanni til að hafa umsjón
með kaffistofu starfsmanna og sjá um ýmis önnur
verkefni.
Um er að ræða 77% starf.
Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að sækja um
starfið á vef Reykjanesbæjar undir laus störf:
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf.
Umsóknarfrestur er til 6. júní n.k.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sóley Halla
Þórhallsdóir skólastjóri í síma 420 4500 eða 894 4501.
ATVINNA
NJARÐVÍKURSKÓLI
Óskað er eir kennara til starfa á næsta skólaári. Um er
að ræða kennslu í náúrufræði á unglingastigi.
Umsóknarfrestur er til 5. júní n.k.
Nánari upplýsingar gefur Ásgerður Þorgeirsdóir
skólastjóri í síma: 4203000/8632426 eða á netfangið:
asgerdur.thorgeirsdoir@njardvikurskoli.is
Sækja skal um starfið rafrænt á vef Reykjanesbæjar þar
sem einnig er að finna hæfniskröfur og nánari
upplýsingar um starfið.
hp://www.reykjanesbaer.is/stjórnkerfi/laus-storf
SUMAR Í REYKJANESBÆ
Vefritið Sumar í Reykjanesbæ er komið á vef bæjarins,
reykjanesbaer.is.
Þar er hægt að finna það sem er í boði fyrir börn og
ungmenni sumarið 2014.
TÓNLISTARSKÓLI
REYKJANESBÆJAR
SKÓLASLIT
Skólaslit verða í Stapa, Hljómahöll, miðvikudaginn 28. maí
kl. 18.00. Allir velkomnir
LAUS PLÁSS
Getum bæ við okkur örfáum nemendum í: Trompet,
Horn og önnur málmblásturshljóðfæri, klaríneu,
saxófón, ra¥assa, selló, kontrabassa, harmoníku og
einsöng.
Só er um á skrifstofu skólans, Hjallavegi 2 eða á
mireykjanes.is
Umsóknarfrestur er til 28. maí n.k.
Skólastjóri
Syngjandi sveitamenn með tón-
leika í Grindavík annað kvöld
Karlakór Hreppamanna, bændur og búalið úr ofanverðri Árnessýsl-unni hafa að undanförnu æft söng um sjóinn og lög tengd honum
og blása til tónleika í Grindavík annað kvöld, fimmtudag í Grinda-
víkurkirkju kl. 20. Þeir nefna tónleikana „Nú sigla svörtu skipin“.
Í tilkynningu segir: „Þeim félögum í Hreppakórnum tekst vel til og er
full ástæða til þess að hvetja Suðurnesjamenn að hlýða á þessa mögnuðu
karla. Þeir eru í senn eins og vel stillt hljóðfæri í höndunum á henni Edith
Molnar sem stýrir þeim og hefur gert frá stofnun og þá spillir ekki þegar
Miklos Dalmay einn fremsti píanóleikari á sínu sviði leikur undir. Það
er óhætt að mæla með léttri hvíld frá amstri pólitíkur og dægurþrass og
hvetja fólk til að mæta á tónleika Hreppamanna.“
Nýtt og
spennandi
eins árs nám
– með mikla starfsmöguleika við
vél- og hugbúnað frá Marel
Marel og Fisktækniskóli Ís-lands bjóða starfsfólki
og stjórnendum í íslenskum
fiskvinnslum nýtt nám, Marel
vinnslutækni. Markmið námsins
er að mæta þörf fiskvinnslunnar
með aukna sérhæfingu starfsfólks
með góðan bakgrunn í tækni og
hugbúnaði. Með því að þjálfa
starfsfólk í að stilla tækin rétt,
sinna umhirðu og reglubundnu
viðhaldi og læra um meginatriði
hugbúnaðar í framleiðslustýringu
slíkra tækja aukast afköst og þar
með arðsemi fyrirtækja af fjár-
festingum í fiskvinnslu. Við erum
fullviss um að fiskvinnslur sjái
hag sinn í að hafa slíkan starfs-
mann innan sinna raða.
Marel vinnslutæknir er eins árs
nám tvær annir sem kenndar eru
í lotum, námsárinu er skipt í fag-
bóklegar greinar og vinnustaðanám
undir leiðsögn tilsjónamanns.
Hrafnista og Heilbrigðis-stofnun Suðurnesja hafa
undirritað samstarfssamning sem
felur í sér að læknar heilbrigðis-
stofnunarinnar munu annast
alla læknisþjónustu við heimilis-
fólk og þjónustuþega Hrafnistu á
Nesvöllum og Hlévangi í Reykja-
nesbæ.
Samningurinn hefur þegar tekið
gildi en alls er um að ræða þjónustu
við 90 íbúa heimilanna.
Átak gegn tor-
færuökutækjum
í þéttbýli
Lögregla óskar eftir
samvinnu ökumanna
Lögreglan á Suðurnesjum stefnir á átak hvað varðar
akstur torfæruökutækja í þéttbýli
á næstunni. Lögreglan greinir frá
þessu á facebooksíðu sinni en þar
segir að mikill hávaði fylgi öku-
tækjunum sem flest hafa það sam-
eiginlegt að vera númerslaus, en
töluvert hefur borið á akstri tví-
og fjórhjóla að undanförnu.
„Mikill hávaði fylgir yfirleitt akstri
þeirra, sem veldur ómældu ónæði
fyrir íbúa hverfa sem þeim er ekið
um. Nú í sumarbyrjun ætlum við
því að taka alvarlega á þessum
málum, ná til þeirra ökumanna
sem þetta stunda, ræða við þá og
beina þeim á viðurkennd aksturs-
íþróttasvæði.
Lögreglan óskar því eftir samvinnu
við íbúa og eru allar ábendingar
frá almenningi vel þegnar,“ segir á
síðu lögreglunnar. Þar segir einnig
að Jóhannes Tryggvi, mótorkros-
skappi, hafi óskað eftir því að fá
að taka þátt í þessu verkefni með
lögreglunni.
„Viljum við benda þeim sem
áhuga hafa á mótorkrossi að setja
sig í samband við hann. Hann er
með aðgang að lokuðu og viður-
kenndu svæði, auk þess sem hann
býður upp á kennslu á þessi tæki
án endurgjalds. Íbúar umdæmisins
eru eindregið hvattir til að leggja
okkur lið í þessum efnum. Mótor-
krossmenn eru jafnframt hvattir
til að nýta sé þetta frábæra boð
Jóhannesar. Lifum í sátt og sam-
lyndi!“ segir að endingu.
Sjöundi bekkur FS í Grunn-skólanum í Sandgerði vann
fyrstu verðlaun í átaksverkefni
Embættis landlæknis, Tóbakslaus
bekkur.
Nemendur hafa unnið að verkefn-
inu í allan vetur og gerðu ljóða-
bók, plaköt, myndasögu, bækling
og héldu íbúafund þar sem fjallað
var um skaðsemi tóbaksnotkunar.
Haldin var hugmyndasamkeppni í
bekknum um útlit á tóbaksbann-
skiltum til að setja á íþróttasvæði
á vegum bæjarins. Hugmyndirnar
voru mjög flottar og voru valdar
sex myndir og útbúin skilti sem
hafa nú verið hengd upp í Íþrótta-
miðstöð Sandgerðis.
Á næstu dögum verður einnig
sett upp skilti við Reynisvöllinn. Í
ár tóku 240 bekkir víðsvegar um
landið þátt í keppninni. Á skólaár-
inu þurftu bekkirnir að staðfesta
fimm sinnum að þeir væru tóbaks-
lausir og skila inn lokaverkefninu
sínu. Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri
og Ólafur Þór Ólafsson forseti
bæjarstjórnar heimsóttu bekkinn
á dögunum og færðu þeim ham-
ingjuóskir og viðurkenningu fyrir
frábært verkefni og glæsilegan
árangur.
-fréttir pósturu vf@vf.is
Á myndinni má sjá 7. bekk FS ásamt Fríðu Stefánsdóttur kennara
bekkjarins, skólastjórnendunum Fanney D. Halldórsdóttur og Elínu
Yngvadóttur, Sigrúnu Árnadóttur bæjarstjóra og Ólafi Þór Ólafssyni
forseta bæjarstjórnar.
7. bekkur í Sandgerði sigraði í
keppninni „Tóbakslaus bekkur“
Frá undirritun
samningsins, f.v.
Halldór Jónsson,
forstjóri Heilbrigðis-
stofnunar Suður-
nesja, og Pétur
Magnússon, for-
stjóri Hrafnistu.
Heilbrigðisstofnun með
læknaþjónustu á Nesvöllum