Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.05.2014, Blaðsíða 31

Víkurfréttir - 28.05.2014, Blaðsíða 31
VÍKURFRÉTTIR • miðvikudagurinn 28. maí 2014 31 -íþróttir pósturu eythor@vf.is Sveitarstjórnarkosningar laugardaginn 31. maí 2014 Kjörstjórn Sandgerðisbæjar Kosið er í Grunnskólanum í Sandgerði. Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki. Kjörstaður opnar kl. 9 og lokar kl. 22. Kjósendur eru hvattir til að koma snemma á kjörstað til að forðast biðraðir. Á kjördag mun kjörstjórn hafa aðsetur í Grunnskólanum í Sandgerði. Sími kjörstjórnar er 899 6317. Undrabarn í golfíþróttinni úr Reykjanesbæ Tíu ára golfstelpa, Kinga Korpak, úr Golfklúbbi Suðurnesja sigraði á stigamóti á Íslandsbankamótaröðinni í golfi sem fram fór á Garðavelli á Akranesi um síðustu helgi. Það sem er athyglisvert við sigur GS telpunnar er aldur hennar en Kinga er aðeins 10 ára gömul. Hún lék í flokki 14 ára og yngri telpna og var lang yngst í flokknum. Kinga lék á 179 höggum 36 holurnar við erfiðar aðstæður en sú sem varð í 2. sæti er systir hennar, Zuzanna Korpak, einnig úr GS. Hún var á 196 höggum. Þær systur eru pólskar og hafa æft íþróttina í nokkur ár í Leir- unni en Zuzanna tók sér þó frí um tíma en byrjaði aftur. Kinga er gríðar- lega efnileg og lék í fyrsta skipti á þessari bestu mótaröð unglinga hér á landi á síðasta ári, þá aðeins 9 ára. Grindvíkingar ætla sér sæti í úrvalsdeild Milan Stefan Jankovic þjálfari Grindvíkinga í 1. deild karla í knattspyrnu er bjartsýnn að eðilsfari. Hann segir að Grindvíkingar stefni hraðbyri að því að næla sér í sæti í Pepsi-deildinni, en þeir voru grátlega nærri því í fyrra. Deildin er farin af stað og hafa Grindvíkingar leikið tvo leiki þar sem unnist hefur einn sigur og tapast einn leikur. Margir upp- aldir Grindvíkingar leika lykilhlut- verk hjá liðinu og virðist stemningin eftir því. „Við erum ánægðir með stemninguna í hópnum. Við erum mjög bjartsýnir og það er gaman í klefanum sem og á æfingum,“ segir þjálfarinn léttur í bragði. Grindvíkingar náðu að halda flestum sínum sterkustu leikmönnum þrátt fyrir að ýmis félög í úrvalsdeild hafi sjálfsagt viljað njóta þjónustu þeirra. Jósef Kristinn Jósefsson er kominn á fullt skrið eftir að hafa glímt við meiðsli í fyrra, markvörðurinn Óskar Pétursson er áfram hjá liðinu og sömuleiðis hinn efnilegi Daníel Leó Grétarsson. „Hann lék vel í fyrra og mun fá að sanna sig betur í sumar. Hann er fastamaður hjá okkur og einn- ig í U19 landsliði Íslands,“ en Daníel hefur verið valinn í liðið sem leikur í milliriðli í Evrópukeppni um mánaða- mótin. „Strákurinn á skilið að spila með landsliðinu. Það er númer eitt að hann fái að spila þessa leiki sem fulltrúi Grindavíkur. Að mínu mati gengur landsliðið fyrir enda mikill heiður að spila fyrir sína þjóð,“ segir þjálfarinn sem jafnan er kallaður Janko. Missir í einum besta leikmanni landsins Því miður virðist sem Grindvíkingar njóti ekki krafta hins öfluga leik- manns, Alexanders Magnússonar, en hann hefur átt við þrálát meiðsli að stríða undanfarin tvö ár. „Hann hefur verið að koma á æfingu stöku sinnum en þetta er virkilega leiðinlegt með meiðsli hans. Vonandi getur hann spilað í sumar en þetta verður erfitt. Þarna erum við að tala um einn besta leikmann á Íslandi, ekki bara hjá okkur. Hann er líka frábær karakter og því er þetta mikill missir.“ Í fyrra voru Grindvíkingar ansi ná- lægt því að vinna sér sæti í úrvalsdeild. Liðið var lengst af á toppi deildarinnar og aðeins munaði markatölu að liðið færi upp um deild. Janko segir að markmiðið í ár sé svo sannarlega að vinna sér sæti í deild þeirra bestu. „Við erum með mannskap til þess að berjast á toppnum. Ég tel að það séu sex lið sem muni vera í baráttunni enda er þetta jöfn deild. Allir geta unnið alla og hver einasti leikur er nánast eins og úrslitaleikur. Næsti leikur Grindvíkinga er gegn Víkingum R. í bikarkeppninni. „Vík- ingar unnu okkur tvisvar í fyrra í 1. deildinni. Þetta verður hörkuleikur en við ætlum að koma okkur eins langt og hægt er í bikarnum,“ segir þjálfarinn en leikurinn fer fram í kvöld (miðviku- dag) í Reykjavík.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.