Víkurfréttir - 05.06.2014, Qupperneq 10
fimmtudagurinn 5. júní 2014 • VÍKURFRÉTTIR10
Rekstur líkamsræktar
í sundmiðstöð
Grindavíkur
Grindavíkurbær óskar eftir samstarfi við áhugasama
aðila um rekstur líkamsræktar í Sundmiðstöð Grinda-
víkur frá 1. desember 2014. Líkamsræktaraðstaðan
verður í um 400 m2 rými þar sem núverandi búnings-
klefar og líkamsrækt eru í sundmiðstöðinni. Áætlað er
að aðstaðan verði laus til framkvæmda 1. desember
2014. Miðað er við að líkamsræktarstöðin opni í janúar
2015.
Í íþróttamiðstöðina koma á ári hverju 60 til 70 þúsund
gestir og þar af eru um 25 þúsund sundlaugargestir á
almenningstímum.
Unnið er að byggingu nýrrar aðstöðu við íþrótta- og
sundmiðstöð Grindavíkur og er ný og stærri líkams-
ræktarstöð hluti af því. Í Grindavík er öflugt og fjöl-
breytt íþróttastarf og íbúar um 2900.
Skriflegum tilboðum skal skila á bæjarskrifstofu
Grindavíkurbæjar, eða á netfangið grindavik@grinda-
vik.is merkt Líkamsrækt fyrir 27. júní næstkomandi.
Tilboðsgjafar eru hvattir til að kynna sér aðstöðuna
áður. Þeir sem vilja kynna sér starfsemi íþróttamið-
stöðvar Grindavíkur og skoða verðandi húsnæði lík-
amsræktarstöðvar eru vinsamlega beðnir að hafa
samband við Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóra frí-
stunda- og menningarsviðs, í síma 420 1100 eða á
netfangið thorsteinng@grindavik.is
Nánari lýsing
Meðal markmiða Sundmiðstöðvar Grindavíkur er að
efla almenningsíþróttir og fjölga sundlaugargestum.
Í ljósi þess er skilyrt að tilboðsgjafi greiði aðgang í
sundlaug fyrir viðskiptavini sína. Sett verður upp sér-
stök gjaldskrá vegna magnkaupa á árskortum í sund-
laug. Sundmiðstöðin leggur til þjónustu í afgreiðslu
og ræstingu.
Í tilboði skal koma fram áætlað verð á líkamsræktar-
kortum til notenda og tilboð til Sundmiðstöðvar
Grindavíkur um leigu fyrir aðstöðuna. Jafnframt skal
koma fram lýsing á þeirri þjónustu sem boðið verður
upp á, svo sem í tækjasal og opnum leikfimitímum.
Gerð er krafa um að í húsnæðinu verði aðstaða fyrir
sjúkraþjálfun, sem leigutaki framleigir.
Tilboðsgjafi skal leggja til allan tækjabúnað líkams-
ræktarsalarins. Aðeins tæki og búnaður frá viður-
kenndum framleiðendum líkamsræktartækja koma til
greina. Við mat á tilboðum verður meðal annars litið
til lýsingar rekstraraðila á fjölda tækja, gerð þeirra og
gæða.
Tilboðsgjafi skal greiða allan kostnað vegna markaðs-
mála líkamsræktarinnar svo sem auglýsingar, kost-
unarsamninga og fleira.
Tilboðsgjafi skal tryggja að allir sem kaupa kort í lík-
amsrækt fái vandaða leiðsögn og undirbúning um
notkun tækja og þjálfun áður en þjálfun hefst og
bjóða upp á reglulega aðstoð fyrir viðskiptavini. Í til-
boði skal koma fram lágmarksviðvera starfsmanna á
viku.
Sundmiðstöð Grindavíkur leggur til húsnæði undir
starfsemina í núverandi mynd. Breytingar á húsnæð-
inu eru á kostnað leigutaka. Gert er ráð fyrir leigu-
samningi til 5 ára.
Við mat á tilboðum verður horft til verðs á líkamsrækt-
arkortum til notenda, endurgjalds fyrir aðstöðuna og
fyrirkomulag þjónustu.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn Gunnarsson,
sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs, í síma 420
1100 eða á netfangið thorsteinng@grindavik.is
-aðsent pósturu vf@vf.is
Hefur þú áhuga á því að blogga í sumar?
Heklan auglýsir eftir bloggurum í sumar sem hafa áhuga á því að kynna Reykjanes og það sem
Suðurnesjamenn eru að gera í samfélagsmiðlum.
XuÞað getur verið á sviði íþrótta, jarðfræði, útivistar, menningar, viðburða, viðtöl, spjall og margt fleira – allt
eftir áhugasviði hvers og eins. Miðlarnir eru fjölbreyttir s.s. tumblr, twitter, instagram, pinterest, flickr, yo-
utube og vimeo. Hægt er að velja einn miðil eða fleiri.
Vilt þú taka þátt? – eða þekkir þú einhvern sem væri góður fulltrúi fyrir svæðið?
Sendu inn umsókn á heklan@heklan.is fyrir föstudaginn 6. júní. Þar þurfa að koma fram upplýsingar um viðkom-
andi, áhugasvið og skrifaður texti (300 orð lágmark) ásamt ljósmynd eftir höfund og slóð í samfélagsmiðil ef við á.
Langar til að þakka þeim sem stóðu að stórskemmtilegum tónleikum
sem fram fóru í Hljómahöllinni þriðjudagskvöldið sl. Þar komu fram
hinn vestur-íslenski Lindy Vopnfjörð, Ylja og Snorri Helgason.
Lindy hóf tónleiknna. Ég verð
að viðurkenna að ég þekkti ekk-
ert til kappans og kom hann mér
skemmtilega á óvart. Flottur tón-
listarmaður með góða rödd og
fínar lagasmíðar, einlægur og trúr
í sínum flutningi.
Ylja var næst á sviðið. Sá þær fyrst
hita upp fyrir Glen Hansard (The
Swell Season) fyrir nokkrum árum
þá ungar og óreyndar. Þær hafa
heldur betur vaxið og blómstrað
síðustu misseri. Stelpurnar hafa
báðar flottar raddir og mikla út-
geislun á sviði.
Snorri Helgason og hljómsveit luku
svo tónleikunum með glæsibrag.
Sprengjuhallarprinsinn hlýtur að
vera á barmi heimsfrægðar, annað
er bara svindl. Snorri hefur allt til
að bera til þess að skapa sér sess í
risavöxnum heimi popptónlistar.
Hljómurinn í salnum var frábær
og hin stórkostlega Hljómahöll
stóð svo sannarlega undir nafni.
Reykjanesbær hefur stökkbreyst á
undaförnum árum. Við erum al-
vöru menningarbær, eigum söfn og
tónlistarhús á heimsmælikvarða.
Það eina sem skyggði á þessa flottu
tónleika voru hversu fáir sáu sér
fært að mæta. Það er lágmarks-
kurteisi að mæta í veislu þegar vel
er boðið. Það má hvíla Facebook,
Twitter og hin tölvuforritin sem
virðast ráða mestu um það hvað
verður um frítíma nútímafólks.
Takk fyrir mig,
Tómas Tómasson.
Á síðustu árum hef ég lagt mig fram við að Keflavíkurflugvöllur sé rétt
skráður þannig að gestir sem til landsins koma séu rétt upplýstir um
hvar þeir lenda þegar hingað er komið. Skrifaði ég meðal annars grein
fyrir nokkrum vikum þar sem ég sýndi myndir af brottfararskjám í
Kanada þar sem nafnið Keflavík kom ekki fram og vitnaði einnig í flug-
farþega sem hefðu bókað hótel við Reykjavíkurflugvöll þar sem þeir
héldu að þeir lentu á þeim flugvelli en ekki Keflavíkurflugvelli.
Einnig hef ég sent nýjar myndir
til fulltrúa ferðaþjónustunnar af
brottfararskjám t.d. í Boston þar
sem allir flugvellir eru skráðir með
réttum nöfnum, nema á Íslandi, og
þá þannig að höfuðborg viðkom-
andi lands er nefnd fyrst og síðan
nafn flugvallarins sbr. London
– Heathrow, Rome – Fiumicino,
Paris – De Gaulle og svo framvegis
en hér aðeins Reykjavik.
Fundur sem ég boðaði með aðstoð
Markaðsskrifstofu Reykjaness með
flugfélögum og fulltrúum ferða-
þjónustu hefur enn ekki verið
haldinn því erfitt hefur verið að ná
öllum saman. En vonandi tekst það
á næstu dögum.
Á sunnudaginn settist ég aftur á
móti niður og ákvað að horfa á
góða bíómynd eftir að niðurstöður
kosninganna lágu fyrir. Fyrir val-
inu var ný mynd með Liam Neeson
– NON-STOP. Það sem vakti at-
hygli mína og ánægju var að Holly-
wood-framleiðendur og leikstjóri
myndarinnar voru ekki í vafa um
hvað flugvöllurinn á Íslandi heitir
og kom nafnið Keflavík skýrt fram í
því sambandi eins og meðfylgjandi
mynd sýnir. Það skyldi þó aldrei
vera að við þurfum kvikmynda-
framleiðendur frá Hollywood til að
benda okkar flugfélögum á að skrá
flugvöllinn okkar rétt? Ég vona
ekki og hef trú á að næsti fundur
með þessum aðilum komist að
réttri niðurstöðu. Eitt er þó víst að
myndin NON-STOP hefði endað
allt öðruvísi ef flugmenn vélarinnar
hefðu, ásamt Liam Neeson, eins og
svo margir flugfarþegar, ruglast á á
hvaða flugvelli þeir áttu að lenda!
Kær kveðja
Steinþór Jónsson
X■ Steinþór Jónsson skrifar:
Reykjavík – Keflavík
Kæru bæjarbúar!
Síðustu mán-
uðir hafa verið
viðburðaríkir
og skemmti-
legir. Ég fékk
að starfa með
mörgu góðu
f ó l k i s e m
skipaði lista
Framsóknar fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar sem haldnar voru
31. maí sl. Nú að liðnum kosn-
ingum er þakklæti mér efst í huga.
Ég vil þakka samherjum mínum
og öðrum frambjóðendum sér-
staklega fyrir málefnalega kosn-
ingabaráttu. Ég þakka einnig
kjósendum fyrir traustið sem þér
sýndu mér og framboði Fram-
sóknar. Framundan eru spenn-
andi tímar og ég hlakka til að fá
að taka þátt í starfinu sem fram-
undan er í bæjarstjórn Reykja-
nesbæjar. Nauðsynlegt er að allir
hugar og hendur vinni að lausn
mála, verkefnið er stórt. Ég heiti
að gera mitt allra besta í að vinna
fyrir bæjarbúa og bæinn okkar.
Fyrir betri og meiri Reykjanesbæ.
Kristinn Þór Jakobsson,
oddviti Framsóknar í Reykjanesbæ
X■ Tómas Tómasson skrifar:
Hljómahöllin stóð undir nafni