Víkurfréttir - 05.06.2014, Blaðsíða 12
fimmtudagurinn 5. júní 2014 • VÍKURFRÉTTIR12
Kristrún Jónsdóttir
Sigurbjörn Ágúst Ragnarsson
Jóhann Sævar Ragnarsson
Ólafur Friðjón Ragnarsson
Ragnheiður B. Ragnarsdóttir Jónas Árnason
og barnabörn.
Elskulegi eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
RAGNAR BRYNJAR HJELM,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 7. maí 2014.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Guðrún Gunnlaugsdóttir
Jón Gunnlaugsson Elín Einarsdóttir
Halldór Gunnlaugsson Borgný Samúelsdóttir
Sigrún Gunnlaugsdóttir Karl Guðjónsson
Leifur Gunnlaugsson
Hugrún Gunnlaugsdóttir Sigurður Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkæra móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma
Guðrún S. Halldórsdóttir
áður til heimilis á Vallarbraut 6 í Njarðvík
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 29. maí.
Útförin fer fram í dag, fimmtudaginn 5. júní kl. 12:00, í Fríkirkjunni í Hafnarfirði.
Vilhjálmur Þórhallsson
Þórhallur Vilhjálmsson Sólveig Bjarnadóttir
Guðrún Vilhjálmsdóttir
Ólafía S. Vilhjálmsdóttir Nathan Balo
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sigríður Guðmannsdóttir
Njarðarvöllum 6
Njarðvík
lést föstudaginn 16. maí. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýju.
Sérstakar þakkir til alls þess góða hjúkrunarfólks
sem kom að umönnun Sigríðar.
Opinn dagur
í Kirkjugörðum Keflavíkur
Fimmtudaginn 12. júní kl. 16:30 - 19:00.
Kirkjugarðurinn við Aðalgötu
og Hólmsbergsgarður.
Boðið upp á kaffi og kleinur.
Gott tækifæri fyrir aðstandendur að snyrta leiði
eftir veturinn og ræða við starfsfólk garðana.
Kirkjugarðanefnd.
Maris, hönnunarklasi Suður-nesja hefur í samstarfi við
Duushús í Reykjanesbæ opnað
sýningu á hönnun á Suðurnesjum
sem standa mun í sumar en þátt
taka 13 hönnuðir af svæðinu með
áherslu á fatahönnun og skart.
Hönnunarklasi á Suðurnesjum
hefur það að markmiði að efla sam-
vinnu og tilraunir hönnuða til að
auka samkeppnishæfni þeirra og
styðja við nýsköpun. Klasinn varð
til í framhaldi af samstarfi hönnuða
í frumkvöðlasetrinu Eldey og má
þar nefna kaffihúsakvöld, hand-
verkssýningar og Heklugos sem
vakti mikla athygli á þeirri gerjun
sem á sér stað í hönnun á Suður-
nesjum.
Að sögn Dagnýjar Gísladóttur
verkef nast j óra Mar is he f ur
reynslan sýnt að samstarf hönnuða
hefur fjölgað tækifærum og vakið
athygli á hönnun á Suðurnesjum.
„Maris hefur það að markmiði að
efla samvinnu og tilraunir hönn-
uða til að auka samkeppnishæfni
þeirra og styðja við nýsköpun. Með
stofnun hönnunarklasans skapast
aukin tækifæri til fjármögnunar
verkefna sem miða að því að
styrkja hönnun á Suðurnesjum og
að sama skapi verður hún sýnilegri.
Sýningin er einn liður í því en í
framhaldi verður starfsemi hönn-
uða á Suðurnesjum korlögð til þess
að auðvelda samstarf og gera þá
sýnilegri. Við hvetjum sem flesta
til þess að hafa samband á maris@
maris.is og taka þátt í verkefnum
klasans en frekari upplýsingar má
finna á maris.is.“
Vegleg gjöf frá Isavia til Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja
Þröstur V. Söring framkvæmdastjóri Keflavíkurflugvallar afhenti Málm- og vélstjórnardeild Fjölbrautaskóla Suðurnesja veglega gjöf
á dögunum. Þar var á ferðinni vörubílsfarmur af vélum sem voru í eigu
Flugvallarþjónustu Keflavíkurflugvallar.
Um var að ræða fjórar vélar sem
hafa gegnt mikilvægum hlut-
verkum á Keflavíkurflugvelli í
gegnum tíðina. Ljósavél með Ca-
terpillar 3208 mótor 110/208 volt
60 hz, Caterpillar 1693 sem var
varavél fyrir gömlu Oshkosh snjó-
plógana, Detroit Diesel 60 sería vél
sem kom úr Oshkosh
plóg, en sú vél bilaði ársgömul en
var endurbyggð og var í geymslu
sem varavél, og Benz OM 422 vél
sem kom úr Danline flugbrautar-
sóp.
Þessar vélar munu nýtast vel í
kennslu fyrir vélvirkja og vélstjóra
framtíðarinnar að sögn forsvars-
manna Fjölbrautaskólans. Kristján
Ásmundsson skólameistari tók við
gjöfinni fyrir hönd skólans, ásamt
Ívari Valbergssyni vélstjórnar-
kennara og Jónasi Eydal, kennara í
málmiðnum.
„FSS þakkar Isavia kærlega fyrir
þessa veglegu gjöf sem mun nýtast
nemendum skólans í framtíðinni.
Það er ánægjulegt að atvinnulífið
styrki skólann á þennan hátt en
þess má geta að Byko lagði til lyft-
ara til að koma vélunum í hús,“
sagði Kristján Ásmundsson þegar
skólinn veitti vélunum viðtöku.
Hönnun á Suðurnesjum til sýnis í sumar
Dagný Gísladóttir verkefnastjóri Maris og
Sara Dögg Gylfadóttir sýningahönnuður við opnunina.
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001
Víkurfréttir koma næst út miðvikudaginn 28. maí. Síðasta blað fyrir sveitarstjórnarkosningar.