Víkurfréttir - 05.06.2014, Blaðsíða 15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 5. júní 2014 15
Lærisveinar Guðmundar Steinarssonar í Njarðvík hafa ekki riðið feitum hesti í fyrstu leikjum liðsins í 2. deildinni í fótboltanum.
Liðið hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum til þessa en liðið er
skipað ungum leikmönnum þar sem nýr og óreyndur þjálfari stendur í
brúnni. Hann segist nokkuð sáttur með spilamennskuna þrátt fyrir að
stigin láti á sér standa.
„Árangurinn er engan veginn
sá sem við vonuðumst eftir. Við
erum þó ekki farnir að örvænta,“
segir Guðmundur hinn rólegasti.
Hann segir að í þeim fjórum
leikjum sem hafi tapast til þessa
hafi Njarðvíkingar verið að standa
sig nokkuð vel þrátt fyrir að stiga-
taflan gefi annað til kynna. „Við
höfum alls ekki verið yfirspilaðir.
Það virðist vera að reynsluleysið
sé að skína í gegn hjá okkur. Það
hefur margt jákvætt komið út úr
þessum leikjum svona fyrir utan
stigasöfnun okkar.“ Guðmundur er
á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálf-
ari en hann viðurkennir að starfið
sé nokkuð strembið. „Ég neita því
ekki að þetta er erfiðara en ég bjóst
við. Engu að síður er þetta líka
skemmtilegra en ég bjóst við. Það
er að mörgu að huga þegar maður
er að þjálfa. Þetta er mikil áskorun
og krefjandi verkefni.“
Vill síður þurfa að hlaupa
sjálfur
Lið Njarðvíkinga er ungt og
reynslulítið og sem dæmi má nefna
að jafnan eru sex leikmenn sem eru
gjaldgengir í 2. flokk á vellinum í
hverjum leik Njarðvíkinga. „Þessir
ungu leikmenn eiga eftir að hagn-
ast á þessari reynslu síðar meir.
Það eru ekki margir á þessum aldri
sem hljóta þessa reynslu. Reynslan
vegur mikið í þessari deild. Við
erum með marga leikmenn sem
hafa hvorki reynslu af því að spila í
2. deild né í efstu deild. Það virðist
sem það hafi áhrif,“ segir þjálfar-
inn sem þó undirstrikar að hann
hafi fulla trú á ungum og hæfi-
leikaríkum leikmönnum sínum.
Guðmundur segir ekki margt hafa
komið sér á óvart hvað varðar 2.
deildina nema kannski hvað hans
mönnum hefur ekki gengið að ná
í stig. Gamli markahrókurinn er
klár sjálfur með takkaskóna ef á
þarf að halda, en hingað til hefur
hann treyst á ungu strákana. „Ég
vona bara að þeir fari að ná inn
stigum svo að ég þurfi að hlaupa
sem minnst,“ segir Guðmundur á
léttu nótunum að lokum.
Sveitarfélagið Garður og Golf-klúbbur Suðurnesja (GS)
hafa gert með sér samstarfssamn-
ing. Bæjarráð Garðs samþykkti
samhljóða á fundi sínum þann
21. maí 2014 að fela bæjarstjóra
að undirrita samninginn.
Hólmsvöllur í Leiru, golfvöllur
Golfklúbbs Suðurnesja, er í Sveitar-
félaginu Garði. Í samningnum
kemur m.a. fram að fáni Garðs
verði alltaf sýnilegur þegar haldin
eru stórmót í Leirunni, auk þess
mun GS sjá til þess að í kynningum
klúbbsins sé ætíð minnt á að GS og
golfvöllurinn eru staðsett í Sveitar-
félaginu Garði.
Meðal þess sem kemur fram í
samningnum er að GS mun kynna
golfíþróttina fyrir elstu nemendum
Gerðaskóla og veita þeim endur-
gjaldslausan aðgang að æfingavelli
klúbbsins, samskipti GS við ungl-
inga í Garði verði í samræmi við
uppeldisstefnu og stefnu um ungl-
ingastarf innan GS. Þá mun GS
halda golfmót tileinkað Sólseturs-
hátíðinni í Garði og ein hola vallar-
ins mun bera heitið Garðskaga-
holan. GS mun veita Garði ráðgjöf
vegna grasvalla sveitarfélagsins
og framkvæma eina djúpgötun á
knattspyrnuvelli Víðis á hverju ári.
Í samningnum er áhersla á að GS
beri ábyrgð á því að öll tilskilin leyfi
séu til staðar varðandi mannvirki á
starfssvæði GS, í samræmi við lög
og reglur um skipulags- og bygg-
ingamál.
Sveitarfélagið Garður hefur veitt
GS styrk sem nemur álögðum fast-
eignasköttum á eignum klúbbsins
og verður svo áfram samkvæmt
samningnum. Auk þess mun
sveitarfélagið veita klúbbnum styrk
sem nemur álögðum fasteigna-
skatti á klúbbhús klúbbsins í Leiru.
Samstarfssamningurinn gildir frá
1. janúar 2014 og framlengist í eitt
ár í senn ef samningsaðilar segja
honum ekki upp fyrir 31. desember
ár hvert.
Magnús Stefánsson bæjarstjóri og Friðjón Einarsson formaður Golfklúbbs
Suðurnesja undirrituðu samninginn fimmtudaginn 22. maí 2014.
Víðtækt samstarf
Garðs og GS
Arnar Helgi Lárusson er ný-lega kominn heim frá Sviss
þar sem hann æfði og keppti um
mánaðar skeið. Arnar gerði sér
lítið fyrir og kom heim með níu
Íslandsmet í farteskinu en hann
keppir í hjólastólaakstri mænus-
kaddaðra. Arnar lamaðist fyrir
neðan brjóst árið 2002 en hann
hóf að keppa í íþróttinni, sem á nú
hug hans allan, árið 2012. Arnar
er upptekinn maður en hann er
formaður Samtaka endurhæfðra
mænuskaddaðra, stundar vinnu
og leggur mikinn metnað í íþrótt-
ina, en hann æfir tvisvar á dag.
„Ég hef ótrúlega gaman af þessu.
Þessi sælutilfinning sem fylgir
þessu er engu lík, sérstaklega í
löngu vegalengdunum,“ segir
Arnar en hann keppti í maraþoni í
bland við styttri vegalengdir. Arnar
smíðaði sinn eigin keppnisstól en
hönnun hans vakti athygli kepp-
enda í Sviss. Einhverjir vildu fá að
prófa en það tíðkast alls ekki að
keppendur smíði sína eigin stóla.
Þannig hefur Arnar alltaf verið,
hann fer sínar eigin leiðir. Arnar
er með annan stól á teikniborðinu
en það er hreinlega aldrei að vita
nema hann hefji feril sem hjóla-
stólasmiður þegar íþróttaferlinum
lýkur. Arnar nýtti tímann í Sviss
til þess að afla sér upplýsinga um
smíði keppnisstóla en annars hefur
hann þurft að notast við internetið
og álíka leiðir. „Ég fór til Sviss í
fyrra og ég var alveg eitt ár að
vinna úr öllum þeim upplýsingum
sem ég aflaði mér þar. Ég geri ráð
fyrir að það sama verði uppi á ten-
ingnum núna,“ segir Arnar en þar
sem hann er sá eini á landinu sem
stundar íþróttina að svo stöddu, þá
getur reynst erfitt að leita í reynslu-
banka annara.
Er ekki lengur síðastur
Arnar á orðið öll Íslandsmet í
sportinu en hann stefnir hátt og
ætlar sér á Ólympíleikana í Ríó árið
2016. Arnar er í stöðugri framför
en hvernig er hann í samanburði
við þá bestu í heiminum? „Þegar
ég var á sama móti í fyrra þá var ég
alltaf síðastur. Þannig er það ekki
lengur og ég er að fikra mig upp
stigann,“ en sem dæmi má nefna
að Arnar er sem stendur í 34. sæti
á heimslistanum í 100 metrunum.
Þar eru rúmlega 2000 manns sem
vilja komast á þann eftirsótta lista.
„Mig dreymir um að komast til
Ríó á Ólympíuleikana 2016. Ef allt
gengur upp þá tel ég að um árið
2016 verði ég farinn að komast á
pall í mótum. Það er stefnan hjá
mér,“ segir Arnar sem verður að
fara að gera upp við sig hvort hann
hyggist einbeita sér að löngu vega-
lengdunum eða þeim stuttu. Hann
er sterkastur í sprettunum að eigin
sögn og líklega mun áherslan verða
lögð á þau þegar fram líða stundir.
Langur líftími í íþróttinni
Arnar er þannig séð nýliði í grein-
inni en hann hóf að keppa fyrir um
tveimur árum síðan. Flestir þeir
sem hann etur kappi við eru búnir
að vera að keppa síðan þeir voru
ungir strákar. „Grunnurinn hjá
þeim er margfalt betri og tæknin
er slík að maður skilur hana varla.“
Arnar segir það gott við sportið
að líftíminn er langur. „Ég er ekki
gamall miðað við marga, þarna eru
menn að keppa fram yfir fimm-
tugt,“ segir Arnar sem er 38 ára
gamall.
Vonast til þess að verða
öðrum hvatning
Arnar hefur vakið töluverða athygli
fyrir vasklega framgöngu sína í
sportinu. Hann vonast til þess að
verða öðrum hvatning til þess að
byrja að hreyfa sig. „Margir hafa
orðið áhuga á því sem ég er að gera.
Yngri krakkar sem glíma við fötlun
sjá mig og þeir sjá hvað ég er að
gera. Ég hugsa að það sé að kvikna
áhugi.“ Arnar telur að mikill ávinn-
ingur geti unnist ef fleiri mænus-
kaddaðir fari að stunda hreyfingu
og íþróttir. Kostnaður sem fylgi
slíkum einstaklingi dregst veru-
lega saman ef viðkomandi nær að
stunda líkamsrækt að hans mati.
„Samfélagslega er ávinningurinn
því ómetanlegur. Ekki bara fjár-
hagslega heldur líka andlega og
fyrir alla sem koma að máli.“
Smíðar sinn
eigin keppnisstól
Stóllinn er úr áli og
vegur um 8 kg. Arnar er
með fína aðstöðu í bíl-
skúrnum þar sem hann
vinnur í stólnum og
æfir. Það er að mörgu
að huga hvað varðar
hjólastólaakstur og
kostnaðurinn er þó-
nokkur.
- Arnar Helgi ætlar sér á Ólympíuleikana 2016
Sjálfboðaliðar óskast
Velkomin í skemmtilegan hóp
sjálfboðaliða hjá Fjölskylduhjálp Íslands.
Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjanesbæ óskar
eftir sjálfboðaliðum vegna sumarleyfa.
Upplýsingar veitir Anna V. Jónsdóttir
verkefnisstjóri í símum 897-8012 og 421-1200.
Erfiðara en ég bjóst við
- Njarðvíkingar stigalausir í 2. deild