Víkurfréttir - 12.06.2014, Page 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
fimmtudagurinn 12. júní 2014 • 23. tÖLuBLaÐ • 35. Árgangur
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Hjá okkur njóta allir sérkjara
af lyfjum utan greiðsluþáttöku
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
ERFIDRYKKJUR
Chef Örn Garðars
Sími 692 0200
LANGAR AÐ
LEIKA VONDA
KALLINN
Keflvíkingurinn og leikarinn Albert Halldórsson
segir okkur frá því hvernig áskoranir í leiklistar-
náminu hafa breytt lífi hans.
SJÁ VIÐTAL Í BLAÐINU Í DAG.
Notar flautuna
óspart til þess að
stjórna hópunum
Rannveig L. Garðarsdóttir
stýrir Reykjanesgönguferðum
TEAM PUMBA
Í BETRA FORMI
Rallararnir Henning
og Árni vilja fleiri
malarvegi og
minna malbik!
„Við Bryndís erum ekkert að
fara. Það þarf eitthvað mikið
að gerast til að við höfum
áhuga á að flytjast úr þessum
fallega og góða bæ sem búið
að er byggja upp. Það segir
mest um hvað við erum stolt
af þessu samfélagi,“ sagði Árni
Sigfússon, bæjarstjóri Reykja-
nesbæjar, í kveðjuhófi og
veislu í tilefni 20 ára afmælis
bæjarins, í Ráðhúsi Reykja-
nesbæjar í gær. Aðspurður
sagðist hann ekki hafa búist
við því að vera svona lengi í
þessu starfi. Það hafi verið svo
margt sem ýtti á eftir því að
halda áfram. Hann rifjaði upp
hvað hefði áunnist í ýmsum
málefnum og lagði áherslu á
hversu mikið hægt er að gera
í stærra, sterkara, sameinuðu
sveitarfélagi. Vinnubrögðin
sem voru þjálfuð upp hér hafi
skilað því sem raun var vitni.
„Hóparnir sem staðið hafa á
bakvið stór verkefni hafa verið
tiltölulega fámennir í saman-
burði við önnur sveitarfélög.“
Spurður um hvort hann gæti
hugsað sér að leiða sjálfstæðis-
flokkinn eftir fjögur ár segist
Árni ekki gera ráð fyrir því
þegar hann nálgist sjötugsaldur.
„Ég tel að ég verði kallaður til
annarra verkefna. Það er alveg
skýrt að á þessum tímamótum
er ég að hætta sem bæjarstjóri
og mun taka að mér önnur verk-
efni. Ég vil leggja samfélaginu
lið og hef sinnt samfélagsþjón-
ustu frá því ég kláraði skóla. Ég
tek að mér verkefni og vinn þau.
Ég held að bæjarbúar hafi ekki
fundið fyrir mikilli pólitík þótt
ég hafi leitt sjálfstæðisflokkinn
þessi ár. Ég hef starfað vel með
fólki sem hefur aðhyllst aðra
stjórnmálaflokka og það hefur
starfað vel með mér. “ Árni segir
að þegar hafi verið leitað til hans
um að taka að sér misjafnlega
áhugaverð störf. „Mín þekking
snýr mikið að því að sameina
krafta og byggja upp og það er
á svo mörgum sviðum. Ég hef
stundum líkt mér við alkóhól-
ista að því leyti að það má ekki
rétta að mér hugmynd, þá er ég
dottinn í það. Ég bið bara um að
fá að halda mér þurrum í alla-
vega nokkrar vikur,“ segir Árni
í gamansömum tón.
Árni segist hafa gríðarlegan
áhuga á málefnum skólanna
og tryggja að árangur sem hafi
náðst viðhaldist. Hann beindi
síðan orðum sínum að starfs-
fólki ráðhússins og sagði að með
störfum sínum gerði það hlut-
„Við Bryndís
erum ekkert
að fara“
ina auðveldari fyrir stjórnendur
bæjarins. „Það gengur ekki hver
sem er inn í ykkar störf og gerir
það sem þið eruð að gera.“
Einnig var honum hugleikin
ákvörðun þess hóps í kjöl-
far hrunsins að gefa 10-15% af
vinnu sinni eftir hrun og það
væri líklega einsdæmi. „Núna
þegar ég kveð í þessu hlutverki
er ég mjög bjartsýnn og trúi því
að með ykkur er hægt að gera
allt vel. Það kemur alltaf maður
í manns stað.“
- sagði Árni Sigfússon á sínum síðasta degi sem bæjar-
stjóri Reykjanesbæjar. Hann kvaddi samstarfsfólk sitt
síðdegis í gær á 20 ára afmæli bæjarfélagsins.
Árni sker sneið af afmælistertu Reykjanesbæjar í kveðjuhófi sem
honum var haldið síðdegis í gær. Bryndís kona hans stendur hjá.
VF-mynd: Eyþór Sæmundsson