Víkurfréttir


Víkurfréttir - 12.06.2014, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 12.06.2014, Blaðsíða 1
vf.is Víkurfréttir Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001 fimmtudagurinn 12. júní 2014 • 23. tÖLuBLaÐ • 35. Árgangur Hringbraut 99 - 577 1150 Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00. VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Hjá okkur njóta allir sérkjara af lyfjum utan  greiðsluþáttöku Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA ERFIDRYKKJUR Chef Örn Garðars Sími 692 0200 LANGAR AÐ LEIKA VONDA KALLINN Keflvíkingurinn og leikarinn Albert Halldórsson segir okkur frá því hvernig áskoranir í leiklistar- náminu hafa breytt lífi hans. SJÁ VIÐTAL Í BLAÐINU Í DAG. Notar flautuna óspart til þess að stjórna hópunum Rannveig L. Garðarsdóttir stýrir Reykjanesgönguferðum TEAM PUMBA Í BETRA FORMI Rallararnir Henning og Árni vilja fleiri malarvegi og minna malbik! „Við Bryndís erum ekkert að fara. Það þarf eitthvað mikið að gerast til að við höfum áhuga á að flytjast úr þessum fallega og góða bæ sem búið að er byggja upp. Það segir mest um hvað við erum stolt af þessu samfélagi,“ sagði Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykja- nesbæjar, í kveðjuhófi og veislu í tilefni 20 ára afmælis bæjarins, í Ráðhúsi Reykja- nesbæjar í gær. Aðspurður sagðist hann ekki hafa búist við því að vera svona lengi í þessu starfi. Það hafi verið svo margt sem ýtti á eftir því að halda áfram. Hann rifjaði upp hvað hefði áunnist í ýmsum málefnum og lagði áherslu á hversu mikið hægt er að gera í stærra, sterkara, sameinuðu sveitarfélagi. Vinnubrögðin sem voru þjálfuð upp hér hafi skilað því sem raun var vitni. „Hóparnir sem staðið hafa á bakvið stór verkefni hafa verið tiltölulega fámennir í saman- burði við önnur sveitarfélög.“ Spurður um hvort hann gæti hugsað sér að leiða sjálfstæðis- flokkinn eftir fjögur ár segist Árni ekki gera ráð fyrir því þegar hann nálgist sjötugsaldur. „Ég tel að ég verði kallaður til annarra verkefna. Það er alveg skýrt að á þessum tímamótum er ég að hætta sem bæjarstjóri og mun taka að mér önnur verk- efni. Ég vil leggja samfélaginu lið og hef sinnt samfélagsþjón- ustu frá því ég kláraði skóla. Ég tek að mér verkefni og vinn þau. Ég held að bæjarbúar hafi ekki fundið fyrir mikilli pólitík þótt ég hafi leitt sjálfstæðisflokkinn þessi ár. Ég hef starfað vel með fólki sem hefur aðhyllst aðra stjórnmálaflokka og það hefur starfað vel með mér. “ Árni segir að þegar hafi verið leitað til hans um að taka að sér misjafnlega áhugaverð störf. „Mín þekking snýr mikið að því að sameina krafta og byggja upp og það er á svo mörgum sviðum. Ég hef stundum líkt mér við alkóhól- ista að því leyti að það má ekki rétta að mér hugmynd, þá er ég dottinn í það. Ég bið bara um að fá að halda mér þurrum í alla- vega nokkrar vikur,“ segir Árni í gamansömum tón. Árni segist hafa gríðarlegan áhuga á málefnum skólanna og tryggja að árangur sem hafi náðst viðhaldist. Hann beindi síðan orðum sínum að starfs- fólki ráðhússins og sagði að með störfum sínum gerði það hlut- „Við Bryndís erum ekkert að fara“ ina auðveldari fyrir stjórnendur bæjarins. „Það gengur ekki hver sem er inn í ykkar störf og gerir það sem þið eruð að gera.“ Einnig var honum hugleikin ákvörðun þess hóps í kjöl- far hrunsins að gefa 10-15% af vinnu sinni eftir hrun og það væri líklega einsdæmi. „Núna þegar ég kveð í þessu hlutverki er ég mjög bjartsýnn og trúi því að með ykkur er hægt að gera allt vel. Það kemur alltaf maður í manns stað.“ - sagði Árni Sigfússon á sínum síðasta degi sem bæjar- stjóri Reykjanesbæjar. Hann kvaddi samstarfsfólk sitt síðdegis í gær á 20 ára afmæli bæjarfélagsins. Árni sker sneið af afmælistertu Reykjanesbæjar í kveðjuhófi sem honum var haldið síðdegis í gær. Bryndís kona hans stendur hjá. VF-mynd: Eyþór Sæmundsson

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.