Víkurfréttir - 03.07.2014, Síða 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
fimmtudagurinn 3. júlí 2014 • 26. tÖluBlaÐ • 35. Árgangur
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Hjá okkur njóta allir sérkjara
af lyfjum utan greiðsluþáttöku
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
SÓLSETURSHÁTÍÐ
Í GARÐINUM.
FÓLKIÐ, FJÖRIÐ OG
VEÐRIÐ!
Hvað segja Magnús,
Jónína, Oddný,
Ásgeir, Soffía og Bogi
um Garðinn?
Í KVÖLD KL. 21:30 Á ÍNN
EINNIG Á VF.IS
Sjónvarp Víkurfrétta
öll fimmtudagskvöld
■■ Flutningur Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja í umræðuna í kjölfar Fiskistofumáls:
Hefði flutningur Gæslunnar á Ásbrú
ekki átt að koma á undan Fiskistofu?
-Suðurnesjaþingmenn og ráðherra sammála flutningi Landhelgisgæslunnar á Ásbrú
„Allir þingmenn kjördæmisins eru á sama máli með þetta mál en það skarast á milli
innanríkis- og utanríkisráðuneytisins. Þess vegna er erfitt að koma því áfram og því
verðum við að hafa trú á því. Öll rök hníga að því að flytja Gæsluna suðureftir vegna
þess að aðstaðan er sprungin á Reykjavíkurflugvelli. Þeir fá ekki meira pláss þar,“ sagði
Silja Dögg Gunnarsdóttir, þingmaður Framsóknar í Suðurkjördæmi. Hún flutti þings-
ályktunartillögu síðasta haust þar sem hún mælti fyrir því að Landhelgisgæslan yrði
flutt til Reykjanesbæjar. Málefni hennar hafa komist í umræðuna í kjölfar ákvörðunar
ríkisstjórnarinnar að flytja Fiskistofu með manni og mús til Akureyrar.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar og við-
skiptaráðherra var á fundum erlendis þegar
VF fékk viðbrög frá henni á hlaupum á milli
funda. Hún sagðist vera sömu skoðunar og
hún hefði alltaf verið um að öll rök hnigu að
því að Gæslan flytti til Reykjanesbæjar. Á
Ásbrú og annars staðar í Rekjanesbæ væri
mjög góð aðstaða til staðar hvort sem um
væri að ræða húsnæði, hafnaraðstöðu eða
aðstöðu fyrir þyrlurkost og flugvélar. Hún
sagði að sú úttekt sem Ögmundur Jónasson,
þáverandi innanríkisráðherra hefði látið
gera og kynnt í tíð fyrri ríkisstjórnar hefði
því miður sett málið til baka ef eitthvað er
þar sem kostnaður við flutning hefði verið
ýktur að hennar mati. Það þyrfti að hefja þá
skoðun að nýju.
Silja Dögg segir þetta vera almannahags-
munamál og segist hafa talað við margt fólk
um það síðan hún byrjaði að vinna í því. „Ég
heyri æ fleiri starfsmenn Gæslunnar vera
jákvæða og það er breyting frá því sem fyrst
var. Fólk fór alveg í baklás til að byrja með.
„Utanríkisráðherra hefur einnig lýst því
yfir oftar en einu sinni að hann sjái mið-
stöð leitar og björgunar á Suðurnesjum. Það
styður enn frekar við það að flytja Land-
helgisgæsluna suðureftir.“
„Ég hefði haldið að það að flytja Landhelgis-
gæsluna til Reykjanesbæjar hefði verið
fyrsta val ríkisstjórnarinnar í byggðamálum.
Af hverju þarf að styrkja Akureyri fremur
en Suðurnes?“ sagði Oddný Harðardóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjör-
dæmi í kjölfar umræðu um flutning Fiski-
stofu til Akureyrar.
Oddný var meðal flutningsmanna þings-
ályktunartillögu um flutning Landhelgis-
gæslunnar til Reykjanesbæjar þingárið
2010-2011. Hún segir að auðvitað sé það
þannig að hver og einn þingmaður líti á sitt
svæði, það sé mannlegt og hún skilji vel að
Hafnfirðingar vilji ekki missa störfin þaðan.
„En við viljum líka halda byggð á landinu
öllu og verðum að líta upp úr kjördæma-
potinu. Og þá finnst mér að þurfi að skoða
hvaða svæði þarf mest á því að halda að efla
atvinnulífið. Það eru til dæmis Suðurnesin.
Við erum með fyrsta þingmann kjördæmis-
ins og ráðherra byggðamála, Sigurð Inga
Jóhannsson, og auðvitað er ég hissa á því að
hann skuli ekki líta fyrst á þetta svæði. Við
erum einnig með iðnaðar- og atvinnumála-
ráðherra, Ragnheiði Elínu Árnadóttur, sem
gagnrýndi síðustu ríkisstjórn oft og mikið,“
segir Oddný.
Garðaúðun
og garðsláttur
Gumma Emils
30 ára reynsla í garðaúðun
og full réttindi til jafnlangs tíma.
893 0705Friðjón Einarsson formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar mætti á mótorhjóli í Garðinn en hér má sjá hann leðurklæddan (t.h)
á tali við annan mótorhjólakappa. Friðjón var í hópi fjölmargra gesta á Sólseturshátíðinni í Garði en við gerum hátíðinni góð
skil í sjónvarpsþætti okkar í kvöld og einnig í blaðinu í dag. VF-mynd/Eyþór Sæmundsson.