Víkurfréttir - 03.07.2014, Qupperneq 2
fimmtudagurinn 3. júlí 2014 • VÍKURFRÉTTIR2
-fréttir pósturu vf@vf.is
FALLEGIR GARÐAR
Í REYKJANESBÆ
Ábendingar óskast um fallega garða,
snyrtilegt umhverfi.
Eins og áður verða umhverfisviðurkenningar veittar í
lok sumars á vegum Umhverfis- og Skipulagssviðs
Reykjanesbæjar.
Að þessu sinni óskar nefndin eftir ábendingum frá
íbúum bæjarins um fallega garða, fallega endurbyggin-
gu á gömlum húsum og lóðum bæði hjá einstaklingum
og fyrirtækjum.
Ábendingum er hægt að skila á netfangið
berglind.asgeirsdottir@reykjanesbaer.is eða til
Þjónustumiðstöðvar Reykjanesbæjar í síma 420-3200,
opið frá 07:00 til 16:00.
Tekið er við ábendingum til 20. júlí.
DUUSHÚS
SUMARSÝNINGAR
Velkomin í Duushús.
Áa sýningarsalir, ókeypis aðgangur.
Bátasalur: Bátafloti Gríms Karlssonar.
Listasalur: Dæmisögur úr sumarlandinu, einkasýning
Karolínu Lárusdóur.
Gryan: Hönnun á Suðurnesjum, samstarfsverkefni með
Hönnunarklasanum Maris.
Bíósalur: Ljósmyndasýningin Þrælkun, þroski, þrá frá
Þjóðminjasafni Íslands.
Bryggjuhús, Gestastofa: Gömul málverk og ljósmyndir af
Duushúsum í eigu safna Reykjanesbæjar.
Bryggjuhús, Erlingsstofa: Sýning á skúlptúrum Erlings
Jónssonar.
Bryggjuhús, Miðlo: Ný sýning Byggðasafnsins, Þyrping
verður að þorpi, saga bæjarfélagsins.
Bryggjuhús, Ris: Húsið sjál¢ með því sem fylgir.
Opið virka daga 12-17, helgar 13-17.
Sími 421-3796
LJÓSANÓTT 2014
LUMAR ÞÚ Á HUGMYND?
Ljósanó verður haldin hátíðleg í 15. sinn í
ár. Gaman væri að brydda upp á
skemmtilegum nýjungum af því tilefni.
Ef þú lumar á góðri hugmynd að nýjum viðburði eða
dagskrárlið, endilega sendu okkur línu á netfangið
ljosano@reykjanesbaer.is eða hringdu í s. 421-6700.
Auglýsingasími Víkurfrétta er 421 0001
Flugvél frá flugskóla Keilis nauðlenti á golfvellinum í
Vogum á Vatnsleysuströnd síð-
degis á sunnudaginn var. Tveir
voru um borð í vélinni, nemandi
og kennari, en þeir sluppu báðir
ómeiddir. Vélin missti afl og því
varð að taka til þess ráðs að lenda
á næsta stóra opna svæði.
Vélin er af gerðinni Diamond DA20
og er tveggja sæta vél en hún er lík-
lega ónýt eftir nauðlendinguna. Nú
þegar er unnið að rannsókn orsaka
slyssins en eftir að vélin hafði lent
heilu og höldnu valt hún og endaði
á hvolfi. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar var kölluð á staðinn og flutti
farþega vélarinnar á sjúkrahús sem
þó kenndu sér einskis meins, en
var skiljanlega brugðið í
brún. Björgunarsveitar-
menn voru einnig kall-
aðir til en sneru við
þegar ljóst var að engin
slys urðu á fólki.
Flugvél nauðlenti á golfvellinum í Vogum
- Tveir sluppu ómeiddir
Það var mögnuð upplifun að fylgjast með stærstu flugvél
heims, Antonov 225 Mriya taka
á loft frá Keflavíkurflugvelli um
miðja nótt í úrhellisrigningu í
síðustu viku.
Þessi risastóra þota þurfti að nýta
sér lengd Keflavíkurflugvallar,
enda ofurþungur farmur um
borð sem nú er verið að fljúga
með til Kanada. Ferðalagið hófst í Þýskalandi og
vélin átti eftir að stoppa á flugvelli í Goose Bay til að
taka eldsneyti til að geta haldið ferðalaginu áfram en
áfangastaðurinn var í Kanada þar sem vélin átti að
skila af sér stykki sem vóg 141 tonn og var ætlað til
gasvinnslu.
Mikil l kostn-
aður er við ferðalag flugvélarinnar og sem dæmi þá
námu eldsneytiskaup vélarinnar hér á landi um 10
milljónum króna og þá eru ótalin flugvallargjöld. Þá
gisti áhöfn vélarinnar og þýskt kvikmyndatökulið sem
fylgdi vélinni á Hótel Keflavík í einn sólarhring.
VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson
Ótrúlegt sjónarspil þegar Mriya tók á loft