Víkurfréttir - 03.07.2014, Síða 10
fimmtudagurinn 3. júlí 2014 • VÍKURFRÉTTIR10
Ferðin til Ameríku markaði
upphafið
Gunnar Marel Eggertsson sigldi
Íslendingi, sem hann byggði sjálfur,
yfir Norður-Atlantshaf og til Amer-
íku, sömu leið og Leifur Eiríksson
1000 árum fyrr. „Þá var í gangi í
Bandaríkjunum sýning á vegum
Smithsonian stofnunarinnar sem
hét North Atlantic saga. Ákveð-
inn samstarfsgrundvöllur verður
til á milli Gunnars og Reykjanes-
bæjar og Smithsonian sem lánar til
langs tíma muni sem voru á þeirri
sýningu. Í kjölfar ferðar Gunnars
komu munirnir hingað til lands og
skipið líka,“ segir Sveinn. Víkinga-
heimar voru síðan byggðir utan
um munina, Íslending og um-
rædda sýningu. Síðan þá hafa orðið
svolitlar breytingar. Þéttar sýningar
hafa verið og tveimur vinsælum
sýningum bætt við. Ein sýning er
Örlög guðanna, eftir Ingunni
Ásdísardóttur
o g K r i s t í n u
Gunnarsdóttur,
m e ð t ó n l i s t
e f t i r Hi l mar
Örn Hilmars-
son allsherjar-
go ða . Þar er
með hljóðleiðsögn farið yfir goða-
fræðina í sex sögum. Einnig er þar
sýningin Söguslóðir á Íslandi, um
merkar söguslóðir fyrir íslenska
sögu. „Auk þeirra er sýning sem
heitir Landnám á Íslandi og þar eru
fornminjar sem hafa verið grafnar
upp á Suðurnesjum, annars vegar
í Vogi í Höfnum og hins vegar á
Hafurbjarnarstöðum í Sandgerði.
Og svo að sjálfsögðu er Íslendingur
sjálfur,“ segir Sveinn.
Skipið Íslendingur stærsti
segullinn
Heilmargt er að skoða í Víkinga-
heimum og margar fróðlegar upp-
lýsingar. Að sögn Sveins er skipið
Íslendingur þó nokkurs konar
segull fyrir safnið. „Við sjáum það
alveg frá Reykjanesbrautinni. Hér
eru stórir glerveggir svo að það sést
auðveldlega. Hingað koma margir
sem eru forvitnir um skipið. Þegar
þeir svo koma inn upplýsi ég þá
hvað er meira merkilegt að sjá. Þá verða margir heillaðir þegar þeir
hafa gengið í gegn og skoðað.“
Ekki er um almenna leiðsögn fyrir
einstaklinga í safninu en hægt er að
biðja fyrirfram um leiðsögn fyrir
hópa. „Það getur verið erfitt fyrir
okkur að sinna einstaklingum ef
það eru margir á safninu en hún
er að sjálfsögðu í boði ef um það
er beðið sérstaklega. Þá leiðum við
fólk aðeins um safnið og sýnum
hvað er í boði. Svo er hljóðleið-
sögnin í Örlögum guðanna, þar
sem hlustað er á goðafræðina. En
að sjálfsögðu leggjum
við mikla áherslu á
sögu skipsins Íslend-
ings.“
Upplifun gesta
gefandi
Sveinn hefur verið for-
stöðumaður Víkinga-
heima í þrjú ár. Hann er
ánægður og segir starfið
gefa sér mikið. „Ég hitti
margt fólk, bæði Íslend-
inga og erlent. Það er gott að sjá og
heyra sýn erlendra gesta á tengsl
Íslendinga, eða víkinganna eins og
þeir horfa á þá, við sín heimkynni.
Og þá kannski sérstaklega Breta
og Ameríkana. Upplifun þeirra er
stórkostleg þegar þeir fara um borð
í Íslending og lesa svo um söguna.“
Sveinn hefur eðlilega kynnt sér
norræna goðafræði vel eftir að
hann hóf störf. „Ég var ekkert mjög
fróður um þetta þegar ég byrjaði
en hef lært heilmikið síðan. Einnig
hef ég fræðst um skipasmíðar því
hingað koma skipasmiðir sem eru
alveg dolfallnir yfir Íslendingi og
þeir koma frá ýmsum löndum.“
Og spurningar sem Sveinn fær
eru margar hverjar stórkostlegar.
„Þannig að ég hef aldeilis þurft
að kynna mér það efni og Gunn-
ar Marel hefur frætt mig mikið.
Sem betur fer því það er fullt af
hlutum þarna sem eru mjög merki-
legir sem tengjast þessum gömlu
skipum okkar, eins og babb í bátinn
og allt í húfi,“ segir Sveinn.
-viðtal pósturu olga@vf.is
Ferðaskrifstofan Travice hefur starfsemi sína:
Ætla að koma Reykjanesi á kortið
■uNý ferðaskrifstofa hefur verið
stofnuð á Reykjanesi. Að henni
standa ýmsir aðilar í ferðaþjón-
ustu og áhugasamir einstakling-
ar sem vilja efla ferðaþjónustu
þar. Með stofnun hennar vonast
Travice til að geta styrkt ferða-
þjónustu á svæðinu til muna.
Inga Guðmundsdóttir hefur verið
ráðin framkvæmdarstjóri en hún
hefur áralanga reynslu í ferða-
þjónustugeiranum.
Um Reykjanes fer gífurlegur fjöldi
erlendra ferðamanna ár hvert sem
oftast nær nýtir sér ekki að skoða
þá stórbrotnu náttúrufegurð sem
svæðið hefur að geyma.
Ferðaskrifstofan mun einbeita
sér að því að ná til þeirra ferða-
manna sem hafa áhuga og tíma til
að skoða svæðið. Travice ætlar að
leggja mikla áherslu á að markaðs-
setja Reykjanesið eða „koma því á
kortið“ eins og sagt er. Nálægðin
við höfuðborgina er kostur og ætlar
Travice að nýta sér það og jafnframt
vinna með ferðaþjónustuaðilum
víðsvegar um land.
„Með auknum gæðum og sam-
starfi aðila á svæðinu vonast Tra-
vice til að ferðaþjónusta geti orðið
ein af öflugustu atvinnugreinum
á Reykjanesi. Hér er stórfenglega
náttúru að finna, gott menningarlíf
og frábært fólk sem Travice hlakka
til að vinna með í framtíðinni,“
segir Inga Guðmundsdóttir í til-
kynningu frá fyrirtækinu.
Travice er nú fullgild ferðaskrifstofa.
Skrifstofa fyrirtækisins er í Heklunni
í Ásbrú, Grænásbraut 506. Vefsíða
fyrirtækisins er enn í vinnslu en von-
ast er til að hún fari fljótlega í loftið.
Hægt er að senda ferðaskrifstofunni
póst á info@travice.is.
■■ Heilmargt að skoða í Víkingaheimum:
Sjá Íslending frá
Reykjanesbraut
Víkingasafnið í Reykjanesbæ var opnað formlega
á þjóðhátíðardegi Íslendinga árið 2009. Skipið
Íslendingur er þekktasti safngripurinn, smíðað af
Gunnari Marel Eggertssyni árið 1996. Víkurfréttir
kíktu á safnið og hittu þar fyrir forstöðumanninn
Svein V. Björgvinsson.
Það er fullt af hlutum
þarna sem eru mjög merki-
legir sem tengjast þessum
gömlu skipum okkar, eins og
babb í bátinn og allt í húfi
Fyrir hönd aðstandenda
Benedikt Kristjánsson
Ragnhildur Helga Benediktsdóttir Hagbarður Marinósson
Kristján Heiðberg Benediktsson Ásdís Viggósdóttir
Aron Ívar Benediktsson
Helga Guðmundsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og dóttir
Kristín Gunnarsdóttir
kennari, Grænagarði 5, Keflavík,
áður til heimilis í Bolungavík
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja aðfaranótt mánudagsins 30. júní.
Kveðjuathöfn verður frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 4. júlí kl. 13:00.
Útförin fer fram frá Hólskirkju í Bolungavík laugardaginn 12. júlí kl. 14:00.