Víkurfréttir - 03.07.2014, Síða 15
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 3. júlí 2014 15
Kylfingurinn Karen Guðna-dóttir úr Golfklúbbi Suður-
nesja náði frábærum árangri á
Íslandsmótinu í holukeppni,
Securitas-mótinu, sem fram fór á
Hvaleyrarvelli í Hafnafirði. Kar-
en endaði í öðru sæti en hún tap-
aði í úrslitaleiknum gegn Tinnu
Jóhannsdóttur sem er úr Keili og
var á heimavelli.
Karen lék gegn systur sinni, Heiðu
Guðnadóttur, í undanúrslitum
keppninnar en Heiða keppir fyrir
Golfklúbbinn Kjöl í Mosfellsbæ.
Heiða lék síðan um þriðja sætið á
mótinu og þar hafði Guðrún Brá
Björgvinsdóttir betur en hún er
einnig úr Keili.
Karen lék gegn Sunnu Víðisdóttur
úr GR sem er Íslandsmeistari í
höggleik kvenna. Karen lék þrjá
leiki í riðlakeppninni og vann hún
þá alla og tryggði sér þar með efsta
sætið í sínum riðli.
Heiða vann einnig allar viður-
eignir sínar í riðlakeppninni – en
í hennar riðli voru þrír keppendur
en ekki fjórir eins og í hinum sjö
riðlum mótsins. Í þessum riðli var
atvinnukylfingurinn Valdís Þóra
Jónsdóttir úr Leyni Akranesi og
kom Heiða flestum á óvart með því
að sigra á fyrstu holu í bráðabana
en þær voru jafnar eftir 18 holur.
Karen varð önnur á Íslands-
mótinu í holukeppni
- sigraði Heiðu systur
sína í undanúrslitum
á Hvaleyrarvelli
Gildi Isavia eru öryggi, þjónusta og samvinna
Hjá Isavia og dótturfélögum starfa um 850 manns. Helstu verkefni fyrirtækisins eru umsjón með uppbygg-
ingu og rekstri flugvalla og að veita flugleiðsöguþjónustu fyrir innanlandsflug, jafnt sem millilandaflug, auk
yfirflugsþjónustu fyrir Norður-Atlantshafið. Isavia leggur áherslu á jafnan rétt karla og kvenna til starfa.
Viltu starfa við fasteigna-
rekstur á alþjóðaflugvelli?
Isavia óskar eir að ráða deildarstjóra eignaumsýslu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Deildarstjóri eignaumsýslu ber ábyrgð á viðhaldi og fasteignarekstri Flugstöðvar Leifs
Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli ásamt daglegri stjórnun á viðhalds- og tæknieiningum FLE.
Helstu verkefni:
• Umsjón, eftirlit og greining á viðhaldi og fasteignarekstri
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar
• Dagleg stjórnun tækni- og viðhaldseininga
• Umsjón með sorphirðu og endurvinnslu ásamt umhverfisvernd
í fasteignarekstri
• Umhirða lóða, göngustíga, bílastæða og annarra útisvæða
• Ráðgjöf og þjónusta við byggingarframkvæmdir og
fjárfestingarverkefni
• Rekstur á rútum og vélbúnaði til flugstöðvarreksturs
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun á sviði byggingarverk- eða tæknifræði eða
sambærileg menntun sem nýtist í starfi
• Reynsla eða menntun á sviði viðhaldi mannvirkja og verkstýringu
er skilyrði
• Reynsla af stjórnunarstörfum er nauðsynleg
• Þekking á gerð kostnaðar-, rekstrar- og viðhaldsáætlana æskileg
• Góð íslensku- og enskukunnátta bæði í töluðu og rituðu máli
• Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Umsóknum skal skila inn á rafrænu formi. Umsókn og frekari upplýsingar um starfið má nálgast
á www.isavia.is/atvinna. Einnig veitir Guðmundur Daði Rúnarsson upplýsingar með tölvupósti
á netfangið dadi.runarsson@isavia.is. Umsóknarfrestur er til og með 27. júlí.
1
4
-1
6
1
1
-
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Stúlknalið Keflavíkur og strá-
kalið Njarðvíkinga höfnuðu í
þriðja sæti á vinabæjarmóti í
knattspyrnu sem fram fór í Hjörr-
ing í Danmörku. Vinabæjar-
mótið hefur verið haldið frá árinu
1973 en um er að ræða vinabæi
Reykjanesbæjar á Norðurlöndum
sem keppa innbyrðis í ýmsum
íþróttum. Að ári verður keppt í
sundi í Kristiansand í Noregi en
svo er komið að Reykjanesbæ árið
2016 en þá verður keppt í golfi
á Hólmsvelli í Leiru. Vinabæir
Reykjanesbæjar eru; Kerava í
Finnlandi, Kristiansand í Noregi,
Hjörring í Danmörku og Troll-
hattan í Svíþjóð.
■■ Vel heppnað vinabæjarmót í Danmörku
Lið Reykjanesbæjar í 3. sæti