Víkurfréttir - 10.07.2014, Blaðsíða 1
vf.is
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
fimmtudagurinn 10. júlí 2014 • 27. tÖluBlaÐ • 35. Árgangur
Hringbraut 99 - 577 1150
Félagar í FEB fá 12% afslátt
af öllum vörum og góð kjör
á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ
Hjá okkur njóta allir sérkjara
af lyfjum utan greiðsluþáttöku
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
FERÐAÞJÓNUSTAN
Á SUÐURNESJUM
HVAÐ GERA GEST–
GJAFARNIR Í BLÁA
LÓNINU?
SKEMMTILEGUR
SUMARÞÁTTUR!
Í KVÖLD KL. 21:30 Á ÍNN
EINNIG Á VF.IS
Sjónvarp Víkurfrétta
öll fimmtudagskvöld
Harka er hlaupin í samskipti stjórnmála-
fólks í Reykjanesbæ og á vef Víkurfrétta
síðustu daga hafa borist greinar eftir
að bæjarráð Reykjanesbæjar hafnaði á
fundi sínum í síðustu viku tillögu Kristins
Jakobssonar, oddvita Framsóknar, um
launaða áheyrnarfulltrúa Framsóknar-
flokksins í nefndum.
Kristinn Jakobsson oddviti Framsóknar
sakaði í aðsendri grein nýjan meirihluta
um að ganga á bak orða sinna um aukn-
ingu íbúalýðræðis. Guðbrandur Einarsson,
oddviti Beinnar leiðar, svaraði ásökunum
Kristins og sagði engan feluleik í gangi.
Allt saman væri gert fyrir opnum tjöldum
og að höfðu samráði bæði við innanríkis-
ráðuneytið og Samband sveitarfélaga. Nýr
meirihluti hefði bara ákveðið að gefa sér
lengri tíma til að vinna í framgangi sinna
stefnumála.
Árni Sigfússon, fyrrum bæjarstjóri, sendi þá
grein þar sem hann sagði nýjan meirihluta
brjóta jafnréttisreglur og úthýsti Framsókn,
þegar á sama tíma væri boðað aukið lýð-
ræði og aukið gagnsæi. Sagði hann það ekki
farsæla byrjun hjá meirihlutanum. Guð-
brandur svarar og segir Árna skipta um
skoðun þegar hann sé kominn í minnihluta.
Svipuð staða og nú hefði komið upp þegar
Sjálfstæðisflokkurinn hefði verið í meiri-
hluta 2002. Árni svaraði þá á þá leið að eftir
kosningar 2002 hafi engin formleg tillaga
komið frá Framsókn um að fá fulltrúa í
nefndir Reykjanesbæjar. Hefði hann verið
því andvígur þá, vilji hann þó fylgja því að
batnandi mönnum sé best að lifa.
Kolbrún Jóna Pétursdóttir, varabæjar-
fulltrúi Beinnar Leiðar, bætist í hópinn í
grein þar sem hún segir að henni finnist
öfugsnúið að Árni og Kristinn vilji að Fram-
sóknarflokkurinn hafi áheyrnarfulltrúa í
fastanefndum þegar verið er að fara eftir
reglum sem þeir tóku báðir þátt í að semja
og breyta frá fyrri samþykkt á sínum tíma.
Þá blandar Sveinbjörg Birna Sveinbjörns-
dóttir, borgarfulltrúi Framsóknar- og flug-
vallarvina í Reykjavík, sér inn í umræðuna
þar sem hún segir að Framsókn og flug-
vallarvinir í Reykjavík eigi aðalmenn og
varamenn í öllum helstu ráðum á vegum
Reykjavíkurborgar og áheyrnarfulltrúa í
öllum hverfisráðum borgarinnar, alls 10
talsins, innkauparáði og heilbrigðisnefnd.
Þar svarar hún fullyrðingum Guðbrandar
um að Framsóknarflokkurinn í Reykja-
nesbæ sé í sömu stöðu og flokkurinn í
Reykjavík, þ.e. með kjörna fulltrúa í borgar-
stjórn en ekki í fastanefndum. Guðbrandur
svarar síðan Sveinbjörgu og biðst velvirð-
ingar á að hafa legt stöðu Framsóknar-
flokksins í Reykjavík og Reykjanesbæ að
jöfnu.
Í staðinn nefnir hann dæmi sem kom upp á
Ísafirði þar sem Framsóknarflokknum var
ekki heimiluð seta í nefndum.
Garðaúðun
og garðsláttur
Gumma Emils
30 ára reynsla í garðaúðun
og full réttindi til jafnlangs tíma.
893 0705Makríll hefur mokveiðst í þessum mánuði og gera menn sér vonir um að þetta sé eitthvað sem koma skal. Við ströndina í Stakks-firði er fjöldi báta að veiðum og hópur fólks hefur nýtt tækifærið undanfarna daga og dorgað eftir makríl í Keflavíkurhöfn.
Margir líta á þetta sem tómstundagaman á meðan aðrir fá vatn í munnvikin og veiða makrílinn sér til matar.
Ljósmyndarar Víkurfrétta fönguðu stemninguna á dögunum.
■■ Minnihlutinn í bæjarstjórn Reykjanesbæjar sakar meirihlutann um að virða ekki íbúalýðræði sem hann hefði lofað:
Karpað um framsóknarfulltrúana
Brenndar túttur á Ásbrú
■XSlökkviliðið var kallað út vegna
hugsanlegs eldsvoða í íbúð í fjölbýlis-
húsi á Ásbrú. Ekki var mikil hætta á
ferðum en gúmmítúttur og snuð höfðu
brunnið við í potti og fylltist íbúðin því
af reyk. Reykræsta þarf íbúðina en að
öðru leyti urðu ekki miklar skemmdir
á eignum.
Makrílæði í Stakksfirði
■■ Kynslóðir hittast á bryggjunni og sjómenn brosa breitt: