Víkurfréttir - 10.07.2014, Qupperneq 6
fimmtudagurinn 10. júlí 2014 • VÍKURFRÉTTIR6
vf.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 P Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 P Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is
Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is P Blaðamenn: Olga Björt Þórðardóttir, sími 421 0002, olgabjort@vf.is, Eyþór Sæmundsson, eythor@vf.is
Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is P Hönnun og umbrot: Þorsteinn Kristinsson, sími 421 0006, steini@vf.is, Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is
Afgreiðsla: Rut Ragnarsdóttir, sími 421 0000, rut@vf.is, Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is P Prentun: Landsprent hf. P Upplag: 9000 eintök P Dreifing: Íslandspóstur
Stafræn útgáfa: www.vf.is, www.kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17 á þriðjudegi fyrir útgáfudag sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga fer fram á vef Víkurfrétta, vf.is.
Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15 á þriðjudögum. Ekki er tekið á móti smáauglýsingum í síma. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og þá færist skilafrestur auglýsinga fram um einn
sólarhring. Efni til Víkurfrétta skal sendast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða aðsendu greinar birtast í prentaðri útgáfu blaðsins.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
SÍMI 421 0000
MÁN–FIM
FÖS
LAU
11.00–18.00
11.00–19.00
13.00–16.00
OPNUNARTÍMAR Í SUMAR:
HÓLAGÖTU 15 // 421-6070 // VIÐ ERUM Á FACEBOOK
GLÆSILEGT ÚRVAL AF FLOTTUM STEIKUM
Á GRILLIÐ, PÖNNUNA EÐA OFNINN!
EKTA NAUTAHAMBORGARAR,
EINGÖNGU EÐAL HRÁEFNI.
EINNIG ER FISKBORÐIÐ SPRIKLANDI
AF FERSKUM FISK OG- FISKRÉTTUM,
1. FLOKKS HUMAR SELDUR Í STYKKJATALI.
MIKIÐ ÚRVAL AF GÓÐUM, KÖLDUM SÓSUM
FYRIR FISK OG KJÖT.
-viðtal pósturX olga@vf.is
Hin 23 ára Carla Garcia Jurado hefur bæst í þjálfarateymi júdó-deildar UMFN. Carla kemur frá bænum Cambrils, suður af
Barcelona á Spáni, þar sem hún hefur æft frá því hún var sex ára og
hefur því mikla reynslu í íþróttinni. Þá hefur Carla unnið til fjölda
verðlauna á meistaramótum á Spáni. Júdódeildin mun í sumar bjóða
upp á námskeið sem eingöngu er ætlað konum og unglingum sem ekki
hafa komið nálægt bardagaíþróttum.
Annast tvíburadrengi og
kennir júdó
Carla hefur dvalið á Íslandi í
mánuð og þetta er í fyrsta skipti
sem hún kemur til Íslands. Hún er
ekki eingöngu að þjálfa júdó heldur
er hún au pair hjá Guðmundi
Stefáni Gunnarssyni, júdóþjálfara,
og Eydísi konu hans. „Ég annast
tvíburadrengina þeirra, sem eru
eins og hálfs árs, á virkum dögum
og um helgar stefni ég á að kanna
og kynna mér marga ólíka staði á
Íslandi. Mér finnst Ísland mikið
fyrirmyndarland fyrir allan heim-
inn,“ segir Carla og bætir við að
síðan hún kom hafi land og þjóð
vakið mikla aðdáun hjá henni.
„Náttúran og fyrirbærin sem þar
er að finna, langir dagar, bjartar
nætur og fólkið sem hér býr. Ég
læri nýja hluti daglega. Það er eins
og að komast í annan heim að
ferðast um land elda og íss. Það er
töfrum líkast.“
Íslendingar skapgóðir og
þolinmóðir húmoristar
Carla segir Íslendinga sem hún
þekki vera mjög opna og vinalega
miðað við aðrar þjóðir. „Þeir eru
alltaf til í að hjálpa og þeir gera
dvöl mína svo ógleymanlega. Það
sem þó er best við þá er að þeir
eru aldrei í vondu skapi og hafa
alltaf tíma fyrir húmor og eru mjög
þolinmóðir.“ Áður en Carla kom
til landsins vissi hún að það væri í
Norður-Evrópu, þar sem sólin sest
aldrei á sumrin en á veturna væri
aðeins bjart í örfáa klukkutíma. Svo
vissi hún um byltinguna í kjölfar
efnahagshrunsins árið 2008. „Ég
bjóst aldrei við að ég myndi ferðast
til eins af bestu stöðum sem ég gæti
ímyndað mér,“ segir Carla.
Birtan og matarvenjur
ólíkari en heima
Spurð um hvað sé helst ólíkt með
Íslandi og Spáni segir hún það vera
nánast allt; Veðrið, tungumálið,
maturinn, dagskráin, tollarnir,
stórmarkaðarnir, fólkið og lands-
lagið. „Ég er enn í hálfgerðu að-
lögunarferli því síðan ég kom hefur
allt verið nýtt fyrir mér. Það sem
kom mest á óvart var að hægt er að
njóta dagsins á sumrin í nánast 24
tíma á sólarhring, ég elska það! Það
sem hefur verið erfiðast er tíminn
og máltíðirnar. Á Spáni borðum
við fimm máltíðir yfir daginn og
í eftirmiðdag borðum við stærri
máltíðir en Íslendingar gera. En ég
nýt þess að smakka allt sem ég hef
ekki smakkað áður.“
Vantar ekki kennara á Spáni
Eftir að Carla útskrifaðist á síðasta
ári með BS gráðu í íþróttum og
hreyfingu krækti hún sér í kennslu-
réttindi. „Eins og er er engin eftir-
spurn eftir kennurum á Spáni svo
að síðasta ár hef ég tileinkað líf
mitt því að þjálfa, kenna og keppa
í júdó í ólíkum skólum á svæðinu.
Ég er með svarta beltið í júdó og
byrjaði að æfa það sex ára,“ segir
hún. Ástæða þess að Carla ákvað
að gerast au pair á Íslandi er að hún
vildi bæta enskukunnáttuna sína.
„Svo elska ég börn og að kanna
nýja staði og ég held því að þetta
verði góð reynsla. Eins og er gengur
allt mjög vel. Ég er mjög heppin að
vera hjá svona yndislegri fjölskyldu
sem lætur mér finnast ég vera svo
velkomin,“ segir Carla ánægð að
lokum.
■■ Kennir júdó og annast tvíbura:
Ég er mjög
heppin að vera
hjá svona yndis-
legri fjölskyldu
sem lætur mér
finnast ég vera
svo velkomin
Mér finnst
Ísland mikið
fyrirmyndar-
land fyrir allan
heiminn
Íslendingar
skapgóðir
húmoristar
Sú var tíðin að varla var þverfótað fyrir bílskúrsböndum og
hljómsveitum í Reykjanesbæ. Keflavík var vagga rokksins
og héðan af Suðurnesjum komu flestir færustu og frægustu
tónlistarmenn landins um áratugaskeið. Ennþá erum við
að framleiða frambærilegt tónlistarfólk en það er óhætt
að segja að blómaskeiðið sé runnið sitt skeið. Ég hugsa að
það sé ekki einskorðað við Suðurnesin, þ.e.a.s. hnignun
bílskúrsbandsins. Tónlist hefur þróast og breyst mikið frá
því Hljómar og fleiri góðar hljómsveitir tóku til starfa á
sjöunda áratug síðustu aldar. Þá var rokkið svo nýtt og
spennandi. Allir vildu vera í hljómsveitum og ekki þurfti
sérstaklega að hafa reynslu eða tónlistarmenntun til þess að
vera gjaldgengur í hljómsveit. Í skemmtilegum sjónvarps-
þætti sem sýndur var á RÚV á sunnudag um Rúnar Júlíus-
son heitinn, kom þessi tíðarandi bersýnilega í ljós. Hérna
gerðust hlutirnir þegar kom að tónlist.
ATP tónlistarhátíðin stendur nú yfir á Ásbrú, en frá því
svæði kom jú rokktónlistin upprunalega til Íslands frá
Bandaríkjamönnum. Spennandi verður að sjá hvernig tekst
til að halda hátíðina í annað sinn en hún mun líklega verða
stærri í sniðum en í fyrra þó vel hafi til tekist þá. Rokk-
safn Íslands í Hljómahöllinni er önnur rós í hnappagat
Suðurnesja hvað varðar tónlistarmenninguna á svæðinu
og mættu íbúar Reykjanesbæjar vera stoltir af glæsilegu
safni, burtséð frá skoðunum um nafn á húsnæðinu. Svo
ætti nú nýtt húsnæðið tónlistaskóla Reykjanesbæjar að
halda áfram að geta af sér tónlistarfólk framtíðarinnar.
Það er frábært að ennþá, rúmum 50 árum eftir að Hljómar
urðu til, eru Suðurnesin nefnd til sögunnar þegar íslensk
tónlist ber á góma. Vonandi verður svo áfram enda er tón-
listarmenning svo órjúfanlegur hluti af okkur Suðurnesja-
mönnum.
Lengi lifi
tónlist
-ritstjórnarbréf
Eyþór Sæmundsson skrifar