Víkurfréttir - 10.07.2014, Síða 8
fimmtudagurinn 10. júlí 2014 • VÍKURFRÉTTIR8
Hjörtur Zakaríasson hefur sinnt hlutverki staðgengils bæjar-stjóra síðan Árni Sigfússon hætti um miðjan júní. Sjálfur stefnir
Hjörtur að því að láta af störfum sem bæjarritari um næstu áramót en
því starfi hefur hann gegnt frá árinu 1986 en þáverandi meirihluti Al-
þýðuflokks réði þennan fyrrverandi bæjarfulltrúa Sjálfstæðismanna.
Olga Björt hitti Hjört á skrifstofu Reykjanesbæjar og ræddi við hann
um starfið, pólitíkina og heilsuna.
Næstum verið áhugamál
„Ég sit núna bæjarráðs- og bæjar-
stjórnarfundi og er í raun sá að-
ili sem er til svara þagnað til nýr
bæjarstjóri er ráðinn. Ég mun svo
líka koma nýjum bæjarstjóra inn
í það hlutverk,“ segir Hjörtur, en
hann hefur verið bæjarritari Kefla-
víkur og Reykjanesbæjar síðan árið
1986. Hann var í bæjarstjórn á ár-
unum 1982-1986, sem bæjarfull-
trúi sjálfstæðismanna. „Ég hætti
afskiptum af pólitík að því leyti til
en hafði í staðinn meiri afskipti af
bæjarfélaginu en sem bæjarfulltrúi.
Það var vegna áhuga af sveitar-
stjórnarmálum sem ég sóttist eftir
þessu og er búinn að starfa með
mörgum bæjarstjórum. Ég hef
haft ánægju af því og þetta hefur
næstum verið áhugamál hjá mér að
gera það besta fyrir bæjarfélagið.“
Minni áhrif sem bæjarfulltrúi
Hjörtur var formaður æskulýðs-
ráðs 18 ára og hefur alltaf verið
virkur í félagsmálum. Hann segir
þann áhuga alltaf hafa blundað í
sér. „Mér fannst ég hafa meiri áhrif
sem bæjarritari en bæjarfulltrúi.
Þá er maður kominn inn í innsta
hring. Ég er í raun ópólitískur
bæjarritari, ráðinn af krötum
á sínum tíma,“ segir Hjörtur og
brosir þegar hann rifjar upp liðnar
stundir. Hann segir allir bæjar-
stjóra sem hann hefur unnið með
hafa verið minnisstæða á sinn hátt.
„Ég átti góðan vin, Vilhjálm Ketils-
son, sem stoppaði alltof stutt, en
hann var tvö ár sem bæjarstjóri.
Ég þekkti hann af öðrum sökum
vegna vinskapar. En sá bæjarstjóri
sem ég vann nánast með var Ellert
Eiríksson og ég held enn í dag mjög
góðu sambandi við hann. Auðvitað
eru bæjarstjórar eins og aðrir með
það að velja sér samstarfsfólk sem
það veit hvernig starfar. Hér hefur
ágætasta fólk verið bæjarstjórar.
Eina konan sem hefur setið í stól
bæjarstjóra í Reykjanesbæ sat hér í
mánuð, Drífa Sigfúsdóttir. Þá var of
mikið álag fyrir mig að vera stað-
gengill bæjarstjóra því ég var aðal
maðurinn í að skipuleggja flutning
bæjarskrifstofunnar yfir á Tjarnar-
götuna. Þetta var inni í málefna-
samningi þeirra þá. En maður gerir
sjálfsagt ekkert mikið í einum mán-
uði sem bæjarstjóri,“ segir Hjörtur.
Fyrrum bæjarstjóri duglegur
„Það eru margir sem þekkja mig
en svo eru margir sem hafa ekki
hugmynd um hver ég er eða hvað
ég geri. Ég hef ekki verið áberandi,
það er bæjarstjórans að vera andlit
bæjarins. Ég hef viljað halda mér til
hlés og skyggja ekki á hann,“ segir
Hjörtur og bætir við í því samhengi
að Árni Sigfússon hafi verið bæjar-
stjóri í tólf ár og mjög áberandi sem
slíkur. „Árni er mjög duglegur í
vinnu og því hefur mætt minna á
mér. Hann tók starfið alvarlega og
fannst hann ekki geta sleppt hend-
inni af okkur hinum sem vinnum
hjá honum. En ein af breyting-
unum sem einnig hafa þróast frá
því áður er að framkvæmdastjórar
eru yfir hverju sviði, sem heyra svo
beint undir bæjarstjórann.“
Skemmtilegast við starfið hafi í
gegnum tíðina verið að umgangast
gott fólk. „Þegar maður var yngri
var maður ekkert að velta því mikið
fyrir sér, heldur koma upp heimili
og leggja á sig mikla vinnu. Svo
þegar börnin eru farin að heiman
horfir maður aðeins öðruvísi á
þetta. Leika sér meira í golfi og
fara upp í sveit um helgar. Það eru
nokkrir hér sem ég hef starfað með
hér frá byrjun og svo kemur alltaf
nýtt fólk sem maður hefur ekki
dagleg afskipti af og man því ekki
öll nöfn.“ Vel á sjötta tug manns
starfar í ráðhúsinu og Hjörtur segir
að um sé að ræða gott starfsfólk
og því hafi samstarf gengið vel og
hann heppinn með að hafa ekki
verið í neinum átökum.
Lætur brátt af störfum
Hjörtur segir að komið sé að því
að stíga til hliðar. „Ég er ákveðinn í
að hætta störfum og auglýst verður
eftir nýjum bæjarritara. Vegna að-
stæðna sleppi ég sumarfríinu mínu
og get því ekki alveg sagt lokadag-
■■ Hjörtur Zakaríasson bæjarritari í
Keflavík og Reykjanesbæ frá 1986
hættir líklega um næstu áramót.
Kveðst kveðja sáttur eftir nærri
þrjátíu ára starf:
Aðeins verið
tvo daga
frá vinnu
Þurfti að snapa pening fyrir laununum
Fyrstu árin í starfi segir Hjörtur hafa verið gríðarlega vinnu og öðruvísi
en nú tíðkast. „Þá var maður að handleika peninga og ávísanahefti. Nú
er þetta allt á rafrænu formi. Maður þurfti að snapa peningum fyrir
launum en núna kemur útsvarið bara sjálfkrafa inn. Ég þurfti áður
fyrr að hringja í stóra vinnuveitendur og spyrja hvort þeir ætluðu ekki
að borga svo við ættum fyrir laununum. Elíft vesen. Tölvubúnaður
var heldur ekki eins flottur og í dag og maður var kannski bara meira
í vinnunni. Núna reynir maður bara að klára verkin sín fljótt og fara
svo heim. Ég er með síma sem er opinn allan sólarhringinn og ég er
þannig alltaf til staðar,“ segir Hjörtur. Bæjarritari hafi upphaflega fyrst
og fremst verið skrifstofustjóri og borið ábyrgð á rekstri bæjarsjóðs
að mörgu leyti. „Þegar ég hóf störf 1982 voru bæjarbúar á milli fimm
og sex þúsund en svo breytist það mikið þegar fjöldinn var kominn í
15000. Miklu meira bákn. Ég var t.d. áður með öll starfsmannamál á
minni könnu en eftir sameiningu var nauðsynlegt að ráða starfsþró-
unarstjóra eða starfsmannastjóra. Þá tók ég að mér að reka fasteignir
bæjarins og er ennþá með það á minni könnu. Áður fyrr var bæjarritari
fjármálastjóri líka. Þegar þetta stækkar verður að dreifa verkefnunum.
Þannig að maður er búinn að prófa ýmislegt,“ segir Hjörtur.
Ég var miklu
villtari og brýndi
raustina kannski
einum of oft.
En það eldist
af manni
-viðtal pósturX olga@vf.is
Ég er sífellt
að hlusta á skoð-
anir og viðhorf en
verð stundum að
steinþegja
Ég hætti afskiptum af pólitík
að því leyti til en hafði í staðinn meiri
afskipti af bæjarfélaginu en sem
bæjarfulltrúi